Fréttabréf Flóaskóla
nóvember 2025
Kæra skólasamfélag
Veturinn skall á okkur með nokkrum þunga í lok október og varð röskun á skólastarfi einn dag af þeim sökum. Annars hefur veðrið að mestu verið einstaklega hlýtt og gott.
Skólastarfið gengur afar vel, mörg áhugaverð verkefni eru í gangi og nemendur eru metnaðarfullir og sinna náminu vel. Í byrjun október voru nemendastýrð foreldraviðtöl, þar kynntu nemendur fyrir foreldrum sínum ýmiskonar verkefni og rýndu eigin styrkleika og markmið. Þessar kynningar voru sérlega vel heppnaðar og góður endir á fyrsta þema haustsins. Nú styttist í að þriðja þematímabil vetrarins hefjist en það er unnið út frá grunnþættinum sjálfbærni. Elstu nemendur skólans vinna með fjármálalæsi og tengja það undirbúningi jóla og jólahaldi. Miðstigs nemendur beina sjónum sínum að trúarbrögðum heimisins. Þemaverkefni yngstu nemendanna nefnist Fjöll og tröll og enda þau sitt þema með sýningu í Þjórsárveri þar sem öll viðfangsefni eru unnin úr endurnýttu efni.
Haustleyfi var síðari hluta október og þegar því lauk var settur af stað lestrarsprettur á öllum stigum skólans. Taldar eru þær mínútur sem nemendur verja til lestrar bæði í skóla og heima. Það sýnir sig að svona hvatning til lestrar eykur áhuga nemenda á yndislestri og eflir lestrarfærni. Skemmst er frá því að segja að nemendur hafa staðið sig einstaklega vel, verið mjög duglegir að lesa bæði í skóla og heima. Það er dýrmætt fyrir okkur í skólanum að sjá heimilin styðja svona vel við lesturinn hjá börnunum. Næstkomandi mánudag verður svo uppskeruhátíð lestrarsprettsins í tveimur síðustu tímum dagins. Þá verða sett upp kvikmyndahús í sjö kennslustofum, þar sem nemendur geta farið á mynd að eigin vali, boðið er upp á popp og vatn. Þennan sama dag eru vinaleikar þar sem vinabekkir sinna verkefnum saman, dagurinn er líka kósýdagur og mega nemendur koma í náttfötum eða kósýfötum og þau sem vilja mega taka með sér bangsa eða tuskudýr.
Mig langar að vekja athygli ykkar á Vísindasmiðju Háskólalestarinnar sem kynnt er hér neðar í fréttabréfinu.
Þriðjudaginn 18.11. fáum við til okkar góðan gest dr Erlu Björnsdóttur, sálfræðing og framkvæmdastjóra Betri svefns. Hún verður með fræðslu fyrir nemendur elsta stigs á skólatíma, fyrir kennara á fundartíma þeirra og foreldra / forráðamenn allra nemenda skólans kl 20:00 um kvöldið. Niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar gefa sterkar vísbendingar um að svefnvenjur nemenda í 6.-10.bekk séu að verða verri, mikill munur er milli áranna 2024 og 2025. Því töldum við ærna ástæðu til að fá fræðslu til allra um þetta efni. Foreldrafélag skólans greiðir fyrir foreldrafræðsluna og þökkum við þeim kærlega fyrir stuðninginn.
Bestu kveðjur úr Flóaskóla
Þórunn Jónasdóttir
Takið þriðjudagskvöldið 18.11. frá til að koma í skólann og fá mikilvæga fræðslu
um svefn og áhrif hans á líðan og nám
Niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar sýna mikla afturför í svefnvenjum nemenda í 6.-10. bekk í Flóaskóla og umtalsvert fleiri segjast þreyttir í skólanum. Tökum höndum saman og snúum þessari þróun við. Það er mjög mikilvægt að foreldrar nemenda í þessum bekkjum fjölmenni á þessa fræðslu bæði til að fylgja eftir þeirri fræðslu sem nemendur hafa fengið en ekki síður til að fá stuðning og verkfæri til að aðstoða börn sín við að ná góðum tökum á svefni og svefnvenjum sínum. Foreldrar yngri barna eru líka hvattir til að koma á fræðsluna.
Fyrirlestrar Erlu eru sniðnir að þátttakendum.
- Nemendur fá fræðslu um svefn, mikilvægi hans og góðar venjur.
- Starfsfólk fær fyrirlestur með áherslu á hvernig svefn hefur áhrif á heilsu, líðan og nám.
- Foreldrar fá fræðslu um hvernig þeir geta stutt börnin sín í að ná góðum svefni.
Íslensku menntaverðlaunin - framúrskarandi kennari - Örvar Rafn Hlíðdal
Íslensku menntaverðlaunin 2025 voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum 4. nóvember 2025. Eins og áður hefur komið fram var Örvar íþróttakennari tilnefndur til verðlaunanna í flokknum framúrskarandi kennari og hlaut síðan viðurkenninguna Framúrskarandi kennari 2025. Við erum afar stolt af þessum verðlaunum og þeirri viðurkenningu sem þau fela í sér fyrir íþróttakennsluna okkar og þann einstaka árangur sem nemendur okkar sína ár eftir ár í skólahreystinni. Það er mikil gæfa fyrir lítinn sveitaskóla að hafa í sínum röðum kennara eins og Örvar.
Markmið verðlaunanna er að vekja athygli á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og frístunda starfi og auka veg menntaumbóta.Verðlaunin eru veitt í fjórum flokkum; fyrir framúrskarandi skólastarf, kennslu, þróunarverkefni og framlag til eflingar iðn- og verkenntunar. Einnig eru veitt sérstök hvatningarverðlaun. Að verðlaunum standa: Embætti forseta Íslands, mennta- og barnamálaráðuneytið, innviðaráðuneytið, Samtök iðnaðarins, Félag um menntarannsóknir, Grunnur – félag stjórnenda á skrifstofum fræðslumála í sveitarfélögum, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Kennarasamband Íslands, Listaháskóli Íslands, Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, Reykjavíkurborg, Samband íslenskra sveitarfélaga og Samtök áhugafólks um skólaþróun.
Hér má sjá þáttinn sem RUV gerði um Íslensku menntaverðlaunin. Umfjöllun um Örvar hefst á 14:42 mínútu. En RUV kom í Flóaskóla og tók töluvert af efni upp bæði úti á skólalóð en líka úr skólahreystikennslu, auk þess sem viðtöl voru tekin við nemendur, Örvar og Þórunni.
Yngri kór Flóaskóla syngur í messu í Hraungerðiskirkju núna á sunnudaginn 9.11.
Kórastarfið í Flóaskóla
Kórastarfið í Flóaskóla gengur vel og er ánægjulegt hversu góð þátttakan er, en alls eru 50 nemendur á yngsta og miðstigi sem hafa valið að syngja í kór.
Æfingar eru einu sinni í viku og nú er að hefjast undirbúningur jólalaga en kórarnir munu koma fram á aðventuhátíðinni 4. desember næstkomandi og svo jólasýningu skólans þann 11. desember.
Yngri barnakórinn mun einnig koma fram í messu í Hraungerði þann 9. nóvember og syngja 3 lög, þar af eitt með kirkjukórnum.
Félagar í miðstigskór kusu á dögunum 5 manna kórstjórn sem mun meðal annars velja jólalög ásamt kórstjóra og koma að skipulagningu á ferðum og verkefnum kórsins. Þá er einnig í undirbúningi aðventuuppákoma sem verður kynnt síðar. Á vorönn er fyrirhugað samstarfsverkefni með miðstigskór Hvolsskóla þar sem kórarnir munu hittast á sameiginlegum æfingum og halda á vordögum sameiginlega tónleika.
Það eru því spennandi verkefni framundan og hugur í okkar ungu og efnilegu söngvurum.
kveðja
Eyrún Jónasdóttir
kórstjóri
Hönnunarsafnið kom í heimsókn á miðstig
17. október kom Auður Ösp Gilsdóttir frá Hönnunarsafni Íslands með námskeiðið heimurinn heima fyrir nemendur á miðstigi. Nemendur unnu í tveimur hópum. Hvor hópur í tveimur kennslustundum og útbjuggu þau sitt hvort húsið. Krakkarnir settu sig í spor hönnuða. Með nýtni og uppfinningasemi útbjuggu þau heimili fyrir skáldaðan einstakling sem skapaður var á staðnum. Í framhaldinu innréttuðu þau módel af heimili fyrir téða manneskju. Afar skemmtilegt og skapandi verkefni sem nemendur höfðu mjög gaman af.
Smiðjur 8.-10. bekkjar - Háskólalestin og menningarferð
Smiðjurnar okkar á elsta stigi í nóvember eru mjög metnaðarfullar og glæsilegar. Við áttum því láni að fagna að fá Háskólalestina til okkar annað smiðjudaginn, fimmtudaginn 20.11. Háskólalestin býður upp á kennslu í grunnskólum og spennandi og lifandi Opið vísindahús með undrum vísindanna fyrir allt heimafólk. Áhöfn Háskólalestarinnar skipar fræðafólk og framhaldsnemar við Háskóla Íslands, öll með mikla reynslu í miðlun og kennslu. Jafnframt hafa vísindamenn frá rannsóknasetrum HÍ lagt sitt af mörkum til fræðslunnar.
Í boði eru fjölbreytt námskeið og smiðjur fyrir grunnskólanemendur, sem og kennarasmiðjur fyrir kennara. Kennt verður í Flóaskóla. Nemendur eiga kost á að velja þrjár smiður af eftirfarandi: Efnafræði á tilraunastofu, Blaða- og fréttamennska, Íþrótta- og heilsufræði, Eðlisfræði skopparabolta og pappírsbáta, Sjúkraþjálfun, Leiklist og lífsleikni, Tölvuleik og tölur, Ævintýri fuglanna, Sterkari með jákvæðri sálfræði, Gervigreind.
Markmið Háskólalestarinnar er að kynna vísindi á lifandi hátt, styðja við grunnskólana og efla tengsl Háskóla Íslands við landsbyggðina.
Hér fyrir neðan eru glærur með kynningu á þeim fjölbreyttu viðfangsefnum sem nemendur fá að kynnast hjá Háskólalestinni.
Seinni smiðjudaginn 21.11. fara allir nemendur elsta stigs í menningarferð til Reykjavíkur þar sem blandað verður saman fróðleik og skemmtun. Nemendur í 8. bekk fara á Þjóðminjasafnið, í Norrænahúsið og í Borgarleikhúsið. 9. bekkingar fara á Hönnunarsafnið og í Landhelgisgæsluna. 10. bekkingar fara í Tækniskólann og á Alþingi. Deginum lýkur á Selfossi, fyrst fara krakkarnir á Sviðið þar sem þau fá að borða pitsu og rappararnir Issi og BigJoe skemmta þeim. Klukkan 20:00 er dagskrá menningarferðarinnar lokið. Þá taka félagsmiðstöðvarnar við keflinu og fara með krakkana á ball í Hvítahúsinu.
Háskólalestin lýkur ferð sinni í Árnessýslu með opnu vísindahúsi fyrir alla
Opið vísindahús í Félagsheimilinu Borg í Grímsnesi frá kl. 13 til 16 laugardaginn 22. nóvember. Gestir á öllum aldri geta upplifað vísindin á lifandi og spennandi hátt. Þátttakendur geta m.a. látið reyna á hæfileika sína í því að taka fréttaviðtöl, prófað tól og tæki sjúkraþjálfara, kynnst ólíkum heimum gervigreindar og séð undur efnafræðinnar hjá Sprengju-Kötu. Þá geta gestir mælt gripstyrk sinn, spilað tölvuleik um tölur, fengið innsýn í eðlisfræði skopparabolta og pappírsbáta og kynnst ævintýrum fuglanna með fuglafræðingi við Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Suðurlandi.
Aðgangur er ókeypis, öll hjartanlega velkomin og engin skráning nauðsynleg.
Kjörið tækifæri fyrir börn á öllum aldri, foreldra, ömmur og afa, frænkur, frændur, systkini og allt þar á milli.
Kórar Flóaskóla koma fram á hátíðinni
Aðventan í Flóaskóla
Í desember tökum við á móti jólahátíðinni með uppbroti á nokkrum vel völdum skóladögum.
1. desember er kyndlaganga og skreytingadagur. Þá koma allir nemendur saman að morgni og ganga saman um skólalóðina með kyndla og vasaljós. Að göngu lokinni er boðið upp á kakó og smákökur og síðan er Flóaskóli skreyttur jólaskrauti hátt og lágt.
11. desember er jólaskemmtum 1. – 7. bekkjar. Nemendur bjóða fjölskyldum sínum til samveru í Þjórsárveri og sýna helgileik og leikrit. Boðið er upp á hressingu að sýningu lokinni.
16. – 18. desember er jólahringekja. Þá vinna nemendur í blönduðum aldurshópum að fjölbreyttum verkefnum t.d. bakstri, hönnun, hreyfingu og fleira.
19. desember eru stofujól. Nemendur koma spariklæddir í skólann og eiga hátíðlega stund með umsjónarkennara sínum. Við endum svo skólastarf árið 2025 og sendum nemendur í jólafrí með jóladiskói þar sem Dj Arrows heldur uppi stuðinu.
Kvíðameðferð fyrir börn á aldrinum 5-12 ára
Sálfræðiþjónusta HSU vekur athygli á nýrri rafrænni kvíðameðferð fyrir börn á aldrinum 5-12 ára.
FLIKK (Foreldra Lausn og Internetmeðferð fyrir Kvíðna Krakka) er ný rafræn meðferð þar sem foreldrar læra aðferðir hugrænnar atferlismeðferðar til þess að hjálpa börnum sínum að yfirstíga truflandi kvíða. Meðferðin samanstendur af sjö meðferðarhlutum sem eru gefnir út vikulega. Foreldrar fara sjálfir í gegnum efnið sem er sett fram í stuttum auðlesnum textum með myndböndum og teiknimyndum. Hverjum meðferðarhluta er jafnframt fylgt eftir af sálfræðingum HSU með símaviðtali. Meðferðarhlutarnir eru gagnvirkir og innihalda spurningalista svo bæði foreldrar og meðferðaraðilar geta fylgst með framvindu meðferðar. Það tekur u.þ.b. 30 mínútur að ljúka hverjum meðferðarhluta og flestir foreldrar ljúka meðferðinni á sjö vikum.
Meðferðin var upphaflega þróuð af sérfræðingum í meðferð kvíðavanda hjá börnum við Háskólann í Reading og Oxford og er FLIKK íslensk útgáfa hennar. Sérfræðingar í kvíðavanda barna hjá Háskólanum í Reykjavík með styrk frá heilbrigðisráðuneytinu unnu að íslenskri útgáfu hennar. Háskólinn í Reykjavík í samvinnu við heilsugæslur víða um land rannsaka nú fýsileika stafrænnar heilbrigðistækni sem inniheldur gagnreynda kvíðameðferð. Foreldrar sem eiga börn á aldrinum 5-12 ára með kvíðavanda býðst nú þátttaka í þeirri rannsókn.
Enga tilvísun þarf inn í meðferðina, foreldrar/forráðamenn skrá sig sjálfir á skraning.flikk.is en þar er einnig að finna frekari upplýsingar um meðferðina sjálfa og rannsóknina.
