Smore logo
remove_red_eye 470
page background
Logo

Fréttabréf maí

5.tbl. 16. árg.1. maí 2025

Fréttabréf maí  5.tbl. 16. árg.1. maí 2025
Fréttabréf maí 5.tbl. 16. árg.1. maí 2025

Á döfinni Á döfinni

1. maí - Verkalýðsdagurinn

7. maí - Fiðringur í Hofi

12.-14. maí - Skólaferðalag 10. bekkjar.

15. maí - 6. bekkur heimsækir Hælið á Kristnesi, verkefnið heitir sultuplástur.

16. maí - Starfsdagur

21.-23. maí -Frjálsíþróttamót verður í Boganum (fyrir 4-7.bekk)

22. - 23. maí - Orri óstöðvandi á leikferð um landið í boði fyrir 5., 6. og 7.bekk.

26.maí - Þríþraut, verður í Glerárlaug og þar í kring (fyrir 7.bekk)

28. maí - Unicef hlaupið Naustaborgum og er á dagskrá (fyrir allan skólann)

2. júní -Vorþemadagur

3. júní -Vorþemadagur

5. júni -Dagur nýrra námshópa

5.júní - Útskrift 10.bekkjar

6. júní - Skólaslit 1. - 9.bekkja

Kæra skólasamfélag

Það vorar í lofti og ekki margir skóladagar eftir af þessu skólaári. Okkur miðar vel við að raða niður í kennarateymi fyrir næsta skólaár og gert er ráð fyrir að stundaskrá skólans verði með svipuðu sniði og verið hefur í vetur.

Það er einstaklega ánægjulegt að sjá hvað nemendur sýndu mikinn metnað og áhuga á árshátíðinni, þar sem margvíslegir hæfileikar þeirra fengu að njóta sín. Þetta er frábært dæmi um hvernig nemendur geta unnið saman að sameiginlegu markmiði og náð góðum árangri undir handleiðslu kennara sinna og annarra.

Annars er allt gott að frétta úr skólanum, dagskráin í maí inniheldur fasta liði eins og venjulega s.s útskriftarferð 10. bekkjar. Íþróttakennslan færist út og við reynum líka að vera meira úti þessa daga í öðrum greinum svo gott er að börnin komi klædd eftir veðri.


Með kærri kveðju

Stjórnendur og starfsfólk Naustaskóla

Ganga vel frá hjólum og hlaupahjólum og notum hjálm

Það er vor í lofti, snjórinn er sem betur fer að hverfa hratt og þá eru margir nemendur sem koma á hjóli í skólann sem er mjög jákvætt. Við hvetjum alla til að hafa lása á hjólunum sínum og ganga vel frá þeim fyrir utan skólann þegar þau mæta. Mikilvægt er að allir taki umræðuna heima um mikilvægi þess að nota alltaf hjálm hvort sem verið er á rafhjólum, hlaupahjólum eða reiðhjólum og hvort sem vegalengdir eru stuttar eða lengri.

Útivistartími breytist í maí

Útivistartími barna og unglinga tekur breytingum 1. maí. Frá þeim tíma mega 12 ára börn og yngri vera úti til klukkan 22.00. Unglingar á aldrinum13 til 16 ára mega vera úti til klukkan 24.00. Börn mega ekki vera á almannafæri utan fyrrgreinds tíma nema í fylgd með fullorðnum. Bregða má út af reglunum fyrir síðartalda hópinn þegar unglingar eru á heimleið frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu. Aldur miðast við fæðingarár. Foreldrum/forráðamönnum er að sjálfsögðu heimilt að stytta þennan tíma og setja börnum sínum reglur um styttri útivistartíma.


Útivistarreglurnar eru samkvæmt barnaverndarlögum. Þeim er m.a. ætlað að tryggja nægan svefn en hann er börnum og unglingum nauðsynlegur. Svefnþörfin er einstaklingsbundin en þó má ætla að börn og unglingar á grunnskólaaldri þurfi 10 tíma svefn á nóttu.


Mikilvægt er að fylgja því eftir að börn og unglingar fái nægan svefn. Í því felst m.a. að ganga úr skugga um að þau séu ekki í tölvunni þegar þau eiga að vera komin í rúmið

Könnun foreldrafélags Naustaskóla fyrir þátttöku á haustgleði 2025

Í apríl var send út könnun á vegum foreldrafélagsins þar sem spurt var um vilja ykkar foreldra til að mæta með barninu ykkar á haustgleði og eða taka þátt í að undirbúa slíka hátíð sem stæði í 1-2 klukkustundir. Könnunin tekur um 5 mín og það væri gagnlegt fyrir foreldrafélagið að fá betri svörun. Hér er tengilll á könnunina.

Óskilamunir

Gott er að huga að því fyrir skólalok hvort barnið þitt geti átt óskilamuni í skólanum. Einnig er eitthvað af tertufötum frá því á árshátíðinni sem gott væri að yrðu sótt. En reglan er að eftir skólaslit er farið með það sem ekki er sótt og gefið áfram.

Skólaslit

Kl. 09:00 mæta nemendur 1.,3., 5., 7. og 9.bekkjar á sal skólans og fara síðan inn á sín svæði.

Kl. 11:00 mæta nemendur 2., 4., 6. og 8.bekkjar á sal skólans og fara síðan inn á sín svæði.


Foreldrar/forráðamenn eru velkomnir á skólaslit.

• Frístund er lokuð á skólaslitadaginn.


Útskrift 10.bekkjar fer fram á sal skólans kl. 17:00 – 5. júní, að henni lokinni er kaffihlaðborð fyrir 10.bekk og aðstandendur auk starfsfólks. Kaffiboðið er í boði foreldra 9. bekkjar en þessi skemmtilega hefð hefur skapast í Naustaskóla og munu 9.bekkingar njóta þess þegar röðin kemur að þeim að útskrifast.

zoom_out_map

Naustaskóli

Tölvupóstur: naustaskoli@akureyri.is

Heimasíða: www.naustaskoli.is

Hólmatún, Akureyri, Iceland


Sími 460 4100

Margret Karlsdottir
Margret is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter