Smore logo
remove_red_eye 190
page background

Fréttabréf Flóaskóla

september 2025

FréttabréfFlóaskólaseptember 2025

Kæra skólasamfélag Kæra skólasamfélag

Skólastarf fer prýðilega vel af stað og allt útlit fyrir gott skólaár framundan. Skólasetning fór fram í Þjórsárveri 25. ágúst síðastliðinn, í yndislegu veðri. Það var gaman að sjá hversu margir komu til að vera við skólasetninguna. Fyrstu dagar skólaársins hafa að mestu verið nýttir til útikennslu enda hefur veðrið leikið við okkur. Vonandi verður svo áfram því í næstu viku stefnum við á enn meiri útiveru þar sem hápunkturinn er föstudaginn 5.9. með Fjölskyldudegi og Flóamóti. Vonandi sjá sem flestir sér fært að heimsækja okkur þann dag.

Við hlökkum til samstarfsins á komandi skólaári

bestu kveðjur úr Flóaskóla

Þórunn Jónasdóttir

User uploaded image
zoom_out_map

Fjölskyldudagur í Flóaskóla föstudag 5.9.

Fjölskyldudagur Flóaskóla verður haldinn föstudaginn 5. september nk. Þá eru nemendur, fjölskyldur þeirra og starfsfólk hvött til að koma ríðandi á hestum í skólann. Búið er að taka frá girðingu hjá Jóni í Villingaholti þar sem hægt er að geyma hrossin á skólatíma. Hópreið verður frá Lyngholti og eru allir sem áhuga hafa velkomnir að taka þátt í henni. Lagt verður af stað frá Lyngholti kl 8:30. Fólk sem kemur ríðandi úr öðrum áttum er hvatt til að tala sig saman.

Fjölskyldudagurinn er skertur skóladagur og því verða skólabílar á ferðinni á öðrum tíma en venjulega. Skóladagurinn hefst kl 9:00 og er heimkeyrsla skólabíla kl 12:30. Knapar fara að gera sig klára til heimferðar á sama tíma.

Dagskrá Fjölskyldudagsins hefst kl 9:30 og verður með fjölbreyttu sniði. Ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Boðið verður upp á andlitsmálningu, hestar verða teymdir undir börnum, farið verður í útileiki, hægt að prófa tálgun, þrautabrautir og fleira. Ef vel viðrar verður jafnvel kveikt upp í báli í útieldihúsinu okkar og grillað brauð.

10. bekkur Flóaskóla hefur fjáröflun fyrir útskriftarferðina sína með því að bjóða til sölu bakkelsi á sanngjörnu verði. Ath að ekki er posi á staðnum en hægt að greiða með pening eða millifærslu.

Kl 10:00 hefst Flóamótið sem er íþróttamót fyrir krakka 16 ára og yngri, haldið í samstarfið við Ungmennafélagið Þjótanda. Þar keppa krakkar í eftirtöldum greinum:

4. bekkur og yngri: 60 m hlaup, 400 m hlaup, langstökk og kúluvarp

5. – 7. bekkur: 60 m hlaup, 400 m hlaup, langstökk og kúluvarp

8. – 10. bekkur 80 m hlaup, 400 m hlaup, langstökk og kúluvarp

Einnig verður keppt í sérstökum aðstandendaflokki fullorðinna í 60 m hlaupi. Þar geta foreldrar og aðrir fjölskyldumeðlimir látið ljós sitt skína og látið gamla keppnisdrauma rætast.

Krakkar skrá sig til þátttöku á staðnum og eru foreldrar hvattir til að rétta hjálparhönd við framkvæmd mótsins. Umf Þjótandi býður upp á ís í mótslok.

Í hádeginu býður Flóaskóli öllum upp á grillaða hamborgara.

Við vonum að sem flestir sjái sér fært um að koma til okkar í Flóaskóla og hefja skólaárið með skemmtilegum og eftirminnilegum hætti. Hlökkum til að sjá ykkur.

User uploaded image
zoom_out_map

Úti- og grenndarnámsdagar

Í komandi viku eru úti- og grenndarnámsdagar í Flóaskóla, valinn verður dagur fyrri hluta viku þegar veðurspá er góð.

Yngsta stig fer að Uppsölum og 5.-8. bekkur fer í Hveragerði. Ferðirnar eru á skólatíma og farið með skólabílum.

9. og 10. bekkur fara í tveggja daga ferð í Þórsmörk, stefnt er að þriðjudegi til miðvikudags.

Smiðjudagar með skólunum í uppsveitum Árnesþings

25.-26. september eru smiðjudagar.

Fimmtudag 25. eru smiðjur hjá miðstigi þær eru haldnar á skólatíma og verða að þessu sinni í Þjórsárskóla.

Fimmtudag og föstudag eru smiðjur hjá elsta stigi í Reykholtsskóla, kennt verður fram á dag á fimmtudeginum. Nánari tilhögun verður send foreldrum á elsta stigi þegar hún liggur fyrir.

User uploaded image
zoom_out_map

Vetrarstarf Þjótanda 2025-2026

Æfingar fyrir 2.–4. bekk

Æfingar fyrir nemendur í 2.–4. bekk verða á föstudögum innan stundatöflu Flóaskóla. Þær hefjast að loknum hádegismat og standa til kl. 13:45.

Æfingarnar fara fram á íþróttasvæðinu við Flóaskóla í upphafi haustannar en flytjast inn í Félagslundi eða Þingborg þegar líða tekur á haustið. Auglýst betur síðar.

Möguleiki á þátttöku nemenda í 1. bekk fer eftir fjölda skráninga úr 2. – 4. bekk. Ef sá möguleiki opnast verður það auglýst sérstaklega síðar í haust.

Skráning fyrir veturinn þarf að berast fyrir 5. september á netfangið orvar@floaskoli.is.

Fyrsta æfing verður föstudaginn 30. ágúst. Öllum velkomið að prófa að vera með.

Þjálfari: Örvar Rafn Hlíðdal.

Æfingar fyrir 5.-6. bekk

Æfingar fyrir 5.–6. bekk verða á miðvikudögum í vetur. Þær hefjast á útisvæðinu við Þingborg því ekki er hægt að vera inni í salnum vegna framkvæmda. Æfingarnar færast sennilega tímabundið inn í Félagslund síðar í haust og verður það auglýst sérstaklega.

Rúta keyrir frá Flóaskóla kl 13:40 og æfingunni líkur kl 15:30. Foreldrar sækja. Þjálfarar eru þau Guðmunda Bríet Steindórsdóttir og Helgi Reynisson. Fyrsta æfing verður 3. september.

Skráning þarf að berast fyrir fyrstu æfingu á netfangið gbriets@gmail.com svo hægt sé að skipuleggja akstur.

Æfingar fyrir 7.-10. bekk

Æfingar fyrir 7.-10. bekk verða á miðvikudögum frá 15:30-17:00. Þær hefjast á útisvæðinu við Þingborg en færast svo sennilega tímabundið inn í Félagslund þegar líður á haustið. Þjálfari Guðmunda Bríet Steindórsdóttir. Foreldrar keyra og sækja. Fyrsta æfing 3. september. Ekki er nauðsynlegt að skrá sig á þessar æfingar.

Á Þjótandaæfingum verða stundaðar fjölbreyttar og skemmtilegar æfingar í bland við leiki og frjálsar íþróttir. Foreldrar eru hvattir til að skiptast á um akstur til og frá æfingum.

Allar íþróttaæfingar Umf. Þjótanda eru gjaldfrjálsar, en foreldrar eru hvattir til að greiða árgjald félagsins þegar það verður innheimt.

Í vetur verða haldnir Héraðsleikar HSK og Aldursflokkamót HSK. Þetta eru skemmtileg mót þar sem margir íþróttagarpar hafa tekið sín fyrstu skref í keppni.

Umf Þjótandi stefnir á að mæta á þessi mót með öflugan keppendahóp að vanda.

Flóamót

Umf Þjótandi heldur sitt árlega Flóamót föstudaginn 5. september, á íþróttavellinum við Flóaskóla, milli kl 10:00 – 11:30. Mótið er að þessu sinni haldið í tengslum við Fjölskyldudag Flóaskóla en þann dag er uppbrot á hefðbundnum skóladegi og fjölskyldur nemendur hvattir til að koma í skólann og taka þátt í fjölbreyttri dagskrá.

Flóamótið er fyrir krakka 16 ára og yngri. Keppt er í þremur aldursflokkum í spretthlaupi, langstökki, kúluvarpi og 400/800 m hlaupi.

Við hvetjum unga sem aldna til að taka þátt í starfi Umf Þjótanda og eru nýir félagsmenn alltaf velkomnir. Frekari upplýsingar um starf félagsins veitir Guðmund Bríet Steindórsdóttir, formaður á netfangið gbriets@gmail.com

pdf
insert_drive_file
Vetrarstarf-Þjótanda-25-26.pdf
Download
264.3 KB
Þórunn Jónasdóttir
Þórunn is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter