Smore logo
remove_red_eye 234
page background

Fréttabréf Síðuskóla

4. bréf - desember - skólaárið 2020-2021

FréttabréfSíðuskóla4. bréf - desember - skólaárið 2020-2021
zoom_out_map

Kæru foreldrar, nemendur og starfsfólk!

Eins og fram kom í pósti frá skólastjóra hafa sóttvarnaryfirvöld gefið út að litlar sem engar breytingar verða á takmörkunum til og með 9. desember. Við höldum því svipuðu skipulagi áfram en bætum við íþróttum og sundi samkvæmt stundatöflu hjá 1.-7. bekk. Einnig bætast við tveir íþróttatímar hjá 8.-10. bekk. Við höldum áfram að leggjast öll sem eitt á árarnar í því að komast yfir þetta tímabil. Við gætum þurft að breyta skipulagi með stuttum fyrirvara þannig að það er mikilvægt að lesa vel allar upplýsingar sem berast frá skólanum. Verið í sambandi við okkur ef eitthvað er óljóst, það er mikilvægt svo allt gangi sem allra best.


Niðurstöður samræmdu prófanna í 4. og 7. bekk liggja fyrir og erum við mjög sátt við þær. Inn á heimasíðu skólans er hægt að skoða niðurstöður prófanna.


Litlu jólin verða á sínum stað þann 18. desember. Fyrirkomulag verður með öðru sniði en vant er vegna aðstæðna sem uppi eru núna. Nánari upplýsingar er að finna neðar í póstinum.

Skólinn hefst svo aftur eftir jólaleyfi þann 5. janúar. Mánudaginn 4. janúar er skipulagsdagur og frístund er lokuð þann dag.


Starfsfólk Síðuskóla óskar nemendum og foreldrum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári um leið og við þökkum samstarfið á árinu sem er að líða. Það hefur verið mikilvægt að eiga gott samstarf við ykkur öll, þar sem verkefni ársins hafa verið óvenjuleg og krefjandi.


Með hækkandi sól tökumst við á við ný verkefni, leiðarljós okkar er að vinna saman, ná árangri og gleðjast!


Með góðri kveðju inn í helgina!

Ólöf, Malli og Helga

zoom_out_map

Á döfinni

8. desember

Kynning á Barnasáttmála og barnavernd í 8.-10. bekk

9. desember

Jólamatur fyrir 1.-10. bekk

11. desember

Kynning á Barnasáttmála og barnavernd í 4.-7. bekk
18. desember

Litlu jólin kl. 9-10.30, jólaleyfi hefst
4. janúar

Skipulagsdagur
5. janúar

Kennsla hefst eftir jólaleyfi

zoom_out_map

Litlu jólin

Vegna aðstæðna verða litlu jólin með öðru sniði en vant er. Hver árgangur mun halda litlu jólin í sínum heimastofum. Það verður dagskrá á sviðinu sem verður streymt inn í allar stofur. Að venju mun 6. bekkur sjá um jólaleikrit, Ólöf skólastjóri verður með jólahugleiðingu og síðan verða jólalögin sungin við undirleik.

Myndir úr skólanum Myndir úr skólanum

zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map

Frímínútur í 8.-10. bekk Frímínútur í 8.-10. bekk

zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map

1. bekkur að koma af bókasafninu 1. bekkur að koma af bókasafninu

zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map

2. bekkur á leið í mat 2. bekkur á leið í mat

zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map

Útsaumur í 3. bekk Útsaumur í 3. bekk

zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map

Kíkt inn í 4. bekk Kíkt inn í 4. bekk

zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map

Innlit í 5. bekk Innlit í 5. bekk

zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map

Líf og fjör í 6. bekk Líf og fjör í 6. bekk

zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map

Vöfflupartý og föndur í 7. bekk Vöfflupartý og föndur í 7. bekk

zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter