Tæknótíðindi
29. ágúst 2025
Dagsetningar framundan
- 10. september - Nýnemaball
- 19. september - Námsmat / miðspannarmat
- 22. september - Valvika
Vel heppnuð nýnemaferð
Það var bæði góð stemmning og góð mæting í nýnemaferðir Tækniskólans sem farnar voru á Stokkseyri í vikunni. Nemendur í Tækniskólanum á Háteigsvegi og í Hafnarfirði fór á miðvikudag og nemendur á Skólavörðuholti fóru svo á fimmtudag.
Nýnemaferðin er frábært tækifæri fyrir nemendur til þess að kynnast betur og hefja skólaárið á þennan skemmtilega hátt. Takk fyrir komuna og sjáumst í skólanum.
Nýnemaball 10. september
Fylgist með á vefsíðu skólans og á samfélagsmiðlum þar sem tilkynnt verður um miðasölu.
Við minnum á klúbbakvöldin sem eru á miðvikudögum á milli 17:00 og 21:00.
Ferðavenjukönnun - taktu þátt!
Við vorum að setja í loftið ferðavenjukönnun fyrir bæði nemendur og starfsfólk. Tilgangurinn með henni er að auka þekkingu okkar á núverandi ferðamáta nemenda og starfsfólks til og frá skóla og nýta niðurstöður inn í undirbúningsvinnu vegna nýs Tækniskóla sem stefnt er að því að taka í notkun árið 2030.
Þátttakendum býðst að fara í verðlaunapott í lok könnunarinnar. Við hvetjum ykkur kæru nemendur til að taka þátt með því að smella á hlekkinn hér fyrir neðan. Það tekur um 3 mínútur að svara.
Kærar þakkir!
Tölvuþjónusta Tækniskólans
Hjá tölvuþjónustu Tækniskólans starfa margir snjallir sérfræðingar sem eru boðnir og búnir að aðstoða. Þeir nemendur sem þurfa aðstoð geta sent tölvupóst á netfangið tolvuthonusta@tskoli.is eða haft samband í síma 514 9050
Á vefsíðu skólans eru fjölmörg kynningarmyndbönd sem innihalda mjög góðar leiðbeiningar fyrir hin ýmsu verkefni, t.d. um skólanetföng, lykilorð, One Drive og TEAMS.
Stífar æfingar fyrir Euroskills
Við höldum áfram að kynna keppendur sem eru á leið til Danmerkur í september að keppa á Euroskills.
Bryndís Sigurjónsdóttir, nemandi Tækniskólans á hársnyrtibraut og Íslandsmeistari í faginu, mun keppa fyrir hönd Íslands á mótinu. Hún hefur verið á stífum æfingum síðustu vikur og hlakkar til að takast á við þessa krefjandi áskorun. Sigurlaug Ingvarsdóttir, kennari í hársnyrtiiðn, segir Bryndísi einstaklega faglega og hún hlakkar til þess að fylgjast með henni keppa.
Irena Fönn Clemmensen keppandi Íslands á Euroskills 2023 hefur m.a. aðstoðað Bryndísi við undirbúning.
Við óskum Bryndísi góðs gengis á Euroskills 2025