Smore logo
remove_red_eye 593
page background
Logo

Tæknótíðindi

28. febrúar 2025

Tæknótíðindi28. febrúar 2025

Dagsetningar framundan Dagsetningar framundan

  • 3. mars - Námsmat - Miðannarmat birtist í Innu kl. 12:00
  • 4. mars - Námsmat
  • 5. mars - Starfsdagur - Skóli lokaður og lokaeinkunnir áfanga á fyrri spönn birtast í Innu kl. 16:00
  • 6. mars - Kennsla hefst á spönn 2
  • 10. mars - Valvika hefst
Á döfinni; viðburðir, stoðtímar, frídagar....

Skóladagatal Tækiskólans á PDF formi er aðgengilegt hér!

Vel heppnað árshátíðarball Vel heppnað árshátíðarball

Það var góð stemning á árshátíðarballi MH og Tækniskólans í Hvalasafninu í fyrradag. Ungmennin voru langflest til mikillar fyrirmyndar og skemmtu sér fallega. Það var frábært að fylgjast með slúttinu á kvöldinu þegar þau sungu lagið ,,Ég er kominn heim" undir svífandi hvölum eins og sjá má í þessu myndskeiði.
Árshátíð MH Tskóli Hvalasafni 26 feb 2025

Skólinn lokaður 5. mars Skólinn lokaður 5. mars

Við vekjum athygli á því að Tækni­skólinn verður lokaður miðvikudaginn 5. mars vegna starfsdags kennara.

Klúbbakvöld ENIAC Klúbbakvöld ENIAC

zoom_out_map

Klúbba­kvöld Eniac eru haldin alla miðviku­daga kl. 17:00–21:00 á Háteigsvegi nema þegar það er ekki skóli.


Allir nemendur í Tækniskólanum geta stofnað klúbb og stjórn NST aðstoðar t.d. að finna aðstöðu í skólanum, fá spil og þess háttar.


Klúbbar vikunnar eru auglýstir á Discord server ENIAC. Endilega fylgist með þar!
Kíktu á Discord

Valvika Valvika

zoom_out_map
Í valvikunni 10.–14. mars staðfesta nemendur í dagskóla umsókn sína um áframhaldandi skólavist á næstu önn.


Það er gert með því að yfirfara og staðfesta val næstu annar í Innu og greiða álögð skólagjöld. Þá þurfa þeir ekki að sækja aftur formlega um skólavist.


Nemendur geta einnig sótt um brauta­skipti í valvikunni og síðasti dagur til að óska eftir braut­ar­skiptum er í lok föstu­dagsins 14. mars.

Nánari upplýsingar um valviku

Fögnum nýrri spönn með vöfflukaffi 6. mars Fögnum nýrri spönn með vöfflukaffi 6. mars

zoom_out_map

Fimmtudaginn 6. mars fögnum við nýrri spönn með vöfflukaffi. Þá mæta stjórnendur skólans með vöfflujárn í vinnuna og baka ofan í öll sem kunna að meta góðar vöfflur.


Vöffl­urnar verða í boði í mat­salnum á Skólavörðuholti, á Háteigs­vegi og í Hafnarfirði í frímínútunum kl. 14:25.


Láttu endilega sjá þig og nældu þér í rjúkandi heita vöfflu!

Vel sóttar leiksýningar Vel sóttar leiksýningar

Föstudaginn 21. febrúar frumsýndi leikfélagið MARS leikritið Klú sem byggði á morðgátuspilinu Clue. Leiksýningarnar gengu vonum framar, voru stórkemmtilegar og var uppselt á tvær sýningar af þremur.


Við óskum nemendum í leikfélaginu hjartanlega til hamingju með þessa glæsilegu uppsetningu. Í haust gefst svo nýtt tækifæri til þess að taka þátt í leiksýningu vetrarins 25/26.

zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map

Alúð - Framsækni - Fjölbreytileiki Alúð - Framsækni - Fjölbreytileiki

Tækniskólinn - skóli atvinnulífsins
tskoli.is
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter