Smore logo
remove_red_eye 111
page background

DJÚPAVOGSSKÓLI

HUGREKKI - VIRÐING - SAMVINNA

DJÚPAVOGSSKÓLI HUGREKKI - VIRÐING - SAMVINNA

SEPTEMBER

  • 15.sept, Dagur íslenskrar náttúru, göngu- og gestadagur.
  • 16.sept, Endurmenntunardagur starfsfólks á Austurlandi...NEMENDUR EIGA FRÍ
  • 22.-23.sept, Utis, endurmenntun starfsmanna (ekki á nemendatíma).
  • 26.sept, Evrópski tungumáladagurinn.

NÆSTA VIKA

Mánudagur 12.september
  • Mætum hress og kát


Þriðjudagur 13.september

  • 14:20 - 15:50 Fagfundur


Miðvikudagur 14.september

  • Góður dagur til að lesa góða bók


Fimmtudagur 15.september - Dagur íslenskrar náttúru / göngu- og gestadagur

  • Allir nemendur hvattir til að bjóða gestum með sér í skólann.
  • 14:20 - 15:50 Teymisfundur.
  • Nemendur fara í helgarfrí



Föstudagur 16.september - Endurmenntunardagur starfsfólks í grunnskólnum á Austurlandi

FRÉTTIR FRÁ LIÐINNI VIKU

Það var hellingur að gerast hjá okkur í þessari viku.

Á mánudaginn var viðburður á vegum Bras, menningarmót. Það var Kristín Vilhjálmsdóttir sem leiddi þá vinnu en markmið með verkefninu er m.a. að:


  • varpa ljósi á styrkleika þátttakenda og fjölbreytta menningu og tungumál þeirra á skapandi hátt
  • að stuðla að gagnkvæmri virðingu og skilningi
  • að skapa vettvang þar sem þátttakendur geta undrast og hrifist af því sem er líkt og ólíkt í menningu þeirra og áhugamálum
  • að listin verði sameiginlegt tungumál barna og ungmenna
  • að einstaklingar verði meðvitaðir um gildi eigin menningar og upplifi um leið þau jákvæðu áhrif sem það hefur á sjálfsmyndina að veita öðrum innsýn inn í sinn heim
  • að þátttakendur geri sér ljóst að fjölbreytt menning, áhugasvið og ólík tungumál mynda mikilvægt menningarlegt litróf í samfélaginu.


Frábært verkefni hér á ferð.


Í samveru var m.a. sungið og nemendur fengu kynningu á íþróttastarfi Neista í vetur, foreldrar ættu að hafa fengið drög að stundartöflu og skráningarform sent í tölvupósti.


Tónlistarskólinn hefur formlega hafið vetrarstarfið, það eru enn nokkur pláss laus og hægt að hafa samand við Berglindi og skrá sig.


Frístund og heimilisfræði eru komin á Helgafell, allt er að smella rólega saman.


Einnig var kosið í nemendaráð og ungmennaráð.


Starfsáætlun skólans var samþykkt af starfsfólki og næst fer hún fyrir Skólaráð og í framhaldi verður hún birt á heimasíðu skólans.

BREYTINGAR Á SKÓLAAKSTRI Í TENGSLUM VIÐ NEISTATÍMA

Eins og alltaf þá reynum við að tengja saman skóla- og frístundastarf nemenda.


Nú fer fram skráning í Neistatíma og foreldrar barna í dreifbýli eru beðnir um að láta Kristrúnu vita um skráningar sinna barna í Neistatímana. Í framhaldi verður brottfarartími skólabíla skoðaður.

NEFNDIR OG RÁÐ

Skólaráð er kosið til tveggja ára.


Skólaráð 2021-2023

  • Þorbjörg Sandholt, skólastjóri
  • Helga Björk Arnardóttir, fulltrúi kennara
  • María Dögg Línberg, fulltrúi kennara
  • Svala Bryndís Hjaltadóttir, fulltrúi almennra starfsmanna
  • Ríkharður Valtingojer, fulltrúi nemenda
  • Brynja Kristjánsdóttir, fulltrúi nemenda
  • Arnór Magnússon, fulltrúi foreldra
  • Hafdís Reynisdóttir, fulltrúi foreldra
  • Þórunnborg Jónsdóttir, fulltrúi úr grendarsamfélaginu



Nemendaráð skólaárið 2022-2023

  • Andrea Hanna Guðjónsdóttir 8.bekk
  • Óðinn Mikael Óðinsson 8.bekk
  • Antoni Marszalek 9.bekk
  • Brynjar Örn Pálmason 9.bekk
  • Brynja Kristjánsdóttir 10.bekk


Til vara:

  • Rökkvi Pálmason 8.bekk
  • Óðinn Pálmason 10.bekk



Ungmennaráð Múlaþings.

Fyrir hönd Djúpavogsskóla:

Sævar Atli Sigurðsson


Til vara:

Heiðdís Lóa Egilsdóttir

zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map

Á DAGSKRÁ Í NÆSTU VIKU

DAGUR ÍSLENSKRAR NÁTTÚRU ER LÍKA GÖNGU- OG GESTADAGUR

Í Djúpavogsskóla eru margar hefðir sem okkur langar að halda í, þær búa m.a. til okkar sérstöðu.

Það er m.a. hefð fyrir:

  • halda upp á Dag íslenskrar náttúru.
  • að hafa nokkra gestadaga á hverju ári.
  • að allir fari saman í haustgöngu.



Skólaárið 2022-2023 rekst Dagur íslenskrar náttúru á við endumenntunardag og því var ákveðið að sameina daginn með göngu- og gestadegi.


Þann 15.september stefnum við á að ganga saman og við hvetjum nemendur til að bjóða með sér gestum.



https://www.stjornarradid.is/verkefni/umhverfi-og-natturuvernd/vidburdir/dagur-islenskrar-natturu/

KÆRU FORELDRAR OG FORRÁÐAMENN...

...mig langar að biðja ykkur um að skoða vel hvort að þið getið gefið ykkur tíma og komið með okkur í haustgöngu á fimmtudaginn og halda upp á dag íslenskrar náttúru.


Eitt af því sem okkur langar að efla við skólann er tenging milli heimilis og skóla. Síðustu tvö ár hafa ekki gefið okkur tækifæri til að vinna að því með þeim hætti sem okkar langar.

Nú er tækifærið, við getum öll verið saman, nýtum það vel og eflum skólastarfið saman.


Eftir fagfund á þriðjudaginn munu umsjónarkennarar senda ykkur upplýsingar um hvert við stefnum haustgöngunni í ár en áherslan er á að hafa hana létta og skemmtilega samveru.

Vonandi sjáumst við sem flest þar (langtíma veðurspá segir að það verði gott útivistarveður).


Bestu kveðjur,

Obba

Í von um að þið eigi góða helgi.

Bestu kveðjur,

Starfsfólk Djúpavogsskóla

Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter