Smore logo
remove_red_eye 1.2K
page background

Hvalrekinn

19. mars 2024

Hvalrekinn  19. mars 2024
Hvalrekinn 19. mars 2024
zoom_out_map

Páskakveðja

Ágætu foreldrar


Senn líður að páskafríi sem hefst í lok vikunnar eða 22. mars.


Áður en að páskafríinu kemur ætlum við að brjóta upp hefðbundið skólastarf og hafa þemadaga hjá okkur frá miðvikudegi og út vikuna. Yfirskrift þemadaganna er Hreyfing - hugur - heilsa. Munu nemendur vinna fjölbreytt verkefni eftir aldri útfrá yfirskrift þemadaganna.


Föstudaginn 22. mars verður opið hús í skólanum frá kl. 10:00 til 11:20 þar sem foreldrar eru hjartanlega velkomnir til að sjá afrakstur vinnu nemenda á þemadögum. Vonum við að sem flestir geti gefið sér tíma til að líta við.


Hafið það sem best og gleðilega páska.



Kristinn Guðlaugsson, skólastjóri.

zoom_out_map

Hvaleyrarskóli er hnetulaus skóli

Þar sem nemendur og starfsmaður skólans er með bráðaofnæmi fyrir hnetum er Hvaleyrarskóli hnetulaus skóli og biðjum við foreldra jafnt sem starfsfólk að virða það. Nemendur og starfsfólk mega því ekki koma með hnetur í skólann.
zoom_out_map

Dagskrá Þemadaga miðvikudag og fimmtudag

Dagana 20. - 22. mars (miðvikudag til föstudag) eru þemadagar hjá okkur í Hvaleyrarskóla.

Þessa daga er skert viðvera nemenda í skólanum en skólinn hefst kl. 8:20 og stendur til kl. 13:20 nema á föstudag þá er skóli til hádegis.

Nemendur sem eru skráðir í Holtaseli fara að skóladegi loknum í Holtasel.

zoom_out_map

Opið hús fyrir foreldra og gesti

Föstudaginn 22. mars kl. 10:00 - 11:20 viljum við bjóða foreldrum að koma og skoða afrakstur þemadaganna.

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest á opnu húsi á föstudaginn.

zoom_out_map

Óviðeigandi orðbragð

Undanfarið höfum við starfsfólk Hvaleyrarskóla orðið meira vör við óviðeigandi orðbragð milli nemenda skólans. Í sumum tilfellum kemur orðbragðið út frá tónlistarmyndböndum sem nemendur eru að hlusta á og fara að nota eða tileinka sér gagnvart hvort öðru.

Í allt of mörgum tilfellum er orðbragðið að beinast gegn samnemendum. Það er mikilvægt að við öll tökum höndum saman og ræðum við okkar börn hvernig við komum fram við hvert annað. Þá er mikilvægt að hafa gildi skólans að leiðarljósi KURTEISI - ÁBYRGÐ - SAMVINNA.

zoom_out_map

Símafrí í apríl

Á fundir fræðsluráð Hafnarfjarðar þann 21. febrúar var ákveðið að í apríl yrði símafrí í grunnskólum Hafnarfjarðar. Þá eiga símar nemenda að vera ofan í tösku eða inni í skáp nemenda frá því skóladagur hefst að morguni og honum líkur seinnipartinn. Sjá nánar í fundargerð fræðsluráðs.

Með tillögunni vonast fræðsluráð til þess að tillaga þessi leiði af sér jákvæðan skólabrag, bæti samskipti og styrki tengslamyndun á meðal barna og starfsfólks í grunnskólum bæjarins.

Bókasafnið verður opið í frímínútum fyrir elstu nemendur skólans. Búið er að bæta við spila- og púsleign skólans.

zoom_out_map

Vímuefnafræðslan VELDU fyrir foreldra og forráðamenn

Vímuefnafræðslan VELDU fyrir foreldra og forráðamenn verður aðgengileg 20. - 22. mars. Fræðslan er rafræn og tekur um 50 mínútur. Nánari upplýsingar eru hér .
zoom_out_map

Lestarsprettur

Lestrarsprettur var 4.-15. mars. Markmiðið var að efla orðaforða og lesskilning með gagnvirkum lestri og bar verkefnið yfirskriftina: Skilur þú?

Gagnvirkur lestur er lesskilningsaðferð sem hefur verið mikið rannsökuð og eru niðurstöður samhljóma um að aðferðin skilar góðum árangri er kemur að skilningi í öllum greinum. Um gagnvirkan lestur má t.a.m. lesa hér og hér.

zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map

Skólinn hefst eftir páskaleyfi 2. apríl

  • Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 2. apríl.
zoom_out_map

Skóladagatal Hvaleyrarskóla 2024 - 2025

Skólaráð Hvaleyrarskóla samþykkti skóladagatal næsta árs á fundi sínum miðvikudaginn 13. mars. Skóladagatalið verður tekið fyrir í fræðsluráði miðvikudaginn 20. mars.


  • Hér má sjá Skóladagatal Hvaleyrarskóla 2024-2025.
  • Hér má líka sjá allra fyrstu drög skóladagatals grunnskóla Hafnarfjarðar 2025-2026 (skólasetning og vetrarfrí).
zoom_out_map

Heimanám - Hvatning

Við viljum minna á að samkvæmt reglum um ástundun í grunnskólum Hafnarfjarðar er nám nemenda sem er í leyfi á ábyrgð foreldra. Því viljum við benda á að allar áætlanir nemenda í 1. – 10. bekk má finna inn á Mentor og hjá nemendum með spjaldtölvur/Ipad eru verkefni, áætlanir og annað efni er einnig að finna inni á Google Classroom.

Foreldrar geta nálgast námsbækur og önnur gögn í skólanum.


We would like to remind you that according to the rules on school attendance in Hafnarfjörður, the education of students who are on leave is the responsibility of the parents. We would also like to point out that all plans for students in 1st - 10th grade can be found on Mentor. In addition, for students with Ipads, assignments, plans and other material can also be found on Google Classroom.

Parents can arrange to get books from the school.

Myndir úr skólastarfinu Myndir úr skólastarfinu

zoom_out_map

Samvera hjá 1. LBH

zoom_out_map

Samvera hjá 1 .EÞ

zoom_out_map

Upplestrarkeppnin hjá 7. bekk

zoom_out_map

Bekkjartenglar geta sótt um styrk fyrir viðburðum

Foreldrafélag Hvaleyraskóla hefur ákveðið að styrkja bekkjatengla fyrsta til fimmta bekkjar um hámark 10.000 kr. á önn til þess að gera eitthvað skemmtilegt með bekkjunum. Fyrirkomulagið er þannig kvittanir fyrir útlögðum kostnaði auk samantektar á heildarkostnaði er send á póstfang foreldrafélagsins (foreldrafelag@hvaleyrarskoli.is). Þar sem koma þarf fram nafn bekkjar og tilefni (hvað var gert með bekkjunum) og nafn, kennitala og bankaupplýsingar bekkjatengils. Foreldrafélagið gefur sér u.þ.b. viku til að endurgreiða útlagðan kostnað.
zoom_out_map

Hátíð á Holtinu

Við viljum minna á að hverfishátíð foreldrafélags Hvaleyrarskóla og Hvaleyrarskóla verður haldin fyrir framan skólann miðvikudaginn 5. júní frá kl. 17:00 - 19:00.

Munið að taka daginn frá og nánari dagskrá kemur þegar nær dregur.

Páskakveðja frá Hvaleyrarskóla Páskakveðja frá Hvaleyrarskóla

Páskakveðja Hvaleyrarskóli 2020
Hvaleyrarskóli 30 ára

KURTEISI ~ ÁBYRGÐ ~ SAMVINNA KURTEISI ~ ÁBYRGÐ ~ SAMVINNA

zoom_out_map

Hvalrekinn

Opnunartími skrifstofu:

Kl. 7:45 - 15:00 mán-fim

Kl. 7:45 - 14:00 fös



Fréttabréf Hvaleyrarskóla. Sent á foreldra nemenda skólans og skólasamfélagið.

Email: hvaleyrarskoli@hvaleyrarskoli.is
Website: www.hvaleyrarskoli.is
Location: Akurholti 1
Phone: 354 565 0200
Facebook: https://www.facebook.com/hvaleyri/

Hvaleyrarskóli Hafnarfirði
Hvaleyrarskóli is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter