Smore logo
remove_red_eye 138
page background

Fréttabréf Grenivíkurskóla

3. tbl. 5. árg. - mars 2024

FréttabréfGrenivíkurskóla3. tbl. 5. árg. - mars 2024

Kæra skólasamfélag Kæra skólasamfélag

zoom_out_map

Áfram höldum við með skólaárið, marsmánuður hafinn og ekki laust við að það sé hreinlega vor í lofti, í það minnsta þegar þetta er skrifað. Birtustundum fjölgar hratt, sólin hækkar á lofti og það styttist í að hinir ýmsu farfuglar láti sjá sig eftir vetrardvöl á hlýrri slóðum.


Það er heilmikið um að vera í mars. Þar ber hæst Vorskemmtunina, en sýningar verða haldnar miðvikudaginn 13. mars og fimmtudaginn 14. mars nk., en báðar hefjast þær kl. 17:00. Vorskemmtunin og undirbúningur hennar er afar mikilvægur þáttur í skólastarfinu. Þar fer fram fjölbreytt nám þar sem nemendur þjálfast meðal annars í sviðsframkomu og söng, og á hverju ári eru fjölmargir litlir og stórir sigrar unnir, enda heilmikið mál að stíga á svið fyrir framan fullan sal af fólki. Þess utan er Vorskemmtunin einn mikilvægasti liðurinn í fjáröflun fyrir skólaferðalagið. Við hlökkum til að taka á móti gestum og sýna Dýrin í Hálsaskógi 13. og 14. mars nk.


5. mars gerum við stutt hlé á Vorskemmtunarundirbúningi og skellum okkar í árlega skíðaferð, sem hefur ávallt tekist með mikilli prýði.


Síðasti kennsludagur fyrir páskafrí er föstudagurinn 22. mars. Skóli hefst á ný að loknu páskaleyfi miðvikudaginn 3. apríl.


Með kveðju úr skólanum,

Þorgeir Rúnar Finnsson

skólastjóri Grenivíkurskóla

Rauðhetturugl Rauðhetturugl

zoom_out_map

Nemendur í leiklistarvali settu upp sýninguna "Rauðhetturugl" þann 1. febrúar sl. Sýningin var afar vel heppnuð og stóðu nemendur sig með mikilli prýði, en þau höfðu æft sig undir dyggri leiðsögn Hóbbu leikstjóra. Þau sem tóku þátt í leikritinu voru þau Ari Logi, Freyja Rán, Gylfi, Ísadóra Arnbjörg, Marit Siana, Selma Lind og Sindri Páll.

Heilsueflandi skóli Heilsueflandi skóli

open_in_new zoom_out_map

Dagatal Velvirk fyrir þennan mánuð ber yfirskriftina "í núvitund í mars". Á dagatalinu má finna ýmsar tillögur sem eru í anda þess sem rannsóknir hafa sýnt að geti hjálpað fólki að lifa hamingjuríkara lífi, svo sem að gefa af sér, tengjast öðrum, finna tilgang, leika sér og njóta augnabliksins.


Smellið hér til að sjá útprentanlegt pdf-skjal með dagatalinu.

Grænfáninn Grænfáninn

zoom_out_map
Við höldum áfram að vekja athygli á fræðslupökkum sem Landvernd gefur út og nálgast má á vefsíðunni Menntun til sjálfbærni. Í þessum mánuði beinum við sjónum okkar að lífbreytileika og vistheimt. Lífbreytileiki, eða líffræðileg fjölbreytni, nær yfir allar tegundir lífvera, en slík fjölbreytni er jörðinni mikilvæg. Vistheimt, eða endurheimt vistkerfa, snýr að því að endurheimta lífbreytileika sem víða hefur glatast.


Frekari upplýsingar og hugmyndir að ýmsum verkefnum má finna á hér.

Myndir úr skólastarfinu Myndir úr skólastarfinu

  • Leiksýning nemenda í leiklistarvali - 1. febrúar 2024
  • Skautaferð hjá 1.-4. bekk - 2. febrúar 2024
  • 9.-10. bekkur á Starfamessu í Háskólanum á Akureyri - 29. febrúar 2024

Matseðill Matseðill

open_in_new zoom_out_map

Á döfinni í mars Á döfinni í mars

  • 5. mars: Skíðadagur.
  • 6. mars: Tónleikar TE kl. 8:20 í græna salnum.
  • 13. mars: Vorskemmtun - fyrri sýning.
  • 14. mars: Vorskemmtun - síðari sýning.
  • 23. mars - 1. apríl: Páskafrí.
  • 2. apríl: Starfsdagur - frí hjá nemendum.
  • 3. apríl: Skóli hefst að loknu páskafríi.
zoom_out_map

Útgefandi: Grenivíkurskóli

Ábyrgðarmaður: Skólastjóri Grenivíkurskóla

Tölvupóstur: grenivikurskoli@grenivikurskoli.is

Heimasíða: http://www.grenivikurskoli.is

Sími: 414-5413

Facebook: Grenivíkurskóli

Grenivíkurskóli
grenivikurskoli.is
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter