Smore logo
remove_red_eye 210
page background

Sumar Þytur

Fréttabréf Þelamerkurskóla júní 2018

Sumar ÞyturFréttabréf Þelamerkurskóla júní 2018
Nemendurnir 10 sem brautskráðust frá skólanum 1. júní 2018
zoom_out_map

Skólaslit Þelamerkurskóla

Skólárinu 2017-2018 var slitið í Hlíðarbæ föstudaginn 1. júní sl. Þá brautskráðust frá skólanum 10 nemendur og sex nemendur voru boðnir velkominir í fyrsta bekk.


Þegar þetta er ritað er ljóst að nemendafjöldinn mun haldast stöðugur á næsta ári og verða nemendur rúmlega 70.


Í frétt á heimasíðu skólans hérna fyrir neðan er hægt að lesa nánar um skólaslitin.

Skólaslit Þelamerkurskóla skólaárið 2017 -2018 | Þelamerkurskóli

Skólaslit Þelamerkurskóla skólaárið 2017 -2018 | Þelamerkurskóli

Þelamerkurskóla var slitið föstudaginn 1. júní í Hlíðarbæ. Að þessu sinni voru tíu nemendur útskrifaðir frá skólanum. Veitt voru verðlaun fyrir hæsta með

launch thelamork.is

Skóladagatal næsta vetrar er komið á vef skólans Skóladagatal næsta vetrar er komið á vef skólans

https://www.thelamork.is/static/files/skoladagatal-2018-2019_loka.pdf

launch thelamork.is

Nýir starfsmenn skólans næsta vetur Nýir starfsmenn skólans næsta vetur

Nýir starfsmenn á næsta skólaári | Þelamerkurskóli

Nýir starfsmenn á næsta skólaári | Þelamerkurskóli

Næsta haust hefja fjórir nýir starfsmenn störf við skólann. Það er meira en oft hefur verið hjá okkur.

launch thelamork.is

Góð gjöf frá Tölvuteki

Í vetur auglýsti fyrirtækið Tölvutek eftir skólum sem óskuð eftir því að fá gefins 25 Chormebooks fartölvur frá Acer. Þelamerkurskóli sótti um og var svo heppinn að vera valinn úr um það bil 50 umsóknum.


Eins og fram kemur í frétt á heimasíðu skólans þá munu þessar tölvur verða nýttar til að innleiða m.a. verkfæri Google hjá nemendum í 1. - 4. bekk.

Duttum í lukkupottinn | Þelamerkurskóli

Duttum í lukkupottinn | Þelamerkurskóli

Á vordögum auglýsti Tölvutek eftir skólum sem vildu þiggja 25 Acer Chromebook fartölvur að gjöf. Engin skilyrði voru sett fyrir gjöfinni önnur en að sækja

launch thelamork.is

Nýtt útlit heimasíðunnar

Heimasíða Þelamerkurskóla hefur fengið nýtt útlit og unnið er í að uppfæra á henni texta og laga til í hlekkjum hennar. Þegar þetta er skrifað er það verk rétt um hálfnað. Við þiggjum allar góðar ábendingar um innihald og uppsetningu síðunnar. Þannig gagnast hún sem flestum.


Ef þú ert með ábendingar sendu þá línu á netfangið thelamork@thelamork.is

Setning skólaársins 2018-2019

Skólaárið 2018-2019 verður sett úti í Mörk, útiskólasvæði skólans sem er staðsett norðan við Laugaland, miðvikudaginn 22. ágúst kl. 16:00. Safnast er saman við skólann kl. 16 og haldið út í Mörk. Eftir það safnast nemendur saman með umsjónarkennurum sínum og ganga í heimastofuna sína.


Allir eru velkomnir á setninguna. Heitt á könnunni í mötuneytinu.


Hlökkum til að sjá sem flesta.


Hafið það sem best í sumarleyfinu -

Ingileif og Unnar

zoom_out_map

Kastað hátt og langt

Stígvélakast er ein af keppnisgreinum Þelamerkurleikanna.
zoom_out_map

Afhending verðlauna

Á Þelamerkurleikunum eru veitt verðlaun fyrir hverja grein í hverjum aldursflokki.
zoom_out_map

Langstökk

Það er líka keppt í hefðbundnum greinum á Þelamerkurleikunum eins og langstökki.
zoom_out_map

Þelamerkurskóli

Email: thelamork@thelamork.is
Website: https://www.thelamork.is/is
Phone: 460 1770
Facebook: https://www.facebook.com/telamork/
Twitter: @thelamork

Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter