Tæknótíðindi
18. mars 2026
Dagsetningar framundan
- 18. mars - Klúbbakvöld NST
- 18. mars - Útskriftarsýning hársnyrtinema
- 19.-22. mars - Verk og vit
- 21. mars - Skrúfudagurinn
- 30. mars -7. apríl - Páskafrí
Bíómyndaþema á útskriftarsýningu hársnyrtinema
Útskriftarsýning nemenda á lokaönn i hársnyrtiiðn verður haldin miðvikudaginn 18. mars í Ráðhúsi Reykjavíkur. Þema sýningarinnar í ár er bíómyndir þar sem hver nemandi hefur valið sér ákveðna bíomynd til þess að túlka í gegnum hár og stíl.
Sýningin hefst kl. 20:00 og eru öll velkomin!
Hér er hlekkur á viðburðinn.
Verk og vit
Stórsýningin Verk og vit fer fram í Laugardalshöll dagana 19.-22 mars.
Að þessu sinni vinna tvær deildir innan Tækniskólans að spennandi verkefni í samstarfi við BYKO sem snýr að því að hanna og byggja saunaklefa sem verður byggður á bás BYKO á sýningunni.
Verkefnið hófst á hönnunarsamkeppni þar sem fimm hópar, alls 22 nemendur á hönnunar- og nýsköpunarbraut, kynntu sérhannaða saunaklefa fyrir dómnefnd. Dómnefndina skipuðu þau Ari Jónsson kennari á hönnunar- og nýsköpunarbraut, Sandra Borg Gunnarsdóttir skólastjóri Hönnunar- og handverksskólans, Gunnar Kjartansson skólastjóri Byggingatækniskólans, Kjartan Long verkefnastjóri BYKO, Renzo Gústaf Pazzaro,verslunarstjóri BYKO timbursölu og Sigurður Pálsson forstjóri BYKO.
Þær Matthildur Ingadóttir, Harpa Hua Zi Tómasdóttir og Svandís Halldórsdóttir, hönnuðu saunaklefann Boga og báru sigur úr býtum. Í hönnunarferlinu ráðfærðu þær sig m.a. við fólk sem stundar gufuböð og nýttu sér ráðleggingar til þess til að útfæra hönnunina sem best.
Dagný Lind Pálsdóttir, Hans Haraldsson, Kári Steinn Guðmundsson, Steingrímur Viljar Stefánsson og Þór Ísak Þórðarson, nemendur í húsasmíði, munu byggja saunaklefann á bás BYKO á Verk og vit undir verkstjórn kennaranna Atla Erlingssonar og Fjölnis Þrastarsonar.
Skrúfudagurinn 2026
Skrúfudagurinn er árlegur kynningardagur nemenda í vél- og skipstjórn þar sem gestum gefst meðal annars kostur á að skoða aðstöðuna, heilsa upp á nemendur og starfsfólk, kíkja í turninn og prófa herma og annað spennandi.
Hlökkum til að sjá sem flest!
Vel heppnuð sýning hjá Leikfélaginu
Leikfélag Tækniskólans, Mars, sýndi Þriðjudagsþristinn í leikstjórn Snæfríðar Sólar Gunnarsdóttur í liðinni viku. Verkið er frumsamið af Snæfríði og nemendum leikfélagsins, sem þróuðu handritið í sameiningu með svokallaðri samsköpunaraðferð sem byggir á spuna.
Sýnarnar gengu ákaflega vel og var mikið hlegið.
Hér má sjá skemmtilegar myndir sem ljósmyndarinn Andrés Blær tók á frumsýningunni.
Niðurstöður úr kennslumati
Kennslumat samanstóð af átta spurningum og einni opinni spurningu í lokin.
Spurt var út í áfanga og kennslu.
Hér að neðan má skoða niðurstöðurnar nánar.
Breyting á gjaldskyldu bílastæða á Skólavörðuholti
Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkurborgar samþykkti nú í janúar tillögu um breytingu á gjaldskyldu bílastæða í nágrenni Hallgrímskirkju. Með breytingunni verður Gjaldsvæði 2 stækkað þannig að öll bílastæði á Skólavörðuholti verða gjaldskyld, þar á meðal bílastæðið sem liggur milli húss Tækniskólans og Hallgrímskirkju. Tækniskólinn óskaði eftir því fyrir nokkru við Reykjavíkurborg að fá að loka stæðinu og hafa umsjón með því í samvinnu við Hallgrímskirkju þannig að það gæti betur nýst nemendum og starfsfólki en því var hafnað - því miður.
Reyndin er sú að með útvíkkun gjaldtökusvæða í miðborginni á liðnum árum hafa möguleikar nemenda til að leggja á viðkomandi stæði minnkað verulega þar sem stæðið er jafnan fullt af bílum íbúa, ferðamanna og annarra sem eiga erindi í miðborgina. Talning okkar hefur leitt í ljós að eins og staðan er í dag eru um 5-20 nemendur að ná að leggja (löglega) í bílastæði á þessu svæði fyrir fyrsta tíma (8.30).
Gjaldskyldan tekur gildi 23. mars og mun Bílastæðasjóður setja upp viðeigandi merkingar á svæðinu. Gjaldskyldutími verður sá sami og gildir á öðrum svæðum innan gjaldsvæðis 2 og mun Bílastæðasjóður vakta bílastæðið og sekta þá sem ýmist greiða ekki eða leggja ólöglega.