Smore logo
remove_red_eye 1K
page background
page background

Hvalrekinn

9. desember 2022

Hvalrekinn 9. desember 2022

Jólakveðja frá starfsfólki Jólakveðja frá starfsfólki

zoom_out_map

Við óskum ykkur og fjölskyldum ykkar gleði- og hamingjuríkra jóla.


Megi gæfa og góð heilsa umvefja ykkur um hátíðina og á nýju ári.


Með kærleikskveðju,

Stjórnendur og starfsfólk Hvaleyrarskóla.

zoom_out_map

Miðvikudagurinn 14. desember

  • Jólapeysudagur - bæði starfsmenn og nemendur eru hvattir til að koma í jólapeysu.
  • Jólamatur hjá Skólamat.
zoom_out_map

Litlu-jólin þriðjudaginn 20. desember

Nemendur mæta sem hér segir:

  • Kl. 8:20 - 10:30, nemendur í 1. og 2. bekk
  • Kl. 9:00 - 11:00, nemendur í 3. og 4. bekk
  • Kl. 9:50 - 11:50 nemendur í 5., 6. og 7. bekk
  • Kl. 9:15 - 11:15 nemendur í 8., 9. og 10. bekk
  • Gæsla verður fyrir þá nemendur í 3. og 4. bekk sem þurfa frá kl. 8:20 - 9:00.
  • Þeir nemendur sem eru skráðir í Holtasel geta farið í Holtasel að lokinni dagskrá með umsjónarkennara.
  • Athugið að það er ekki hádegismatur þennan dag og mikilvægt að nemendur er fara í Holtasel komi með hádegisnesti. Það verður síðan síðdegishressing.
zoom_out_map

Öðruvísi jóladagatal hjá nemendum í yngstu deild

Nemendur í yngstu deild taka þátt í Öðruvísi jóladagatali sem er á vegum SOS barnaþorpa. Þetta er fimmta árið í röð sem við tökum þátt en í fyrra safnaðist xxx þúsund krónur sem fóru í að styrkja nýtt fjölskyldueflingarverkefni SOS barnaþorpana í Malaví í ár verður áfram safnað í fjölskylduverkefnið. Tilgangurinn með fjölskyldueflingunni er að hjálpa sárafátækum barnafjölskyldum að standa á eigin fötum.

Jóladagatalið gengur út á það að á hverjum degi sjá nemendur myndbönd frá ólíkum löndum í heiminum.

Í ár ætl­um við að heim­sækja Armen­íu, Eþí­óp­íu, Víet­nam, Perú, Fíla­beins­strönd­ina, Makedón­íu, Tans­an­íu, Nepal og Mar­okkó. Hverj­um degi fylgja um­ræðupunkt­ar til að nem­end­ur geti rætt sam­an um efni dags­ins og einnig verð­ur hægt að vinna ýmis verk­efni í tengsl­um við hvern dag.

Kennsla hefst að loknu jólafríi samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 3. janúar 2023 Kennsla hefst að loknu jólafríi samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 3. janúar 2023

zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map

Á döfinni í janúar 2023

  • Kennsla hefst þriðjudaginn 3. janúar

  • Lesferill – allir nemendur prófaðir í 1. – 10. bekk

  • Orðarún – nemendur í 3. – 8. bekk prófaðir

  • Logos skimun, jan – feb. nemendur í 3. bekk

  • Valgreinar vorannar hefjast 16. janúar

  • Námsviðtöl föstudaginn 3. febrúar

zoom_out_map

Ævar rithöfundur í heimsókn

Ævar Þór Benediktsson vísindamaður komu til okkar miðvikudaginn 30. nóvember og las upp úr bók sinni Drengurinn með ljáinn. Ævar las fyrir nemendur á mið- og unglingastigi.


Hann færði einnig nemendum bókarmerki sem þau gátu sótt á bókasafnið daginn eftir.

zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map

Piparkökumálun foreldrafélagsins

Sunnudaginn 4. desember hélt foreldrafélagið piparkökudag með piparkökumálun á sal skólans. Málunin stóð frá kl. 11:00 til 13:00. Viðburðurinn var fyrir nemendur úr öllum bekkjum skólans ásamt fjölskyldum.

Foreldrafélagið bauð upp á piparkökur og glassúr. Einhverjir mættu með sitt eigið kökuskraut.


Þá var 10. bekkur með fjáröflun fyrir ferð þeirra til Danmerkur í vor. Þau seldu kaffi, kakó og vöfflur. Mætingin var mjög góð og það góð að nemendur seldu upp allt það sem þau ætluðu að selja.


Það var ánægjulegt að loksins gat foreldrafélagið haldið viðburð þar sem allir gátu komið. Mjög góð mæting var af nemendum og foreldrum.

zoom_out_map

Dagur íslenskrar tungu 16. nóvember

Dagur íslenskrar tungu var haldinn hátíðlegur á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar 16. nóvember. Þann dag lukum við lestrarspretti sem staðið hafi í nokkrar vikur áður. Nemendur lásu sem aldrei fyrr og á hverri deild fylltu nemendur út í hvali eftir því hvað þau höfðu lesið mikið.

Í hádeginu miðvikudaginn 16. nóvember söfnuðust allir nemendur síðan saman á sal skólans þar sem við lögðum áherslu á mikilvægi lesturs. Einnig færði stjórn foreldrafélags Hvaleyrarskóla skólanum að gjöf nýútkomna bók Á Sporbaug en bókin er safn nýyrði eftir Jónas Hallgrímsson. Færum við stjórn foreldrafélagsins bestur þakkir fyrir höfðinglega gjöf.

Því næst sungu allir lagið Á íslensku má alltaf finna svar og síðan skólasönginn. Þetta var einstök stund.

Þegar viðburðinum í salnum lauk héldu allir nemendur í sínar heimastofur og beið þeirra þar kökubiti og mjólk sem MS gaf í tilefni dagsins.

zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map

Bekkjartenglar geta sótt um styrk fyrir viðburðum

Eins og undanfarin ár hefur Foreldrafélag Hvaleyraskóla ákveðið að styrkja bekkjartengla í 1. - 5. bekk um hámark 10.000 kr. á önn til þess að gera eitthvað skemmtilegt með bekkjunum. Fyrirkomulagið er þannig að kvittanir fyrir útlögðum kostnaði auk samantektar á heildarkostnaði er send á póstfang foreldrafélagsins (foreldrafelag@hvaleyrarskoli.is). Þar sem fram þarf að koma er; nafn bekkjar og tilefni (hvað var gert með bekknum) og nafn, kennitala og bankaupplýsingar bekkjartengils. Foreldrafélagið endurgreiða útlagðan kostnað eftir um viku.


Þess má geta að enn vantar bekkjartengla í nokkra bekki. Þeir sem hafa áhuga sendið póst á Kristin skólastjóra eða Lisu formann foreldrafélagsins. Það er mikilvægt að efla starfið í foreldrafélaginu og í kringum börn okkar.

Skólasöngur Hvaleyrarskóla - Hvaleyrarskóli 30 ára

KURTEISI ~ ÁBYRGÐ ~ SAMVINNA KURTEISI ~ ÁBYRGÐ ~ SAMVINNA

zoom_out_map

Hvalrekinn


Opnunartími skrifstofu:

Kl. 7:45 - 15:30 mán-fim

Kl. 7:45 - 14:00 fös



Fréttabréf Hvaleyrarskóla. Sent á foreldra nemenda skólans og skólasamfélagið.

Email: hvaleyrarskoli@hvaleyrarskoli.is
Website: www.hvaleyrarskoli.is
Location: Akurholti 1
Phone: 354 565 0200
Facebook: https://www.facebook.com/hvaleyri/

Hvaleyrarskóli Hafnarfirði
Hvaleyrarskóli is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter