Smore logo
remove_red_eye 602
page background
Logo

Tæknótíðindi

15. nóvember 2024

Tæknótíðindi15. nóvember 2024

Dagsetningar framundan Dagsetningar framundan

  • 18. nóvember
    • Miðspannarmat birt í Innu
    • Kennslumat fyrir áfanga á önn og seinni spönn opnað
  • 19. nóvember - Skólafundur
  • 21. nóvember - Skuggakosningar
  • 22.–24. nóvember - Þríhyrningurinn
Á döfinni; viðburðir, stoðtímar, frídagar....

Skóladagatal Tækiskólans á PDF formi er aðgengilegt hér!

Miðspannarmat og kennslumat Miðspannarmat og kennslumat

zoom_out_map
Á hverri önn fer fram miðspannarmat í Tækni­skól­anum. Kenn­arar gefa nem­endum vitn­isburð um stöðu þeirra í hverjum áfanga fyrir sig. Vitn­isburðurinn byggir fyrst og fremst á því náms­mati sem þegar hefur farið fram í viðkom­andi áfanga.


Kennslumat fer fram á síðari hluta annar og birtist undir flip­anum kann­anir í kennsluvef Innu. Nem­endur svara spurn­ingum um kennsluna í ein­stökum áföngum.


Nánari upplýsingar um miðspannarmat og kennslumat á vefsíðu Tækniskólans.

Skólafundur 19. nóvember Skólafundur 19. nóvember

Skólafundur verður haldinn í Tækniskólanum þriðjudaginn 19. nóvember kl. 10:25–12:05. Þá leggjum við hefðbundið námsefni frá okkur og ræðum þess í stað um ýmis málefni er varða skólastarfið. Þeim, sem ekki eru með tíma í stundatöflu á þessum tíma, býðst að mæta á skólafund í matsölum skólans á Skólavörðuholti, Háteigsvegi og í Hafnarfirði.


Skólafundir eru mikilvægur lýðræðislegur vettvangur fyrir nemendur skólans til að koma sínum málefnum á framfæri. Athugið að mætingaskylda á skólafund gildir um öll þau sem eru með tíma í stundatöflu kl. 10:25–12:05 þennan dag. Þá hvetjum við öll önnur til þess að mæta á skólafund í matsölum skólans á sama tíma.


Nánari upplýsingar um skólafundinn má sjá á vefsíðu skólans.

Skólafundur Tæknó 2024
Skólafundur málefni og skipulag

Skuggakosningar í Tækniskólanum Skuggakosningar í Tækniskólanum

Skuggakosningar í Tækniskólanum verða haldnar fimmtudaginn 21. nóvember. Hægt verður að kjósa í mat­sölum nem­enda á Skólavörðuholti, Háteigs­vegi og í Hafnarfirði og hefjast kosn­ing­arnar kl. 12:00 og standa yfir til kl. 16:00 sama dag.


Skugga­kosn­ingar eru eins konar æfinga­kosn­ingar þar sem fram­halds­skóla­nemar kjósa sína full­trúa sem bjóða sig fram til Alþingis 30. nóv­ember.


Nánari upplýsingar um kosningarnar má sjá á vefsíðu skólans.

Skuggakosningar í Tæknó 2024
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map

Þríhyrningurinn - LAN Þríhyrningurinn - LAN

zoom_out_map

Þríhyrn­ing­urinn, sam­eig­in­legt LAN Tækni­skólans og FB, verður haldið helgina 22.–24. nóv­ember í matsal Tækni­skólans við Skólavörðuholt.


Miði á LAN-ið kostar 3.500 kr. og hér er hlekkur á miðasölu. Miðasölu lýkur miðviku­daginn 20. nóv­ember kl. 13:00.


Nánari upplýsingar um LAN-ið má finna inn á nst.is.

Glæsileg útskriftarsýning hársnyrtinema Glæsileg útskriftarsýning hársnyrtinema

Til hamingju!

Við óskum nemendum og kennurum í hársnyrtiiðn til hamingju með glæsilega útskriftarsýningu í síðustu viku!

Njótið helgarinnar Njótið helgarinnar

Tækniskólinn - skóli atvinnulífsins
tskoli.is
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter