Smore logo
remove_red_eye 400
page background
Logo

Tæknótíðindi

28. apríl 2026

Tæknótíðindi28. apríl 2026

Dagsetningar framundan Dagsetningar framundan

  • 29. apríl - Skuggakosningar
  • 29. apríl - Klúbbakvöld
  • 30. apríl - Dimmission
  • 1. maí - Verkalýðsdagurinn - skólinn lokaður
  • 5. maí - Aðalfundur foreldrafélagsins 2026

Skuggakosningar Tækniskólans Skuggakosningar Tækniskólans

Skugga­kosn­ingar í Tækni­skól­anum fara fram 29. apríl næst­kom­andi. Nem­endur geta greitt atkvæði í mat­sölum skólans á Skólavörðuholti og í Hafnarfirði, auk þess sem kjörstaður verður í Hátíðarsalnum á Háteigs­vegi.


Kosningarnar hefjast kl. 12:00 og standa yfir til kl. 16:00 miðvikudaginn 29. apríl.


Skugga­kosn­ingar eru liður í því að efla lýðræðisvitund ungs fólks. Í þeim kjósa fram­halds­skóla­nemar sína full­trúa í sveit­ar­stjórn og gefa þannig vís­bend­ingu um vilja ungs fólks um land allt. Niðurstöður verða birtar að loknum kjör­degi sveit­ar­stjórn­ar­kosn­inga 16. maí.


Skemmtileg viðtöl við frambjóðendur flokkanna eru komin inn á TikTok-reikning Tækniskólans.

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
Nánari upplýsingar um skuggakosningar á vefsíðu Tækniskólans

Dimmission Dimmission

Fimmtudaginn 30. apríl

Dimmission Tækniskólans verður haldin fimmtudaginn 30. apríl.

Af því tilefni býður skólinn nemendum sem taka þátt í dimmission upp á hamborgara í mötuneyti Tækniskólans á Skólavörðuholti kl. 13:00.


Sama dag kl. 13:30, stendur nemendafélag Tækniskólans, NST, fyrir skemmtilegum ratleik í anddyri skólans. Við vonum að öll njóti dagsins saman.


Nánari upplýsingar um dimmison og skráningu er að finna hér: https://nst.is/dimission-nst26/

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size

Tækniskólinn framhaldsskólameistari í rafíþróttum Tækniskólinn framhaldsskólameistari í rafíþróttum

User uploaded image
zoom_out_map

Rafíþróttalið Tækni­skólans er sigurvegari Framhaldsskólaleika Rafíþróttasamtaka Íslands (FRÍS) 2026.

Liðið heitir Tæknó E-sports og er skipað nemendum af tölvubraut, rafvirkjun, opinni braut, í Raftækniskólanum og múraraiðn.


Liðið keppti í þremur vinsælum leikjum: Counter-Strike 2, Rocket League og Mario Kart World.


Vigfús Karl Steinsson, þjálfari liðsins, er gríðarlega ánægður með árangurinn.

„Ég er ótrúlega stoltur af liðinu. Þau hafa öll sýnt sig og sannað sem framúrskarandi einstaklingar og ég er þakklátur fyrir tímabilið með þeim!“


Við óskum liðinu okkar innilega til hamingju með árangurinn og hvetjum öll til að fylgjast áfram með uppbyggingu rafíþrótta í Tækniskólanum.

Tækniskólinn framhaldsskólameistari í rafíþróttum | Tækniskólinn

  Lið Tækniskólans kepptu í Counter Strike 2, Rocket League og Mario Kart World. Rafíþróttalið Tækniskólans sigraði í úrslitum Framhaldsskólaleika Rafí ...

launch tskoli.is

Aðalfundur foreldrafélagsins 2026 Aðalfundur foreldrafélagsins 2026

User uploaded image
zoom_out_map

Fimmtudaginn 5. maí 2026 kl.17:00

Fundurinn verður haldinn í hátíðarsal Tækniskólans við Háteigsveg fimmtudaginn 7. maí 2026 kl.17:00


Dagskrá

  • Skýrsla stjórnar

  • Umræður um starf foreldrafélagsins

  • Kosning í foreldraráð


Í tengslum við aðalfundinn viljum við sérstaklega hvetja foreldra og forsjáraðila nemenda Tækniskólans til að bjóða sig fram í foreldraráð skólans.

Félagar í foreldraráði eru foreldrar og forsjáraðilar nemenda við Tækniskólann og eiga allir forsjáraðilar rétt á aðild.
Tilgangur foreldraráðs er að stuðla að auknum gæðum skólans og bæta skilyrði og aðstæður nemenda til náms og þroska.


Helstu áherslur foreldraráðs eru meðal annars að:

  • Stuðla að aukinni þekkingu foreldra/forsjáraðila á réttindum og skyldum sínum og barna þeirra.
  • Auka sýnileika og hlutverk foreldra/forsjáraðila sem stuðningsaðila í skólastarfinu.
  • Vera samráðs- og samstarfsvettvangur foreldra/forsjáraðila.
  • Treysta samstarf foreldra/forsjáraðila, starfsfólks skólans og Nemendasambands Tækniskólans (NST).
  • Hvetja foreldra/forsjáraðila til að styðja við nám og velferð barna sinna.
  • Vera bakhjarl skólans og standa vörð um réttindi nemenda til menntunar og farsæls þroska.


Við vonumst til að sjá sem flest á fundinum og hvetjum þau sem eru áhugasöm til að taka þátt í þessu mikilvæga og gefandi starfi með okkur.


Fyrir nánari upplýsingar eða ef áhugi er fyrir þátttöku í foreldraráði er velkomið að hafa samband við Láru Debarunu Árnadóttur, félagslífsfulltrúa.

Niðurstöður skólafundar Niðurstöður skólafundar

User uploaded image
zoom_out_map

Miðvikudaginn 18. febrúar fór fram skólafundur í Tækniskólanum. Sam­kvæmt lögum um fram­halds­skóla skal halda skóla­fund a.m.k. einu sinni á skólaári en skóla­fundir eru mik­il­vægur lýðræðislegur vett­vangur fyrir nem­endur skólans til að koma sínum mál­efnum á fram­færi.


Fjórar spurningar sem mótaðar voru með fulltrúum í Skólaráði voru lagðar fram á fundinum:


  1. Hvernig getur skólinn undirbúið nemendur betur fyrir lífið eftir framhaldsskóla?

  2. Hvernig getur skólinn komið betur til móts við þarfir hvers og eins nemanda?

  3. Hvað er hægt að gera til þess að nemendum líði betur í skólanum?

  4. Ef þið mættuð skipuleggja félagslífið í Tækniskólanum, hvað mynduð þið setja á dagskrá?


Á fundinum komu fram skýrar áherslur nemenda um umbætur á skólastarfi. Nemendur vilja aukinn undirbúning fyrir lífið eftir framhaldsskóla, meðal annars aukið fjármálalæsi og fræðslu um hvers kyns lífsleikni, hagnýtara og verklegra nám og sterk tengsl við atvinnulífið. Að neðan má sjá samantekt á áherslum sem fram komu á skólfundi sem voru í reynd fjölmargir fundir sem dreifðust um fjölda stofa í húsum Tækniskólans.


Einnig kom fram áhersla á einstaklingsmiðað og sveigjanlegt nám, fjölbreyttar námsleiðir og matsaðferðir, aukið aðgengi að ráðgjöf og meiri áherslu á að raddir nemenda hafi raunveruleg áhrif.

Til að bæta líðan nemenda var lögð áhersla á eflingu andlegrar heilsu, aukið öryggi og stuðning, bætt samskipti og skipulag, sem og betri aðstöðu í skólanum, svo sem loftræstingu, húsgögn og slökunarrými.


Að lokum lögðu nemendur áherslu á fjölbreytt og virkt félagslíf með auknum viðburðum, klúbbastarfi og betri nýtingu á aðstöðu skólans, þar á meðal fleiri viðburðum á skólatíma.


Við þökkum nemendum og starfsfólki kærlega fyrir þátttökuna.

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size

Alúð - Framsækni - Fjölbreytileiki Alúð - Framsækni - Fjölbreytileiki

Tækniskólinn - skóli atvinnulífsins
tskoli.is
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter