Smore logo
remove_red_eye 380
page background
Logo

Fréttabréf mars

3. tbl 16. árg. 1. mars 2025

Fréttabréf mars 3. tbl 16. árg. 1. mars 2025
Fréttabréf mars3. tbl 16. árg. 1. mars 2025

Mars mánuður hefst með viðtalsdögum þar sem nemendur meta sjálfir námsframvindu sína, ræða um námsvitund og útskýra hvernig þeim gengur að ná markmiðum sínum. Þessi nálgun endurspeglar áherslu skólans á að efla sjálfstæði nemenda og þátttöku þeirra í eigin námi. Að viðtalsdögum loknum tekur við kærkomið vetrarfrí hjá nemendum.


Það er gaman að segja frá því að Naustaskóli hefur á undanförnum vikum vakið athygli fyrir fjölbreytt og metnaðarfullt starf. Nýlega var haldin vel heppnuð 600 Mathöll þar sem námið er samþætt við nokkrar námsgreinar og það gert bæði lifandi og skemmtileg. Teymi 4.-5. bekkjar hefur í vetur unnið með ritun sem hefur vakið verðskuldaða athygli, verkefnið er unnið eftir vel skipulögðu ársskipulagi sem leggur áherslu á fjölbreyttar aðferðir við ritun og skapandi skrif.


Sérstakt fagnaðarefni er að teymi 1. bekkjar hefur hlotið viðurkenningu frá fræðsluráði Akureyrar fyrir framúrskarandi starf sitt. Þessi viðurkenning er ekki aðeins hvatning fyrir starfsfólk skólans heldur einnig staðfesting á þeirri metnaðarfullu vinnu sem fram fer í Naustaskóla á öllum skólastigum. Síðan er mjög ánægjulegt að segja frá því að Aron Emil Kolbeins hlýtur viðurkenningu fyrir framfarir og þrautseigju.


Undirbúningur fyrir árshátíð Naustaskóla er hafinn. Hátíðin, sem fram fer 10. apríl næstkomandi, og er einn af stærstu viðburðum skólaársins en viðburðurinn er mikilvægur þáttur í fjölbreyttu skólastarfi Naustaskóla.


Með kærri kveðju

Bryndís, Helga Ósk og Þuríður

Á döfinni

3. mars viðtalsdagur / Frístund opin allan daginn fyrir þau börn sem eru skráð

4. mars viðtalsdagur /Frístund opin allan daginn fyrir þau börn sem eru skráð

5. mars öskudagur frí /Frístund opin allan daginn fyrir þau börn sem eru skráð

6. mars vetrarfrí Frístund opin kl.13 - 16:15 fyrir þau börn sem eru skráð

7. mars vetrarfrí Frístund opin kl.13 - 16:15 fyrir þau börn sem eru skráð

13. mars Starfamessa

18.mars Upphátt upplestrarkeppnin

19. mars PISA könnun 10.bekkur

24. mars starfsdagur / Frístund opin kl.13 - 16:15 fyrir þau börn sem eru skráð

zoom_out_map

Upphátt

Hér má sjá veggspjald í tengslum við Upphátt upplestarkeppnina í ár sem er um leið boðskort á keppnina sem fer fram í Háskóla Akureyrar 18. mars en nemendur í 7.bekk eru sérstaklega boðnir velkomnir. Tveir fulltrúar taka þátt fyrir hönd Naustaskóla í sjálfri Upphátt keppninni og eru það Baldur Tristan Stefánsson og Brynjar Berg Jóhannsson.

zoom_out_map

Naustaskóli

Tölvupóstur: naustaskoli@akureyri.is

Heimasíða: www.naustaskoli.is

Hólmatún, Akureyri, Iceland


Sími 460 4100

Margret Karlsdottir
Margret is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter