Smore logo
remove_red_eye 303
page background

Fréttamolar

1. apríl 2022

Dagsetningar framundan launch

01. apríl - Kosningum SMS lýkur í dag kl. 17:00.

05. apríl - Opið hús í MS! Kynning fyrir grunnskólanema.

07. apríl - Bergur Ebbi með uppistand/fræðslu fyrir ALLA nemendur

11. apríl - Páskafrí hefst.

20. apríl - Fyrsti kennsludagur eftir páskafrí.

20. apríl - Frumsýning Thalíu

Skóladagatal MS

Kosningar SMS

Það eru líflegir dagar í skólastarfinu núna. Kosningar í gangi og veruleg spenna í loftinu, margir flottir einstaklingar í framboði og dýrmæt reynsla fyrir nemendur sem eru að stíga sín fyrstu spor í lýðræðilegum kosningum. Það er í nógu að snúast því að í næstu viku tekur ný stjórn SMS við völdum og við bjóðum grunnskólanemendum í heimsókn í MS á þriðjudaginn!

Ertu ókei?

Því miður er það svo að við göngum öll í gegnum erfiða tíma á lífsleiðinni. Orsakirnar geta verið margar og þegar á móti blæs er gott að vita af því að það er stuðningur í boði. Á heimasíðunni ertu ókei? er að finna fróðleik og ýmis bjargráð sem allir ættu að vita af og þekkja til, bæði fyrir sig sjálfa sem og aðra.

Ertu ókei?
Ertu okei?

Þekkir þú einhverja grunnskólanemendur? Á þriðjudaginn gefst tækifæri til að koma í heimsókn og skoða skólann og spjalla við þá frábæru nemendur sem þar stunda nám!

Áfram MS!

Morfís - naumt tap eftir æsispennandi viðureign við Versló

Á laugardaginn atti lið MS kappi við sterkt lið Verslunarskólans. Eftir mjög harða keppni og glæsilega frammistöðu beggja liða var niðurstaðan afar naumt tap og er því Morfísliðið úr leik að þessu sinni. Framtíðin er greinlega björt og verður gaman að sjá hvernig liðinu mun ganga á næsta ári!

Menntaskólinn við Sund - msund@msund.is
www.msund.is
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter