Smore logo
remove_red_eye 915
page background

Hvalrekinn

2. júní 2023

Hvalrekinn 2. júní 2023
zoom_out_map
Ágætu foreldrar


Þá er þessu skólaári næstum lokið. Skólaslit eru á fimmtudaginn 8. júní og bjóðum við alla velkomna og vonandi sjáum við ykkur sem flest.

Ég óska þess að þið öll hafið það sem best í sumar. Njótið sumarsins, hlúum að okkar nánustu og mætum hress og kát í ágúst þegar skólinn hefst að nýju.


Kristinn Guðlaugsson, skólastjóri.

zoom_out_map

Síðustu skóladagar þetta skólaárið

  • Dagskrá bekkja/ árganga má sjá á Mentor.
  • Stelpur og tækni þann 5. júní fyrir stúlkur í 9. bekk

  • Útskriftarferð nemenda í 10. bekk er 5. júní

  • Nemendur í 7., 8. og 9. bekk þurfa að skila inn umsókn um valgreinar fyrir næsta skólaár ekki seinna en 5. júní. Valblað nemenda verður inni í Google classroom á Ipadinum.
  • Nemendur eiga að skila spjöldum / Ipödum, hleðslutækjum og snúrum og vera búnir að taka lykiloðið af spjaldinu, mánudaginn 5. júní
  • Íþróttadagur er miðvikudaginn 7. júní.

  • Skólaslit 8. júní:
zoom_out_map

Útskrift nemenda í 10. bekk

Útskrift nemenda í 10. bekk verður fimmtudaginn 8. júní. Athöfnin fer fram á sal skólans og hefst klukkan 15:00.

Myndataka verður af nemendum að lokinni athöfn.

Að lokinni athöfn er nemendum og gestum þeirra boðið að þiggja kaffiveitingar.


Miðvikudaginn 7. júní kl. 12:00 verða einkunnir nemenda í 10. bekk lesnar yfir í innritunarkerfi framhaldsskólans og birtar nemendum í umsókn þeirra til framhaldsskólanna.

zoom_out_map

Skólaslit nemenda í 1. - 9. bekk

Skólaslitin í Hvaleyrarskóla verða fimmtudaginn 8. júní. Mæting nemenda á sal er sem hér segir:

Yngri deild:

  • 1. og 2. bekkir kl. 8:30
  • 3. og 4. bekkir kl. 9:30

Miðdeild:

  • 5., 6. og 7. bekkir kl. 10:30

Elsta deild:

  • 8. og 9. bekkir kl. 11:30


Nemendur mæta á sal skólans en fara síðan í sínar heimastofur með umsjónarkennara. Foreldrar eru hjartanlega velkomnir á skólaslitin með sínum börnum..

zoom_out_map

Hvetjum alla krakka til að taka þátt í sumarlesti Bókasafns Hafnarfjarðar 🙂

Skráning í sumarlestur er hafin! Allir krakkar geta skráð sig svo nú er um að gera að grípa lestrardagbækur og lestrarhestamiða á bókasafninu. Upphaf sumarlestursins er laugardaginn 3. júní.

Hér má finna efni tengt sumarlestrinum.

Hversu margar blaðsíður ætlar þú að lesa í sumar? 🐱‍👓

zoom_out_map

Hreinsunardagur

Föstudaginn 21. apríl vorum við í Hvaleyrarskóla með hreinsunardag. Árgöngum við skipt á svæð í nágreinni skólans og voru allir úti að tína í 1-2 kennslustundir.

Nemendur stóðu sig vel og safnaðist ótrúlega mikið af rusli sem Ragnar Óli húsumsjónarmaður fór síðan með á Sorpu.

Glæsilegt hjá okkar nemendum.

Hátíð á Holtinu Hátíð á Holtinu

zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map

Verið - dagskrá fyrir maí Verið - dagskrá fyrir maí

zoom_out_map

Dagskrá elstu deildar

zoom_out_map
zoom_out_map

Dagskrá miðdeildar

Frá árshátíðum nemenda í elstu- og miðdeild Frá árshátíðum nemenda í elstu- og miðdeild

zoom_out_map

Árshátíð elstu deildar

zoom_out_map

Vel skreytt anddyri

zoom_out_map

Árshátíð miðdeildar

zoom_out_map

Skóladagatal 2023-2024

Skóladagatal Hvaleyrarskóla fyirr komandi skólaár 2020-2021 var samþykkt í skólráði í lok mars. Í framhaldinu fór það til staðfestingar Fræðsluráðs.

Hér má sjá skóladagatalið.

Skólasetning næsta skólaárs verður miðvikudaginn 23. ágúst. Tímasetningar verða auglýstar þegar nær dregur.

zoom_out_map

Sumarfrístund i Holtaseli 2023

Mánudaginn 12. júní hefst sumarfrístund í Holtaseli.

Sumarfrístund fyrir 7-9 ára.
Sumarnámskeið eru starfrækt í frístundaheimilum Hafnarfjarðar. Sumarfrístund inniheldur fjölbreytta dagskrá sem samanstendur af skapandi verkefnum, leikjum, hreyfingu, spennandi ferðum, sundferðum og sameiginlegum viðburðum.

Í Holtaseli, frístundaheimili Hvaleyrarskóla verður sumarfrístund í boði frá 12.-30. júní.

Miðlæg námskeið verða í tveimur grunnskólum Hafnarfjarðar og eru í boði frá 3. – 23. júlí. Opið er fyrir skráningu frá og með 3. maí.


Skráning og framboð- https://sumar.vala.is/#/login

Sjá nánar á heimasíðu skólans.

KURTEISI ~ ÁBYRGÐ ~ SAMVINNA KURTEISI ~ ÁBYRGÐ ~ SAMVINNA

zoom_out_map

Hvalrekinn


Opnunartími skrifstofu:

Kl. 7:45 - 15:30 mán-fim

Kl. 7:45 - 14:00 fös



Fréttabréf Hvaleyrarskóla. Sent á foreldra nemenda skólans og skólasamfélagið.

Email: hvaleyrarskoli@hvaleyrarskoli.is
Website: www.hvaleyrarskoli.is
Location: Akurholti 1
Phone: 354 565 0200
Facebook: https://www.facebook.com/hvaleyri/

Hvaleyrarskóli Hafnarfirði
Hvaleyrarskóli is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter