Smore logo
remove_red_eye 761
page background
Logo

Tæknótíðindi

29. ágúst 2025

Tæknótíðindi29. ágúst 2025

Dagsetningar framundan Dagsetningar framundan

  • 10. september - Nýnemaball
  • 19. september - Námsmat / miðspannarmat
  • 22. september - Valvika
Skóladagatal Tækniskólans

Vel heppnuð nýnemaferð Vel heppnuð nýnemaferð

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
User uploaded image
zoom_out_map

Það var bæði góð stemmning og góð mæting í nýnemaferðir Tækniskólans sem farnar voru á Stokkseyri í vikunni. Nemendur í Tækniskólanum á Háteigsvegi og í Hafnarfirði fór á miðvikudag og nemendur á Skólavörðuholti fóru svo á fimmtudag.


Nýnemaferðin er frábært tækifæri fyrir nemendur til þess að kynnast betur og hefja skólaárið á þennan skemmtilega hátt. Takk fyrir komuna og sjáumst í skólanum.

User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map

Nýnemaball 10. september Nýnemaball 10. september

Framundan í félagslífi Tækniskólans er m.a. nýnemaball sem verður haldið 10. september í Víkinni. Ballið verður haldið í samstarfi við nokkra aðra framhaldsskóla og hefst miðasala í næstu viku. Við hvetjum forráðafólk um að kynna sér reglur Tækniskólans um skólaböll HÉR.


Fylgist með á vefsíðu skólans og á samfélagsmiðlum þar sem tilkynnt verður um miðasölu.


Við minnum á klúbbakvöldin sem eru á miðvikudögum á milli 17:00 og 21:00.

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size

Ferðavenjukönnun - taktu þátt! Ferðavenjukönnun - taktu þátt!

User uploaded image
zoom_out_map

Við vorum að setja í loftið ferðavenjukönnun fyrir bæði nemendur og starfsfólk. Tilgangurinn með henni er að auka þekkingu okkar á núverandi ferðamáta nemenda og starfsfólks til og frá skóla og nýta niðurstöður inn í undirbúningsvinnu vegna nýs Tækniskóla sem stefnt er að því að taka í notkun árið 2030.


Þátttakendum býðst að fara í verðlaunapott í lok könnunarinnar. Við hvetjum ykkur kæru nemendur til að taka þátt með því að smella á hlekkinn hér fyrir neðan. Það tekur um 3 mínútur að svara.


Kærar þakkir!

TAKA ÞÁTT Í FERÐAVENJUKÖNNUN

Tölvuþjónusta Tækniskólans Tölvuþjónusta Tækniskólans

User uploaded image
zoom_out_map

Hjá tölvuþjónustu Tækniskólans starfa margir snjallir sérfræðingar sem eru boðnir og búnir að aðstoða. Þeir nemendur sem þurfa aðstoð geta sent tölvupóst á netfangið tolvuthonusta@tskoli.is eða haft samband í síma 514 9050


Á vefsíðu skólans eru fjölmörg kynningarmyndbönd sem innihalda mjög góðar leiðbeiningar fyrir hin ýmsu verkefni, t.d. um skólanetföng, lykilorð, One Drive og TEAMS.

ALLT SEM ÞÚ ÞARFT AÐ VITA UM TÖLVUÞJÓNUSTU TÆKNÓ

Stífar æfingar fyrir Euroskills Stífar æfingar fyrir Euroskills

User uploaded image
zoom_out_map

Við höldum áfram að kynna keppendur sem eru á leið til Danmerkur í september að keppa á Euroskills.


Bryndís Sigurjónsdóttir, nemandi Tækniskólans á hársnyrtibraut og Íslandsmeistari í faginu, mun keppa fyrir hönd Íslands á mótinu. Hún hefur verið á stífum æfingum síðustu vikur og hlakkar til að takast á við þessa krefjandi áskorun. Sigurlaug Ingvarsdóttir, kennari í hársnyrtiiðn, segir Bryndísi einstaklega faglega og hún hlakkar til þess að fylgjast með henni keppa.


Irena Fönn Clemmensen keppandi Íslands á Euroskills 2023 hefur m.a. aðstoðað Bryndísi við undirbúning.

Við óskum Bryndísi góðs gengis á Euroskills 2025

User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
Bókasafn Tækniskólans

Alúð - Framsækni - Fjölbreytileiki Alúð - Framsækni - Fjölbreytileiki

Tækniskólinn - skóli atvinnulífsins
tskoli.is
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter