Smore logo
remove_red_eye 865
page background

Fréttamolar úr MS

17.09.2021 Góða og gleðilega helgi

Fréttamolar úrMS17.09.2021 Góða og gleðilega helgi
zoom_out_map

Nú lifnar yfir félagslífinu

Ný reglugerð (1030/2021) hefur nú tekið gildi og gildir til og með 6. október 2021.


Það sem er nýtt að þessu sinni gagnvart skólastarfi:


  • Fjöldatakmarkanir almennt eru 500 - sem þýðir að nemendur geta nú haft uppákomur í Holti bæði á skólatíma og utan hans. Grímuskylda er á slíkum viðburðum - þó nemendur verði að sjálfsögðu að fá tækifæri til að matast.
  • Framhaldsskólum er heimilt að halda skemmtanir fyrir nemendur fyrir allt að 1.500 gesti að því gefnu að gestir framvísi neikvæðri niðurstöðu úr hraðprófi (antigen) sem ekki má vera eldra en 48 klst. Slíkar skemmtanir eru undanþegnar nálægðartakmörkunum og grímuskyldu. Skylt er að skrá gesti með nafni, kennitölu og símanúmeri.


Engar breytingar eru varðandi fjarlægðartakmörk í skólastarfinu almennt og því verður grímuskylda í skólanum með sama hætti og verið hefur í haust. Grímuskyld er á göngum og opnum svæðum en engin grímuskylda þegar nemendur sitja í sætum sínum í skólastofunni.


Nemendafélagið mun fljótlega auglýsa fyrsta skólaballið síðan febrúar 2020.

zoom_out_map

Hægt að velja úr átta persónufornöfnum í Innu

Í Innu er komin ný leið til þess að skrá persónufornafn. Með persónufornafni er átt við að nemendur skólans geta skráð með hvaða fornafni þeir vilja skilgreina sig.

Hér fyrir neðan eru leiðbeiningar.

pdf
insert_drive_file
Skráning kyns í Innu.pdf
Download
335.5 KB
zoom_out_map

Fróðleiksmolinn

Á heimasíðu Háskóla Íslands er að finna afar gagnlegar upplýsingar fyrir ritgerðaskrif og heimildaskráningu samkvæmt APA kerfinu.


Til dæmis eru sýnidæmi fyrir heimildaskrá og sætin 5.


Smellið á hlekkinn hér fyrir neðan til að skoða þetta betur.

Ritver HÍ

Myndir frá útgáfu nýnemablaðsins Myndir frá útgáfu nýnemablaðsins

zoom_out_map

zoom_out_map

zoom_out_map

Tölvuaðstoð í MS - smelltu hér
Tölvuumsjón veitir nemendum aðstoð er snýr að þeim vélbúnaði og hugbúnaði sem skólinn veitir, sem og almenna tölvuaðstoð fyrir nemendur. Á svæði tölvuumsjónar á heimasíðunni er að finna ýmiss konar leiðbeiningar.
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter