Smore logo
remove_red_eye 538
page background
page background

Fréttabréf Síðuskóla

4. bréf - desember- skólaárið 2025-2026

Fréttabréf Síðuskóla4. bréf - desember- skólaárið 2025-2026
User uploaded image
zoom_out_map

Kæru foreldrar, nemendur og starfsfólk

Þá er nóvembermánuður liðinn og óhætt að segja að hann hafi verið viðburðaríkur. Árshátíð skólans var hápunktur mánaðarins og tókst afburðavel. Nemendur og starfsfólk stóðu sig frábærlega hvort sem um var að ræða undirbúning, atriði á sviði eða frágang. Þann 21. nóvember gafst svo loksins tækifæri til að halda hrósmiðahátíð til að fagna því að nemendur skólans hafa safnað í sameiningu yfir 20.000 hrósmiðum. Í þetta sinn fengum við annan meðlim söngdúettsins Húbba Búbba til að skemmta nemendum og starfsfólki. Það er óhætt að segja að þessari umbun var vel tekið og er það mál manna hér í skólanum að þetta verði erfitt að toppa.

Þar sem desember er rétt genginn í garð er ekki úr vegi að fara yfir það helsta sem um verður að vera í skólanum fram að jólafríi:

  • 3. desember - Jólaþemadagur: Þennan dag brjótum við upp hefðbundna kennslu og bjóðum upp á ýmislegt skemmtilegt s.s. föndur, hreyfingu og fleira. Boðið verður upp á kakó, frjálst nesti er leyfilegt og nemendur eru hvattir til að mæta í einhverju jólalegu.
  • 12. desember - Jólasöngsalur og jólamatur: Nemendur koma saman á sal og syngja jólalög, jólamatur í hádeginu.
  • 18. desember - Spurningakeppni fyrir 8.-10. bekk: Skemmtileg hefð þar sem nemendur spreyta sig á ýmsum spurningum.
  • 19. desember: Litlu jólin - Fyrirkomulag er að finna neðar í póstinum.

Jólafrí hefst að loknum litlu jólum og kennsla hefst á ný mánudaginn 5. janúar.

Nú þegar skammdegið er gengið í garð er afar mikilvægt að börnin — og við fullorðna fólkið ekki síður — notum endurskinsmerki eða endurskinsvesti. Í myrkri sjást gangandi og hjólandi vegfarendur illa, jafnvel þar sem götulýsing er til staðar.

Að endingu er gaman að segja frá því að foreldrafélagið gaf skólanum 150 þúsund krónur til bókakaupa á bókasafnið. Skólinn þakkar foreldrum kærlega fyrir þessa gjöf, hún nýtist vel við að kaupa nýjar bækur.


Starfsfólk Síðuskóla óskar nemendum og foreldrum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári um leið og við þökkum samstarfið á árinu sem er að líða. Með hækkandi sól tökumst við á við ný verkefni, leiðarljós okkar er að vinna saman, ná árangri og gleðjast!


Með góðri kveðju!

Ólöf, Helga og Anna María

Litlu jólin Litlu jólin

User uploaded image
zoom_out_map

Litlu jólin verða föstudaginn 19. desember. Allir nemendur koma í skólann kl. 9.00 og fara heim um kl. 11.00. Dagskrá verður á sal þar sem nemendur í leiklistarvali á miðstigi sýna jólaleikrit og einnig er samvera í heimastofum. Að lokum hittast svo allir í íþróttasalnum og ganga saman í kringum jólatréð.

Frístund er opin þennan dag fyrir þá sem þar eru skráðir.

Hápunktar nóvembermánaðar Hápunktar nóvembermánaðar

User uploaded image
zoom_out_map

Það er alltaf nóg um að vera í Síðuskóla og nóvembermánuður var þar engin undantekning. Fyrri hluti mánaðar fór að mestu í undirbúning og uppsetningu árshátíðarinnar sem svo var haldin með pompi og prakt dagana 13. og 14. nóvember. Þann 18. nóvember var formleg setning upplestrarkeppna í 4. og 7. bekk. Upplestrarkeppnirnar kallast Litla upplestrarkeppnin í 4. bekk og Upphátt í 7. bekk, tilgangur þeirra er að bæta árangur í lestri, munnlega tjáningu og framkomu. Þann 20. nóvember fengu nemendur í 4. - 8. bekk heimsókn frá Ævari Þór Benediktssyni sem kynnti og las upp úr nýjustu bók sinni Skólastjóranum og þann 21. nóvember kom Húbba Búbba eins og fyrr segir. Hér koma nokkrar skemmtilegar myndir frá öllum þessum viðburðum.

Vel heppnuð árshátíð dagana 13. og 14. nóvember Vel heppnuð árshátíð dagana 13. og 14. nóvember

User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map

Setning Litlu upplestrarkeppninnar og Upphátt Setning Litlu upplestrarkeppninnar og Upphátt

User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map

Bókakynning Bókakynning

User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map

20.000 hrósmiðahátíð 20.000 hrósmiðahátíð

User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map

Á döfinni

3. desember

Jólaþemadagur - nemendur og starfsfólk klæðast einhverju jólalegu.

11. desember

1. bekkur fer í jólaheimsókn í Síðusel og á Krógaból

12. desember

Jólasöngsalur og jólamatur í hádeginu - nemendur og starfsfólk klæðast einhverju jólalegu.

16. desember

Sesselía Ólafsdóttir verður með bókakynningu fyrir 8. - 10. bekk

18. desember

Spurningakeppni í unglingadeild

19. desember

Litlu jól - jólafrí nemenda hefst

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
Síðuskóli Akureyri
Síðuskóli is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter