Smore logo
remove_red_eye 440
page background
Logo

Tæknótíðindi

18. febrúar 2025

Tæknótíðindi18. febrúar 2025

Dagsetningar framundan Dagsetningar framundan

  • 21. febrúar - Frumsýning á leikritinu Klú
  • 26. febrúar - Árshátíð TÆKNÓ og MH
  • 28. febrúar - Lokar fyrir kennslumat
Á döfinni; viðburðir, stoðtímar, frídagar....

Skóladagatal Tækiskólans á PDF formi er aðgengilegt hér!

Árshátíð TÆKNÓ og MH Árshátíð TÆKNÓ og MH

zoom_out_map

Tækni­skólinn og Mennta­skólinn við Hamrahlíð halda árshátíð á Hvala­safninu miðvikudaginn 26. febrúar í anda The Great Gatsby.


DJ Kollz x Viktoria Storm, Inspector Spacetime, Birnir, BlazRoca og Issi sjá um tónlistina.


Miðaverð er 4.990 kr. fyrir nem­endur Tækni­skólans en 5.990 kr. fyrir gesti. Nælið ykkur í miða á árshátíð!


Árshátíðarmatur Tækni­skólans verður á Fosshótel Reykjavík. Ef þig langar að koma í matinn þarftu að skrá þig fyrir 12:00 miðvikudaginn 19. febrúar.


Maturinn kostar 4.000 kr. en borðhald byrjar kl. 19:00 og stendur til kl. 21:00. Hér getur þú skráð þig í árshátíðarmatinn.

Nánari upplýsingar um árshátíð og árshátíðarmat

Morðingi gengur laus! Morðingi gengur laus!

zoom_out_map

Úti er snjó­bylur, ekkert skyggni og mikil ókyrrð. Frú Páfugl, herra Sinnep, frú Rauð, pró­fessor Plóma, herra Grænn og frú Hvít eru stödd á sveita­hóteli. Á hót­elinu hefur verið framið morð. En hver er morðinginn?


Leik­fé­lagið MARS frum­sýnir leikrit skóla­ársins föstudaginn 21. febrúar. Leik­ritið heitir Klú og er byggt á morðgátu­spilinu Clue. Leik­ritið gerist á sveita­hóteli árið 1954 þar sem gestir og starfs­fólk lenda í óvæntri atburðarás. Leiksýningarnar fara fram í hátíðarsal skólans á Háteigsvegi (Sjómannaskólahúsi).


Miðasala:

  • Föstudagurinn 21. febrúar kl. 20:00 – Miðasala hér
  • Laugardagurinn 22. febrúar kl. 20:00 – Miðasala hér
  • Sunnudagurinn 23. febrúar kl. 19:00 – Miðasala hér
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
Nánari upplýsingar um leikritið Klú

Sjúkt spjall Sjúkt spjall

zoom_out_map

SJÚKÁST er forvarnarátak á vegum Stígamóta um ofbeldi í nánum samböndum ungmenna. Markmið átaksins er að ungmenni þekki lykilhugtök á borð við mörk og samþykki og geti greint muninn á heilbrigðum, óheilbrigðum og ofbeldisfullum samböndum.


Sjúktspjall

Sjúktspjall er nafnlaust netspjall fyrir ungmenni yngri en 20 ára til að ræða áhyggjur af samböndunum sínum, samskiptum eða ofbeldi.


Hvernig virkar Sjúktspjall?

Á spjallinu talar þú við Sjúkást ráðgjafa sem eru þjálfaðir af Stígamótum. Þú kemur inn á spjallið á eigin forsendum og þarft ekki að gefa upp nafn eða aðrar persónuupplýsingar. Það skiptir ekki máli hvort ofbeldið eða óheilbrigðu samskiptin áttu sér stað nýlega eða fyrir löngu síðan. Markmiðið er að hjálpa þér að skilja hvað gerðist, að þér líði betur og fáir stuðning við að taka næstu skref.

Sjúktspjall

Ert þú með sumarstarf? Ert þú með sumarstarf?

zoom_out_map

Starfa­stræti Tækni­skólans hefur þann til­gang að tengja saman nem­endur og fyr­ir­tæki þegar kemur að atvinnu­leit og starfs­námi.


Á síðunni má finna starfsaug­lýs­ingar frá fyr­ir­tækjum sem eru að leita að ein­stak­lingum í sum­arstörf eða önnur störf tengd fag­greinum skólans.


Nemendur sem eru að ljúka fyrsta ári í rafiðnum, byggingagreinum og málmiðnum eru sérstaklega hvattir til að huga að sumarstörfum sem tengjast náminu.

Kíktu á Starfastrætið

Loftlagssjóður ungs fólks Loftlagssjóður ungs fólks

zoom_out_map

Reykjavíkurborg hefur opnað fyrir umsóknir í loftslagssjóð ungs fólks fyrir árið 2025 þar sem markmiðið er að virkja ungt fólk í leit að lausnum á loftslagsvandanum.


Skilyrðin fyrir því að fá styrk eru:

  1. að verkefnin séu hönnuð og unnin af ungu fólki á aldrinum 15–24 ára.
  2. að þau vísi á einhvern hátt í loftslagsáætlun Reykjavíkur.


Endilega kannið málið!

Nánari upplýsingar

Forritunarkeppni grunnskólanna Forritunarkeppni grunnskólanna

Við þökkum öllum þeim frábæru þátttakendum sem heimsóttu Tækniskólann laugardaginn 15. febrúar og tóku þátt í Forritunarkeppni grunnskólanna og forritunarnámskeiði.


Alls mættu um 40 nemendur úr 9. og 10. bekkjum grunnskóla og var þetta virkilega flottur hópur sem á framtíðina fyrir sér.


Veitt voru verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin í keppninni og voru úrslit sem hér segir:

  • 1. sæti – Gunnsteinn Þór Ólason
  • 2. sæti – Magnús Kári Kristbjarnarson Bergs
  • 3. sæti – Magnús Andri Maronsson


Til hamingju kæru nemendur og takk fyrir komuna!

zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map

Alúð - Framsækni - Fjölbreytileiki Alúð - Framsækni - Fjölbreytileiki

Tækniskólinn - skóli atvinnulífsins
tskoli.is
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter