Smore logo
remove_red_eye 158
page background

Fréttamolar úr MS

15. nóvember 2024

Fréttamolar úrMS15. nóvember 2024

Vetrarönn að hefjast Vetrarönn að hefjast

Nú er haustönn lokið og vetrarönn að hefjast. Kennsla á vetrarönn hefst samkvæmt stundatöflu þriðjudaginn 19. nóvember.


Stundatöflur nemenda opna í Innu föstudaginn 15.11. Á sama tíma opnar fyrir töflubreytingar í Innu og hægt er að óska eftir töflubreytingum til kl. 15:00 mánudaginn 18. nóvember. Ef nemendur þurfa aðstoð við töflubreytingar þarf að mæta í MS á mánudaginn 18. nóv.! Nánari upplýsingar um töflubreytingar og leiðbeiningar á heimasíðu MS.


Vetrarönn hefst með stæl enda 85 vika SMS að hefjast á sama tíma. Sjá dagskrá hér neðar.

Dagsetningar framundan Dagsetningar framundan

18.-22. nóv.: 85 vika SMS

19. nóv.: Fyrsti kennsludagur vetrarannar

21. nóv.: 85 ball SMS í Gamla bíó kl. 22-1

22. nóv.: Kennsla hefst kl. 9:30 - ATH. viðvera skráð í kennslustund 2 og 3.

22. nóv.: Síðasti dagur til að skrá sig úr áföngum.

29. nóv.: Litlu jól framhaldsskólanna

19. og 20 des.: Matsdagar

20. des. kl 15:00: Brautskráning nemenda eftir haustönn fer fram í MS

23. des til og með 3. janúar: Jólafrí

6. janúar: Kennsla hefst á nýju ári.

Mætingarskráning í Innu ✅ Mætingarskráning í Innu ✅

Á vetrarönn verður lögð áhersla á að bæta mætingu og stundvísi í tíma. Sú breyting verður gerð á viðveruskráningu að sjálfvalin mætingarskráning í Innu er nú F í stað M áður. Þetta gerir það að verkum að kennari gefur M, en ekki F, og á að tryggja nákvæmari mætingarskráningu. Lögð er áhersla á að kennarar skrái mætingu við upphaf kennslustunda.

Mæting, veikindi og leyfi

Dagskrá 85 vikunnar Dagskrá 85 vikunnar

85 vika SMS hefst strax á mánudag með keilu í Keiluhöllinni. Starfsmenn skólans verða á staðnum.


Mánudagur 18. nóvember:

85‘ keila í Keiluhöllinni kl. 21:30-23:30

Þriðjudagur 19. nóvember:

Fyrsta hlé: Bendileikur

Hádegi: Tískusýning starfsfólks / kennara

Miðvikudagur 20. nóvember:

Fyrsta hlé: Listafélagið

Hádegi: Lip sync challenge

Eftir skóla: Hæfileikakeppni SMS.

Fimmtudagur 21. nóvember:

Fyrsta hlé: Mylluleikur

Hádegi: Ármaður SMS leikur 85 slagara á gítar

Kvöldið: 85‘ ballið í Gamla bíó


Föstudagur 22. nóvember: Kennsla hefst kl. 9:30. Skrifstofan fellir niður fyrsta tímann (8:30-9:10) og svo er lesið upp í annan tíma kl. 9:30. Nemendur fá því skráða viðveru í tvo tíma í morgunstokki (í stað þriggja).


Minnt er á að allir viðburðir á vegum skólans eru án áfengis, vímuefna og tóbaks. Skólareglur gilda á viðburðum sem og viðurlög við brotum á þeim. Öll eru hvött til þátttöku í edrúpotti á ballinu og til mikils að vinna en dregið verður úr pottinum vikuna eftir ball. Allir nýnemar og gestir fæddir 2008 þurfa að blása í áfengismæli við inngöngu á ballið.

Litlu jól framhaldsskólanna Litlu jól framhaldsskólanna

Litlu jól framhaldsskólanna er viðburður skipulagður af umhverfisnefndum MS, FÁ og Tækniskólans. Litlu jólin fara fram í FÁ fimmtudaginn 29. nóvember. Þar verður m.a. fataskiptimarkaður, fríbúð, piparkökuskreytingar með gömlum/útlitsgölluðum piparkökum, loftslagsvænt kakó, gjafakortasmiðja, jól í skókassa, fataviðgerðir, tónlistaratriði og fleira í þeim dúr.

Frá tölvuumsjón Frá tölvuumsjón

Gott að er uppfæra og endurræsa tölvuna við upphaf nýrrar annar svo tölvan byrji nýja önn jafn fersk og nemendur!

Skóladagatal 2024-2025 Skóladagatal 2024-2025

open_in_new zoom_out_map

Smellið á myndina til að sjá dagatalið í betri upplausn.

Gagnlegir hlekkir Gagnlegir hlekkir

💻 Tölvuaðstoð 💻
✨ Náms- og starfsráðgjöf ✨
Menntaskólinn við Sund Msund
Menntaskólinn is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter