Smore logo
remove_red_eye 114
page background

DJÚPAVOGSSKÓLI

FRÉTTIR ÚR SKÓLASTARFI

DJÚPAVOGSSKÓLI FRÉTTIR ÚR SKÓLASTARFI

MARS OG RESTIN AF FEBRÚAR

FEBRÚAR

24. - 25. febrúar - Vetrarfrí

28.febrúar - Bolludagur og foreldrafundur þar sem allir geta komið saman.

Í dag hefst formlegt vettvangsnám hjá þeim sem eru í kennsluréttindanámi.



MARS

  • 1.mars - Sprengidagur, nemendur í 7.bekk í Djúpavogsskóla keppa í upplestri.
  • 2.mars - Öskudagur - húllumhæ og búningadagur.
  • 3.mars - Kennsluráðgjafi frá Skólaskrifstofu Múlaþings kemur í heimsókn.
  • 8.-10.mars - BÚIÐ AÐ AFLÝSA SAMRÆMDUM PRÓFUM
  • 11.mars - Starfsfólk Grunnskóla Hornafjarðar kemur í skólaheimsókn til okkar.
  • 14.mars - Dagur stærðfræðinnar.
  • 15.mars - Kvikmyndasmiðja á vegum bókasafna í Múlaþingi (nánar auglýst síðar).
  • 16.mars - Stóra upplestrarkeppnin haldin í Grunnskóla Hornafjarðar.
  • 22.mars - 1.-4.bekkur sýnir árshátíðar verkið sitt (Lion king).
  • 23.mars - Árshátíðar undirbúningur hjá 5.-10.bekk.
  • 24.mars - 5.-10.bekkur sýnir árshátíðar verkið sitt (Lion king).
  • 25.mars - Árshátíðar frágangur.

NÆSTA VIKA

Mánudagur 28.febrúar - BOLLUDAGUR

  • Mætum hress eftir gott vetrarfrí, nemendur geta haft með sér rjómabollur í nesti.
  • 10:30 Nemendur í 7.bekk keppa í upplestri.
  • 19:30-21:00 Foreldrafundur í Djúpavogsskóla.

Í dag eru sumir kennarar skólans að hefja formlegt vettvangsnám.


Þriðjudagur 1.mars - SPRENGIDAGUR

  • Saltkjöt og baunir í matinn.
  • 14:40 Teymisfundur.


Miðvikudagur 2.mars - ÖSKUDAGUR

  • Búningadagur hjá nemendum og starfsfólki.
  • Skertur dagur á skóladagatali, kennslu líkur 13:10.


Fimmtudagur 3.mars

  • Kennsluráðgjafi frá Skólaskrifstofunni verður hjá okkur í dag.
  • 14:40 Fagfundur.


Föstudagur 4.mars

  • Förum í gott helgarfrí.

MATSEÐILL NÆSTU TVÆR VIKUR

STÓRA UPPLESTRARKEPPNIN

Á mánudag ætla nemendur í 7.bekk í Djúpavogsskóla að keppa sín á milli í upplestri. Það er búið að skipa dómnefnd sem mun velja 6 nemendur sem verða fulltrúar okkar í aðalkeppninni sem fer fram á Hornafirði þann 16.mars.

Foreldrar nemenda í 7.bekk ættu að hafa fengið boð um að mæta í Djúpavogskirkju kl.10:30 en 5.-6.bekkur verður líka í stuðningsliðinu.

ÖSKUDAGUR

Á Öskudaginn hvetjum við alla til að mæta í búningum.

Dagskráin er í grófum dráttum á þá leið að nemendum er skipt í nokkra hópa. Hóparnir fara svo á ákveðnar stöðvar þar sem eitthvað óvænt og skemmtilegt verður í boði.


Öskudagur er skertur dagur á skóladagatalinu.

kennslu líkur þann dag kl.13:10, hjá öllum nemendum.


Það er gott að nemendur séu með nestið sitt í fjölnota poka því þau eru stödd á mismunandi stöðvum þegar þau fara í nesti.


Þrátt fyrir að skóladegi ljúki kl.13:10 þá verður opið í frístund (viðveru). Það er mjög mikilvægt að foreldrar láti starfsfólk frístundar vita hvort að nemendur ætli að nýta sér frístundina.

BÚIÐ AÐ AFLÝSA SAMRÆMDUM PRÓFUNUM

https://mms.is/frettir/samraemd-konnunarprof-ekki-logd-fyrir


Hér má lesa allt um það.

KENNSLURÁÐGJAFI Í HEIMSÓKN

Hún Jarþrúður kennsluráðgjafi á Skólaskrifstofu Múlaþings ætlar að koma til okkar á fimmtudaginn og verða með ráðgjöf fyrir kennara.


Þetta er liður í því að efla faglega kennslu hjá okkur.

KENNARAR Í VETTVANGSNÁMI

Þegar farið er í kennsluréttindanám þá þarf að gera ráð fyrir því að þurfa að fara á vettvang og prófa að kenna. Stundum er það þannig að fólk er í námi og á sama tím að sinna kennslu, þannig er staðan hjá nokkrum starfsmönnum hjá okkur.

Ef ekki væri fyrir Covid þá væru nemendur beðnir um að fara í vettvangsnám í aðra skóla en sinn heimaskóla en í Covidástandi er gefin undanþága og hægt að taka vettvangsnámið á sínum eigin vinnustað.


Þær Lilja, Marta og Unnur ætla að taka vel á móti kennaranemunum okkar á mánudaginn :) og leiðbeina þeim á meðan á vettvangsnámi stendur.

OBBA Í SMÁ FRÍ OG LILJA TEKUR VIÐ

Á þriðjudaginn 1.mars ætla ég að taka mér nokkra daga í frí. Ég mun þó svara tölvupósti og síma ef eitthvað áríðandi kemur uppá.

Lilja Dögg verður staðgengill skólastjóra og heldur utan um daglegt skipulag.

Netfangið hennar Lilju er:


lilja.bjorgvinsdottir@mulathing.is

100 SKREF FRÁ 1.BEKK TIL SKÓLASTJÓRA

Hann Oliver fékk það hlutverk að telja skrefin frá kennslustofu 1.bekkjar að skrifstofu skólastjóra og það eru nákvæmlega 100 skref, þetta safnast saman.


Vel gert hjá Oliver.

Bestu kveðjur til ykkar og vonandi hafa allir það gott í vetrarfríinu.

Starfsfólk Djúpavogsskóla

Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter