Smore logo
remove_red_eye 377
page background
page background

Fréttamolar úr MS

14. apríl 2023

Fréttamolar úr MS 14. apríl 2023

Dagsetningar framundan 📆 Dagsetningar framundan 📆

  • Mánudagur 17. apríl: Miðannarmat birtist í Innu kl. 20.
  • Fimmtudagur 20. apríl: Sumardagurinn fyrsti - frídagur
  • Föstudagur 21. apríl: Matsdagur
  • Vikan 24.-28. apríl: Umhverfisvika í MS skipulögð af umhverfisnefnd skólans

Niðurstöður úr sýnatökum í Aðalsteini Niðurstöður úr sýnatökum í Aðalsteini

Verkfræðistofan Efla hefur nú skilað skýrslu með niðurstöðum úr sýnatökum í Aðalsteini (nýbyggingu) og er skýrslan meðfylgjandi. Því miður var niðurstaðan sú að Aðalsteinn reyndist ekki myglufrír. Rektor fundaði með öryggisnefnd í vikunni og var þar farið yfir skýrsluna og Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir munu fara í þær viðgerðir sem þarf á Aðalsteini eftir að skólastarfinu lýkur í vor. Unnið er í því að fá fleiri loftræstitæki í hús nú þegar.

pdf
insert_drive_file
MENNTASKÓLINN VIÐ SUND, Rakaskimun og sýnataka, suðurbygging 16.03.2023
Download
1.1 MB

Styrkir úr afreks- og hvatningarsjóði Háskóla Íslands til framhaldsskólanema Styrkir úr afreks- og hvatningarsjóði Háskóla Íslands til framhaldsskólanema

zoom_out_map

Í ár verður úthlutað í sextánda sinn styrkjum úr Afreks- og hvatningarsjóði Háskóla Íslands til framhaldsskólanema sem ná afburðaárangri á stúdentsprófi og innritast í Háskóla Íslands. Frá upphafi hafa yfir 400 nýnemar við Háskólann hlotið styrki úr sjóðnum. Styrkirnir eru að fjárhæð 300.000 kr. hver auk 75.000 kr. til endurgreiðslu á skrásetningargjaldi við Háskóla Íslands.


Nemendur sem hafa íslensku sem annað mál eru sérstaklega hvattir til að sækja um.


Við val á styrkhöfum er tekið mið af:


  • framúrskarandi námsárangri á stúdentsprófi
  • virkni í félagsstörfum
  • árangri nemenda á öðrum sviðum, s.s. í listum og íþróttum
  • sérstökum framförum í námi eða góðum námsárangri þrátt fyrir erfiðar aðstæður


Frekari upplýsingar um sjóðinn er að finna undir eftirfarandi slóð: https://www.hi.is/sjodir/afreks_og_hvatningarsjodur_studenta_haskola_islands


Umsóknarfrestur um styrki úr Afreks- og hvatningarsjóði Háskóla Íslands er til 5. júní nk. líkt og umsóknarfrestur um nám við skólann.

Smelltu hér fyrir frekari upplýsingar um sjóðinn

Föstudagstónar 🎶 Föstudagstónar 🎶

Í myndbandinu hér að neðan má heyra framlag MS í Söngakeppni framhaldsskólanna sem fór fram þann 1. apríl. Ketill Ágústson var hreint út sagt frábær á sviðinu 👏👏👏

Ketill Ágústsson - Þessi stund með þér - Menntaskólinn við Sund - Söngkeppni Framhaldsskólanna 2023

Umhverfisvika í MS 24. - 28. apríl♻️🍀💚 Umhverfisvika í MS 24. - 28. apríl♻️🍀💚

Umhverfisnefnd nemenda MS með stuðningi kennara í grænfánaáfanga hefur sett saman glæsilega dagskrá fyrir umhverfisvikuna sem sjá má hér fyrir neðan. Nánari upplýsingar koma þegar nær dregur.

Mándagur 24.4.

  • Fatamarkaður
  • Gróðursetning
  • Zumba


Þriðjudagur 25.4

  • Fatamarkaður
  • Fyrirlestur Landverndar


Miðvikudagur 26.4

  • Fatamarkaður
  • Ungir umhverfissinnar
  • Grænn fatnaður


Fimmtudagur 27.4

  • Fatamarkaður
  • Kahoot spurningakeppni
  • Brúsasala


Föstudagur 28.4

  • Grænn fatnaður
  • Bíllaus dagur
  • Afhending Grænfánans

Njótið helgarinnar 🥰 Njótið helgarinnar 🥰

Menntaskólinn við Sund Msund
Menntaskólinn is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter