Smore logo
remove_red_eye 581

Lausnir í breyttum aðstæðum

Upplýsingar tengdar lífi, námi og kennslu við skólalokun

Lausnir í breyttumaðstæðumUpplýsingar tengdar lífi, námi og kennslu við skólalokun

Breytt fyrirkomulag náms og kennslu

Kæru nemendur og forráðamenn


Eins og fram hefur komið hér á síðunni og í öllum fjölmiðlum þá hefur framhaldsskólum landsins verið lokað næstu fjórar vikurnar. Hjá okkur hefur þessi lokun í raun áhrif þessar þrjár skólavikur sem eftir eru fram að páskaleyfi.


Við munum öll þurfa að temja okkur breytt vinnubrögð en með jákvæðni, þolinmæði og lausnamiðaðri hugsun veit ég að okkur tekst þetta. Við verðum kannski ekki meistarar á einni nóttu í breyttum háttum en með sameinuðu átaki munum við komast á leiðarenda.


Hér fyrir neðan er að finna ýmsar gagnlegar upplýsingar sem ég hvet nemendur og forráðamenn til að kynna sér vel.


Kær kveðja,

Lilja skólameistari

zoom_out_map

Kennslustofur í vefumhverfi

Kennt verður samkvæmt stundatöflu í bóklegum og fagbóklegum áföngum. Veflægar kennslustofur sem við notum eru Blái hnötturinn (BigBlueButton). Efst á kennsluvef þeirra áfanga sem bjóða upp á þessar kennslustofur er hlekkur sem heitir Fjarkennsla. Nemendur smella á hann og komast þá inn í kennslustofuna.


Mikilvægt er að vera með heyrnartól með míkrófóni - þarf ekki að vera flókin græja, heyrnartól sem fylgja símum duga í flestum tilvikum.


Nemendur eiga að mæta þar í tíma stundvíslega samkvæmt stundaskrá.


Hér fyrir neðan má sjá kennslumyndband um Bláa hnöttinn.

Blái hnötturinn - kennslumyndband
zoom_out_map

Námsráðgjöf verður áfram aðgengileg

Á meðan skólinn er lokaður munu fundir nemenda með náms- og starfsráðgjafa fara fram í gegnum Teams.


Nemendur bóka þá fundi í síma 4771620 eða í gegnum tölvupóst (gudnybjorg@va.is).


Nemendur sem hafa haft fastan viðtalstíma halda honum og munu fá sendan hlekk í tölvupósti (sjá í kennslumyndbandi).

Teams fundir - kennslumyndband
zoom_out_map

Guðný náms- og starfsráðgjafi og Karen aðstoðarskólameistari eru að vinna í að opna þessa facebook síðu ásamt instagram aðgangi undir nafninu, Nemendaþjónusta VA.

Það eru öðruvísi tímar framundan hjá okkur hér í skólanum næstu vikur og ákváðum við því að opna betur á þjónustu í gegnum samfélagsmiðla.

Það getur verið mikil áskorun að stunda nám í fjarnámi en á meðan skólinn er lokaður geta nemendur (og forsjáraðilar) haft samband við okkur í gegnum síma, tölvupóst eða óskað eftir fjar-viðtali við Guðnýju í gegnum Teams.


Ekki hika við að hafa samband við þær ef eitthvað er - við komumst í gegnum þetta allt saman í sameiningu

Nemendaþjónusta VA - Facebook síða

Samskipti við skrifstofu og umsjónarkennara

Húnæði skólans er læst og aðeins aðgengilegt starfsfólki.


Ef þið þurfið að ná í skólann þá er svarað í síma frá kl. 8:00 til 12:00. Þess utan er bent á heimasíðu skólans þar sem netföng alls starfsfólks er að finna.


Umsjónarkennarar eru til staðar fyrir nemendur - sendið þeim línu ef þörf er á.

zoom_out_map

Mikilvægt að halda rútínu!

Nú þegar skólahald færist í annað form er mikilvægt fyrir okkur öll að halda okkar venjubundnu rútínu.


Hér fyrir neðan eru punktar sem hjálpa ykkur við að halda rútínunni.


Upphaf skóladags

  • Gott er að halda morgunrútínu líkt og venjulega, t.d. fara í sturtu, klæða sig, borða morgunmat, o.s.frv.
  • Reynið að hafa ákveðinn stað sem þið lærið á, s.s. við skrifborð.
  • Mætið stundvíslega í tíma í Bláa hnettinum.


Heilsa, líðan og samskipti

  • Notið eyður í stundatöflu vel, njótið þeirra og komið endurnærð í næstu kennslustund
  • Mikilvægt er að vera í sambandi við samnemendur yfir daginn, nýtið tæknina, spjallþræði og myndsamtöl til þess
  • Hugið að jákvæðu orðalagi í textaskilaboðum svo ekki verði misskilningur á líðan og finnið ykkar eftirlætis tjámerki til að létta andrúmsloftið
  • Finnið það sem gerir ykkur gott, hvort sem það er göngutúr, léttar æfingar eða annað
  • Nauðsynlegt er að fara út í ferskt loft a.m.k. einu sinni á dag
  • Finnið gleðina og húmorinn í þessum aðstæðum og finnið kostina við tímabundið fjarnám
  • Sýnið ykkur mildi, oft er fólk afkastameira í ró og næði heima, gefið ykkur klapp á bakið við og við og fagnið árangri ykkar í náminu
  • Skipuleggið vel vinnu við þau verkefni sem þið þurfið að vinna.
  • Munið að hugsa vel um ykkur.
  • Passið vel upp á að ná góðum nætursvefni og munið að það er mikilvægt að halda góðri rútínu í svefni.

zoom_out_map

Verklegir áfangar - lausnir á meðan lokað er

Verklegir áfangar eru krefjandi úrlausnarefni þessa dagana. Nemendur er hvattir til að opna kennsluvefi í öllum áföngum og skoða þar skilaboð frá kennurum varðandi fyrirkomulag. Í sumum tilfellum fellur kennslan niður, í öðrum er leitað annarra leiða.


Háriðndeild


  • Deildarstjóri hefur undirbúið nemendur fyrir vinnu við námið heima í ákveðnum verknámsáföngum. Aðrir verknámsáfangar fá í staðinn meira vægi þegar opnað verður aftur.


Rafiðndeild


  • Kennarar koma upplýsingum til nemenda sinna um útfærslu verklegra áfanga.



Málmiðndeild


  • Fjölgað verður kennslustundum í fagbóklegum áföngum á meðan lokun varir - þegar opnað verður aftur fjölgar hins vegar kennslustundum í verklegum áföngum.
  • Sjá stundatöflur hér fyrir neðan.



Byggingaiðndeild - húsasmíði



  • Fjölgað verður kennslustundum í fagbóklegum áföngum á meðan lokun varir - þegar opnað verður aftur fjölgar hins vegar kennslustundum í verklegum áföngum.
  • Sjá stundatöflur hér fyrir neðan.
pdf
insert_drive_file
Grunnnám málmiðna 2. önn - breytt stundatafla.pdf
Download
69.6 KB
pdf
insert_drive_file
Húsasmíði 2. önn - breytt stundatafla.pdf
Download
67.4 KB
pdf
insert_drive_file
Húsasmíði 5. önn - breytt stundatafla.pdf
Download
69.4 KB
pdf
insert_drive_file
Vélstjórn 4. önn - breytt stundtafla.pdf
Download
69.7 KB

Mötuneytiskostnaður

Í heimabanka þeirra sem nýta mötuneytið eru reikningar sem greiða átti í gær. Nemendur (forráðamenn) eru vinsamlegast beðnir að ganga frá þessum greiðslum þrátt fyrir lokun skólans og mötuneytisins.


Reikningar á gjalddaga í apríl hafa verið felldir niður í bili á meðan skoðað er hvernig eigi að bregðast við skólalokun gagnvart mötuneytiskostnaði.


VA er í samstarfi við aðra heimavistarskóla með mötuneyti hvað þetta varðar og er málið í skoðun hjá skólunum.

Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter