Smore logo
remove_red_eye 230
page background

Fréttabréf Engidalsskóla des. 2025

Ábyrgð - Virðing - Vellíðan

FréttabréfEngidalsskóla des. 2025Ábyrgð - Virðing - Vellíðan
User uploaded image
zoom_out_map

Kæru foreldrar/forsjáraðilar.

Kæru foreldrar/forsjáraðilar.

Desember er alltaf dásamlegur tími í skólastarfinu þá brjótum við skólastarfið meira upp en venjulega. Hópar hafa verið að fara í vettvangsferðir og þetta árið heimsækja allir árgangar Víðistaðarkirkju og fá þar kakó og eitthvað góðgæti. Margir eru líka að kíkja í fallega Hellisgerði. Unnið er saman að skreytingum í skólastofunni og allar hurðar fá góða yfirhalningu. Elstu nemendurnir í 7. bekk, sjá um að skreyta jólatréð okkar sem gengið verður í kringum á litlu jólunum. Við eigum von á skemmtilegum gestum 19. desember sem ætla að fá að skemmta sér með yngstu nemendunum og er það ástæða þess að jólaskemmtunin byrjar seinna hjá þeim þetta árið, við vonum að koma þeirra muni vekja lukku.


Við reynum að hafa allt frekar lágstemmt þennan mánuðinn og njóta. Þessi tími gefur tækifæri til að haka við mörg markmið í námskránni því verkefnin eru fjölbreytt og áskoranir margar. Hæfniviðmið námskrárinnar eru mörg og mikilvæg en lykilhæfnin er það líka.


Við erum að fá nýjan aðstoðar deildarstjóra í frístundastarfið núna 15. desember og kveðjum Debóru Dögg 23. desember eftir frekar stutt kynni. Hún Sara Dögg er komin að hluta til í forfallakennslu hjá okkur og Julia Nowak hverfur til annara starfa nú í desember. Búið er að ganga frá ráðningu skóla- og frístundaliða í þeirra stað og verða þeir kynntir á nýju ári.


Jólafrí hefst 22. desember og skólastarf hefst svo á nýju ári mánudaginn 5. janúar samkvæmt stundaskrá.


Með bestu kveðju og ósk um yndislega aðventu og gleðileg jól,


Skólastjórnendur Engidalsskóla.

User uploaded image
zoom_out_map

Litlu jólin 19. desember

19. desember mæta allir spariklæddir


  • Nemendur á miðstigi mæta kl: 9:00 - 11:00
  • Nemendur á yngsta stigi mæta kl: 10:00 - 12:00


Smákökur (sparinesti) og fernudrykkir
Ekki er skipst á gjöfum

Frístund opnar kl. 12:00 þennan dag fyrir þá sem eru skráðir.

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size

Hér kemur uppskrift af vanillusósu sem er mjög vinsæl hjá nemendum. Hér kemur uppskrift af vanillusósu sem er mjög vinsæl hjá nemendum.

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
Mentor leiðbeiningar fyrir foreldra
Á blaðsíðu tvö er að finna leiðbeiningar er varða póst stillingar - Persónuvernd - stillingar
Samvinna um læsi
Gagnlegar upplýsingar um læsi
User uploaded image
zoom_out_map

Uppeldi til ábyrgðar, Skýru mörkin

Haustið 2021 hóf Engidalsskóli innleiðingu á uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar. Innleiðingin hefur gengið vel og munum við halda henni áfram á þessu skólaári. Lykil spurning stefnunnar er hvernig manneskja viltu vera? Gengið er út frá því að þú sért við stjórnvölinn á eigin hegðun og þó við gerum öll mistök er mikilvægt að læra af þeim. Við forðumst ásakanir, afsakanir, skammir, tuð og uppgjöf og segjum JÁ eins oft og við getum. Það er alltaf hægt að segja já en stundum þarf þó að setja skilyrði í framhaldi, já þegar við erum búin að þessu eða þegar þú ert orðinn x gamall og svo framvegis. Nánar má lesa um stefnuna á uppbygging.is


Við erum ekki með eiginlegar skólareglur en fari nemendur yfir skilgreind skýr mörk er gripið inn í og nemendum er þá vísað til skólastjórnanda sem ákveður næstu skref. Foreldrar eru boðaðir til fundar með nemendum og áætlun gerð um það sem betur má fara. Mikilvægt er að allir séu meðvitaðir um þetta.

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size

Holt og gott nesti fyrir hrausta og kraftmikla krakka Holt og gott nesti fyrir hrausta og kraftmikla krakka

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
Bæklingur - Ráðleggingar um matarræði

Útivistarreglur barna Útivistarreglur barna

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
User uploaded image
zoom_out_map

Engidalsskóli

Email: engidalsskoli@engidalsskoli.is
Website: https://www.engidalsskoli.is
Location: Breiðvangur 42, Hafnarfjordur, Iceland
Phone: 555 4433

Phone Álfakot: 555 4434

Engidalsskóli Hafnarfirði
Engidalsskóli is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter