Smore logo
remove_red_eye 120
page background

DJÚPAVOGSSKÓLI

HUGREKKI - VIRÐING - SAMVINNA

DJÚPAVOGSSKÓLI HUGREKKI - VIRÐING - SAMVINNA

OKTÓBER

  • 22.október - fyrsti vetrardagur.
  • 24.október Vetrarfrí.
  • 25.október Vetrarfrí.


Förum að skoða nóvember á skóladagatalinu.

Þar er dagur íslenskrar tungu og gestadagur.

Förum að byrja undirbúning fyrir upplestrarkeppnina í 7.bekk.

Dagur mannréttinda barna er í nóvember.

Sameiginlegur skipulagsdagur í Múlaþingi.


https://www.djupavogsskoli.is/_files/ugd/ea0373_6fad1afa261e41368e6d920465f1fa67.pdf

NÆSTA VIKA

Mánudagur 17.október
  • Mætum hress og kát eftir gott helgarfrí.


Þriðjudagur 18.október

  • 14:20 - 15:50 Fagfundur - kennsluáætlanir.


Miðvikudagur 19.október

  • Góður dagur til að staldra við og njóta.


Fimmtudagur 20.október

  • 14:20 - 15:50 Teymisfundur, hvert teymi hittist í undirbúning og frágang fyrir vetrarfrí.


Föstudagur 21.október

  • Förum í gott helgarfrí og svo tekur vetrarfrí við eftir helgi.


SKÓLI HEFST AFTUR MIÐVIKUDAGINN 26.OKTÓBER.

MATSEÐILL NÆSTU VIKU

HELLINGUR AÐ GERAST HJÁ OKKUR

Þetta var nokkuð viðburðarík vika hjá okkur. Hún byrjaði með hvelli, frekar hvasst á mánudaginn og vantaði marga nemendur í skólann. Það var ákveðið að allur skólinn færi saman í mat og þeir eldri leiddu þá yngri í gegnum storminn og allt gekk vel. Allur skólinn tók líka frímínútur saman og eldri nemendur léku við þá yngri, einstaklega skemmtilegt og vel gert hjá þeim.

Veltibíllinn kom líka í heimsókn og það vakti mikla lukku hjá flestum en sumir völdu að horfa á.

Á þriðjudag var skipulagsdagur og á miðvikudaginn komu nemendur í samskiptaviðtal með foreldrum.

Á fimmtu- og föstudag voru leikjadagar þar sem áhersla var á nám í gegnum leik. Á fimmtudeginum sá hver kennari um að tengja námið við leiki og það var gaman að sjá hvað var mikil fjölbreytni í því.


Í morgun byrjaði dagurinn í íþróttahúsinu með þeim Gunnari og Felix. Gunnar sagði okkur leyndarmálið á bak við góða barnabók og Felix sagði okkur frá því hvað fjölskyldur geta verið fjölbreyttar og allskonar. Í lokin var sungið og dansað, frábært að byrja leikjadag með þeim félögum.

Næst fórum við á Bjargstúnið þar sem við hlupum í skarðið :)


Við þetta bættist svo bleikt þema :) virkilega hressandi og skemmtileg vika.

zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
Yngstastig fékk að prófa unglingasófann :)
zoom_out_map
Stutt í að þessi verði komin í sófann alla daga :)
zoom_out_map
Ellý, Ada og Andrea tóku vel á móti yngsta stigi.
zoom_out_map
Heiðrós Harpa hoppar ...
zoom_out_map
...þessir hittust á miðstigi...
zoom_out_map
...og Örn Þór var með sögustund.

VELTIBÍLLINN VAR VINSÆLL

zoom_out_map

zoom_out_map

zoom_out_map

zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map

MYNDIR FRÁ LEIKJADÖGUM

Það voru fjölbreyttir leikir á leikjadögum og sem dæmi þá eru nemendur í 3. og 4. bekk að læra um landnámið og hafa verið að vinna með landnámsmenn Múlaþings með Unni samfélagsgreinakennara. Í kennslustundinni á fimmtudaginn var einblínt á leiki liðinna tíma og sýndi Unnur nemendunum völu spákonu og kenndi þeim eina af spákonuþulunum sem hægt er að þylja þegar vala er spurð og allir fengu að prufa. Einnig fengu nemendur að skoða ýmislegt sem notað var í búleiki barna (kjálka, leggi og slíkt), gamall ísleggur var til sýnis sem amma Unnar skautaði á í gamla daga, þeytispjald (með tölu) fékk að snúast og að lokum spreyttu allir sig í fuglafiti. Unnur sýndi nemendum einnig skemmtilegt myndband um leiki barna á árum áður og hægt er að horfa á myndbandið á slóðinni hér:

https://fb.watch/g7QHMGaxT6/

zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
https://www.youtube.com/watch?v=ASVQnuMLBoA


https://www.youtube.com/watch?v=I3GtNJWb2tE


https://www.youtube.com/watch?v=XGw8MCiMY3k

Hera er af þeirri kynslóð sem ólst upp við Gunnar og Felix í Stundinni okkar....mikið var hún glöð að hitta þá félaga.

Bestu kveðjur og góða helgi,

Starfsfólk Djúpavogsskóla.

Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter