Smore logo
remove_red_eye 258
page background

Fréttabréf VA

Nóvember 2019. 1. tölublað.

Fréttabréf VANóvember 2019. 1. tölublað.

Námsmatsdagar nálgast og önninni að ljúka

Nú er lokasprettur haustannarinnar að hefjast. Síðasti hefðbundni kennsludagur er miðvikudagurinn 4. desember, þá tekur vinnustofudagur við og síðan hefjast námsmatsdagar föstudaginn 6. desember. Nóvember var afar viðburðaríkur eins og aðrir mánuðir í VA. Í lok október var Bar(a)sVArið haldið, vel sótt hryllingshús var sett upp í samstarfi við Nesskóla í byrjun nóvember og fræðslufyrirlestrar voru nú undir lok mánaðarins. Auk þess hefur nemendafélagið haldið smærri viðburði. Við erum síðan að taka á móti umsóknum fyrir vorönn 2020. Meira um þetta allt hér fyrir neðan.
Nám á vorönn 2020

Komdu í VA - Umsóknir um nám á vorönn 2020

Nú erum við að taka á móti umsóknum um nám á vorönn 2020. Kynntu þér allt sem er í boði í VA. Þar finnuru allt, hvort sem það er starfsnám, bóknám, fjarnám, staðnám eða dreifnám.


Smelltu hér til að kynna þér námið!


Umsóknarfrestur rennur út 30. nóvember.

Nýr vefur

Vefsíða skólans, va.is, hefur fengið yfirhalningu. Vefurinn er svipaður að uppbyggingu og eldri útgáfa en sú nýja aðlagar sig að skjástærð tækja og svarar þannig nútímakröfum. Við hvetjum ykkur til að kíkja á vefinn.

Ábendingahnappur

Nú er hægt að senda ábendingar varðandi allt sem viðkemur skólastarfinu beint í gegnum vefinn. Hnappurinn er hluti af innleiðingu gæðakerfis (ISO-9001) í skólanum og við hvetjum ykkur öll til að nota hann ef þurfa þykir.


Þið getið smellt hér til að nálgast formið.

Myndatökur

Við viljum vekja athygli á því að skólinn er vinnustaður nemenda samkvæmt framhaldsskólalögum og einstaklingurinn nýtur verndar þar. Í því felst m.a. að óheimilt er fyrir nemendur að taka myndir af samnemendum án samþykkis þeirra. Er það í samræmi við Lög um persónuvernd nr. 90/2018 og 71. gr. Stjórnarskrár Íslands.

Molar úr félagslífinu

Í gærkvöldi stóð NIVA fyrir huggulegheitum í sal heimavistarinnar þar sem m.a. var keppni í piparkökuhússkreytingum og Kahoot. Var fjöldi nemenda saman kominn í salnum eins og myndin hér að ofan sýnir (þó hún sé ekki í fókus). Í lok október var önnur keppni Bar(a)sVAr og auk þess hafa nemendur fengið heimsóknir frá Andra Snæ Magnasyni rithöfundi og fræðslufyrirlestrana Fávitar + karlmennskan. Síðan voru fleiri viðburðir sem hægt er að lesa um hér fyrir neðan. Það er því nóg um að vera eins og endranær í félagslífinu.
Afar vel heppnað hryllingshús

Afar vel heppnað hryllingshús

Í gær tóku nemendur í leiklistarvali Nesskóla og nemendur við VA höndum saman við uppsetningu á hryllingshúsi í húsnæði Verkmenntaskólans

launch va.is
Naglalakk á mánudegi

Naglalakk á mánudegi

Í morgunsárið stóð NIVA fyrir naglalökkun. Naglalökkunin var upphitun fyrir fyrirlestrana Fávitar + karlmennskan.

launch va.is
zoom_out_map

Hryllingshús í samstarfi við leiklistarval Nesskóla

zoom_out_map

Naglalakk á mánudegi

zoom_out_map

Fullur salur á fyrirlestrunum Fávitar + karlmennskan

Erasmus+ fréttir

Í lok október fóru þau Birgir og Salóme, kennarar, ásamt nemendunum Steinunni og Atla til Ítalíu til að taka þátt í verkefninu Will to MotivatE(U) á Ítalíu. Ferðasöguna má lesa í fréttinni hér fyrir neðan.


Í desember verður síðan næsti verkefnishlutinn og þá verður haldið til Ungverjalands þar sem nemendur og starfsfólk kynnist því að læra í gegnum leik. Kennararnir Salóme og Þuríður fara með nemendurna Steinunni, Ýr og Jónas.


Einnig er alltaf eitthvað að frétta af nemendum okkar í Viborg. Næsta hluta ferðasögu þeirra má lesa hér fyrir neðan.


Hér fyrir neðan má sjá frekari upplýsingar um erlent samstarf innan skólans.

Will to MotivatE(U)

Will to MotivatE(U)

Starfsfólk og nemendur tóku þátt í þriðja hluta verkefnisins Will to MotivatE(U) sem fór fram í Ítalíu á dögunum.

launch va.is
Viborgarfréttir 2

Viborgarfréttir 2

Þau Halldóra, Rebekka og Þórir eru í skiptinámi í samstarfsskóla okkar, Mercantec í Viborg. Þar er ýmislegt sem drífur á daga þeirra.

launch va.is

Erasmus+ verkefni

Erasmus+ verkefni í VA 2019 - 2021 KA102 - Nám og þjálfun -  Barist gegn brottfalli í VA II Styrkupphæð: 16.740 evrur Verkefnið felst í ferðum

launch va.is

Starfsfólk á faraldsfæti

Starfsfólk VA slær ekki slöku við til að halda áfram að þróa námið og skapa ný tækifæri í erlendu samstarfi. Í nóvember voru þeir, og verða, á faraldsfæti innanlands og erlendis.


Gústi félagsgreinakennari sótti ráðstefnu á vegum eTwinning í Keflavík dagana 10.-12. nóvember þar sem hann vann með norrænum kennurum að þróunarverkefnum.


Birgir verkefnastjóri var í Finnlandi dagana 11.-13. nóvember á tengslaráðstefnu á vegum Erasmus sem bar heitið Framtíð starfsmenntunar. Þar vann hann með kennurum frá fjölda evrópskra landa að skipulagningu framtíðarstyrkumsókna.


Lilja skólameistari heldur nú um mánaðarmótin til Lúxemborgar á tengslaráðstefnu á vegum eTwinning þar sem snillismiðjur eru á dagskrá og tengist það því vinnu okkar með FabLabið.

Tæknihornið - Trello

Þá er komið að næsta lið í tæknihorninu. Það er veflæga forritið Trello en einnig er hægt að fá smáforrit í síma eða spjaldtölvu. Trello er notað til skipulagningar og til þess að forgangsraða verkefnum. Það er sérstaklega hentugt nú þegar námsmatsdagarnir hefjast og skipuleggja þarf undirbúning fyrir próf. Það er hægt að deila með öðrum þannig að margir geta unnið í því sama á sama tíma.


Við hvetjum þig til að prófa Trello með því að smella hér.

Við erum virk á samfélagsmiðlum, kíktu á okkur þar! Við erum virk á samfélagsmiðlum, kíktu á okkur þar!

VA á Facebook
VA á Instagram
VA á Twitter

Á döfinni

Jólapeysudagur 2. desember

Síðasti kennsludagur 4. desember.

Vinnustofudagur 5. desember.

Námsmatsdagar 6.-18. desember.

Námsmatssýning 20. desember.

Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter