Smore logo
remove_red_eye 963
page background
Logo

Tæknótíðindi

7. maí 2025

Tæknótíðindi7. maí 2025

Dagsetningar framundan Dagsetningar framundan

  • 16. maí - Lokar fyrir kennslumat
  • 21. maí - Birting lokaeinkunna
  • 24. maí - Útskrift Tækniskólans
Helstu upplýsingar um útskrift Tækniskólans

Skóladagatal Tækiskólans á PDF formi er aðgengilegt hér!

Stóri ísdagurinn í Tæknó á föstudaginn Stóri ísdagurinn í Tæknó á föstudaginn

zoom_out_map

Í frímínútum á föstudagsmorgun (kl. 10.05 -10.25) fögnum við komandi sumri með ís í matsölum skólans. Hlökkum til að sjá þig!

Tækniskólinn sigrar í FRÍS Tækniskólinn sigrar í FRÍS

zoom_out_map
Rafíþróttalið Tækni­skólans fagnaði sigri í úrslitum FRÍS, Fram­halds­skóla­leikum Rafíþrótta­sam­taka Íslands, eftir spenn­andi viðureign við Fjöl­brauta­skólann í Breiðholti.


Við óskum liðinu okkar inni­lega til ham­ingju með árang­urinn og hvetjum öll til að fylgjast áfram með upp­bygg­ingu rafíþrótta í Tækni­skól­anum.

Frétt á vefsíðu

Brynja í öðru sæti í Söngkeppni framhaldsskólanna Brynja í öðru sæti í Söngkeppni framhaldsskólanna

zoom_out_map

Brynja Gísladóttir, nemandi í málaraiðn við Tækniskólann, hafnaði í öðru sæti í Söngkeppni framhaldsskólanna með lagið Skil ekki neitt.


Þetta var magnaður flutningur hjá Brynju og óskum við henni hjartanlega til hamingju með árangurinn!

Ungir frumkvöðlar verðlaunaðir Ungir frumkvöðlar verðlaunaðir

zoom_out_map

Þrjú lið frá Tækniskólanum komust í úrslit í keppninni Ungir frumkvöðlar sem stóð fyrir uppskeruhátíð nýverið. Liðin eru Andrúm og SR Tuning sem eru skipuð nemendum af K2 og Hvað skal gera? með nemendum af hönnunar- og nýsköpunarbraut. Alls tóku 152 lið þátt í keppninni, frá 17 framhaldsskólum, en 30 lið komust í úrslit.

Tvö lið frá Tækniskólanum hlutu verðlaun. Andrúm hlaut viðurkenningu fyrir bestu hönnunina og SR Tuning hlaut viðurkenningu fyrir áhugaverðustu tækninýjungina. Andrúm er skipað Kristófer Birgissyni,

Ngoan Önnu Giselu Kummer, Sigrúnu Ólafsdóttur og Stefan Erlendi Ívarssyni. Það eru svo Þórður Hugo Björnsson, Matas Jaudegis, Snorri Freyr Harðarson og Gestur Sigurðsson sem skipa lið SR Tuning en kemur úr Borgarholtsskóla.


Við óskum þátttakendum í Ungum frumkvöðlum hjartanlega til hamingju með frábæra frammistöðu.

Frétt á vefsíðu

Fjölbreyttar sýningar framundan Fjölbreyttar sýningar framundan

zoom_out_map

Maí er sannkallaður uppskerumánuður í Tækni­skól­anum en þá eru haldnar fjöl­margar sýn­ingar þar sem sjá má afrakstur af vinnu nem­enda yfir vet­urinn.


Við hvetjum ykkur til þess að kynna ykkur þá fjöl­breyttu viðburði sem fram undan eru í meðfylgjandi frétt.

Frétt á vefsíðu

Kennslumat og ábendingarkerfi skólans Kennslumat og ábendingarkerfi skólans

Nú er opið fyrir kennslumat í INNU. Í kennslumati svara nemendur spurningum um kennsluna í einstökum áföngum. Öll eru hvött til að taka þátt í kennslumatinu.


Kennslumatið er liður í sjálfsmati skólans og er góð þátttaka nemenda mjög mikilvæg. Athugið að ekki er hægt að rekja svör til einstakra nemenda. Þátttaka tekur ekki nema nokkrar mínútur.


Einnig er vakin er athygli á því að nemendur geta alltaf komið á framfæri ábendingum, kvörtunum og hrósi í gegnum ábendingakerfið á vefsíðu skólans.

Kennslumat í Innu

Alúð - Framsækni - Fjölbreytileiki Alúð - Framsækni - Fjölbreytileiki

Tækniskólinn - skóli atvinnulífsins
tskoli.is
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter