Smore logo
remove_red_eye 766
page background
Logo

Tæknótíðindi

18. mars 2026

Tæknótíðindi18. mars 2026

Dagsetningar framundan Dagsetningar framundan

  • 18. mars - Klúbbakvöld NST
  • 18. mars - Útskriftarsýning hársnyrtinema
  • 19.-22. mars - Verk og vit
  • 21. mars - Skrúfudagurinn
  • 30. mars -7. apríl - Páskafrí

Bíómyndaþema á útskriftarsýningu hársnyrtinema Bíómyndaþema á útskriftarsýningu hársnyrtinema

User uploaded image
zoom_out_map

Útskriftarsýning nemenda á lokaönn i hársnyrtiiðn verður haldin miðvikudaginn 18. mars í Ráðhúsi Reykjavíkur. Þema sýningarinnar í ár er bíómyndir þar sem hver nemandi hefur valið sér ákveðna bíomynd til þess að túlka í gegnum hár og stíl.


Sýningin hefst kl. 20:00 og eru öll velkomin!

Hér er hlekkur á viðburðinn.

Verk og vit Verk og vit

User uploaded image
zoom_out_map

Stórsýningin Verk og vit fer fram í Laugardalshöll dagana 19.-22 mars.

Að þessu sinni vinna tvær deildir innan Tækni­skólans að spenn­andi verk­efni í sam­starfi við BYKO sem snýr að því að hanna og byggja sauna­klefa sem verður byggður á bás BYKO á sýningunni.


Verk­efnið hófst á hönn­un­ar­sam­keppni þar sem fimm hópar, alls 22 nem­endur á hönn­unar- og nýsköp­un­ar­braut, kynntu sér­hannaða sauna­klefa fyrir dóm­nefnd. Dóm­nefndina skipuðu þau Ari Jónsson kennari á hönn­unar- og nýsköp­un­ar­braut, Sandra Borg Gunn­ars­dóttir skóla­stjóri Hönn­unar- og hand­verks­skólans, Gunnar Kjart­ansson skóla­stjóri Bygg­inga­tækni­skólans, Kjartan Long verk­efna­stjóri BYKO, Renzo Gústaf Pazzaro,versl­un­ar­stjóri BYKO timb­ursölu og Sigurður Pálsson for­stjóri BYKO.


Þær Matt­hildur Inga­dóttir, Harpa Hua Zi Tóm­as­dóttir og Svandís Hall­dórs­dóttir, hönnuðu saunaklefann Boga og báru sigur úr býtum. Í hönn­un­ar­ferlinu ráðfærðu þær sig m.a. við fólk sem stundar gufuböð og nýttu sér ráðlegg­ingar til þess til að útfæra hönn­unina sem best.


Dagný Lind Pálsdóttir, Hans Haraldsson, Kári Steinn Guðmundsson, Steingrímur Viljar Stefánsson og Þór Ísak Þórðarson, nemendur í húsasmíði, munu byggja saunaklefann á bás BYKO á Verk og vit undir verkstjórn kennaranna Atla Erlingssonar og Fjölnis Þrastarsonar.

Skrúfudagurinn 2026 Skrúfudagurinn 2026

Skrúfudagurinn verður haldinn hátíðlegur laugardaginn 21. mars í húsnæði Tækniskólans við Háteigsveg frá kl. 13:00 til 16:00.


Skrúfudagurinn er árlegur kynningardagur nemenda í vél- og skipstjórn þar sem gestum gefst meðal annars kostur á að skoða aðstöðuna, heilsa upp á nem­endur og starfs­fólk, kíkja í turninn og prófa herma og annað spenn­andi.


Hlökkum til að sjá sem flest!

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size

Vel heppnuð sýning hjá Leikfélaginu Vel heppnuð sýning hjá Leikfélaginu

User uploaded image
zoom_out_map

Leikfélag Tækniskólans, Mars, sýndi Þriðjudagsþristinn í leikstjórn Snæfríðar Sólar Gunnarsdóttur í liðinni viku. Verkið er frumsamið af Snæfríði og nemendum leikfélagsins, sem þróuðu handritið í sameiningu með svokallaðri samsköpunaraðferð sem byggir á spuna.


Sýnarnar gengu ákaflega vel og var mikið hlegið.

Hér má sjá skemmtilegar myndir sem ljósmyndarinn Andrés Blær tók á frumsýningunni.

User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map

Niðurstöður úr kennslumati Niðurstöður úr kennslumati

Niðurstöður kennslumats á spönn 1 á vorönn 2026 liggja nú fyrir.


Kennslumat samanstóð af átta spurningum og einni opinni spurningu í lokin.
Spurt var út í áfanga og kennslu.


Hér að neðan má skoða niðurstöðurnar nánar.

pdf
insert_drive_file
V26 Niðurstöður - PDF.pdf
Download
652.8 KB

Breyting á gjaldskyldu bílastæða á Skólavörðuholti Breyting á gjaldskyldu bílastæða á Skólavörðuholti

Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkurborgar samþykkti nú í janúar tillögu um breytingu á gjaldskyldu bílastæða í nágrenni Hallgrímskirkju. Með breytingunni verður Gjaldsvæði 2 stækkað þannig að öll bílastæði á Skólavörðuholti verða gjaldskyld, þar á meðal bílastæðið sem liggur milli húss Tækniskólans og Hallgrímskirkju. Tækniskólinn óskaði eftir því fyrir nokkru við Reykjavíkurborg að fá að loka stæðinu og hafa umsjón með því í samvinnu við Hallgrímskirkju þannig að það gæti betur nýst nemendum og starfsfólki en því var hafnað - því miður.


Reyndin er sú að með útvíkkun gjaldtökusvæða í miðborginni á liðnum árum hafa möguleikar nemenda til að leggja á viðkomandi stæði minnkað verulega þar sem stæðið er jafnan fullt af bílum íbúa, ferðamanna og annarra sem eiga erindi í miðborgina. Talning okkar hefur leitt í ljós að eins og staðan er í dag eru um 5-20 nemendur að ná að leggja (löglega) í bílastæði á þessu svæði fyrir fyrsta tíma (8.30).


Gjaldskyldan tekur gildi 23. mars og mun Bílastæðasjóður setja upp viðeigandi merkingar á svæðinu. Gjaldskyldutími verður sá sami og gildir á öðrum svæðum innan gjaldsvæðis 2 og mun Bílastæðasjóður vakta bílastæðið og sekta þá sem ýmist greiða ekki eða leggja ólöglega.

Frétt Reykjavíkurborgar um gjaldskyldu á Skólavörðuholti

Alúð - Framsækni - Fjölbreytileiki Alúð - Framsækni - Fjölbreytileiki

Tækniskólinn - skóli atvinnulífsins
tskoli.is
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter