Smore logo
remove_red_eye 965
page background

Hvalrekinn

27. mars 2023

Hvalrekinn 27. mars 2023
zoom_out_map

Páskakveðja

Ágætu foreldrar


Senn líður að páskafríi sem hefst í lok vikunnar eða 31. mars.


Áður en að páskafríinu kemur ætlum við að brjóta upp hefðbundið skólastarf og hafa þemadaga hjá okkur frá þriðjudegi og út vikuna. Undirbúningur er hafinn fyrir þó nokkru hjá kennurum og nemendum.


Föstudaginn 31. mars verður opið hús í skólanum frá kl. 10:00 til 11:30 þar sem foreldrar eru hjartanlega velkomnir til að sjá afrakstur þemadaganna. Vonum við að sem flestir geti gefið sér tíma til að líta við og sjá afrakstur vinnu nemenda.


Hafið það sem best og gleðilega páska.


Kristinn Guðlaugsson, skólastjóri.

Stóra Upplestrarkeppnin

Stóra Upplestrarkeppnin fór fram í Víðistaðakirkju þann 21. mars. Hvaleyrarskóli átti tvo fulltrúa í keppninni Elísu Axelsdóttur og Berglind Snædísar Sólveigardóttir sem stóðu sig með prýði og voru sér og skólanum til sóma. Hér fyrir neðan má sjá þær lesa fyrir áhorfendur og mynd af keppendum grunnskólanna í Hafnarfirði.
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map

Þemadagar uppbrot á kennslu

Dagana 28. - 31. mars (þriðjudag til föstudag) eru þemadagar hjá okkur í Hvaleyrarskóla.

Þessa daga er skert viðvera nemenda í skólanum en skólinn hefst kl. 8:20 og stendur til kl. 13:20 nema á föstudag þá er skóli til hádegis.

Nemendur sem eru skráðir í Holtaseli fara að skóladegi loknum í Holtasel.

Þema í Hvaló 2023 - elstu deildar

Þema ársins 2023 eru lönd. Markmiðið er að nemendur öðlist þekkingu á ólíkum löndum og öðlist hæfni í að vinna með upplýsingar á fjölbreyttan hátt. Nemendur hafi val um framsetningu verkefna og efnistök og öðlast því um leið aukna færni í margmiðlun.

Hér má sjá heimasíðu þemadaga í elstu deild.

Þema í Hvaló 2023 - miðdeild

Nemendum miðstigs er skipt í hópa og hver hópur velur land (2 – 4). Nemendur búa til ferð til landsins frá Íslandi. Stofan er svo útbúin sem ferðaskrifstofa og hver hópur býr til ferð til viðkomandi lands. Býr til bás sem auglýsir ferðina sem þau bjuggu til. Það sem þarf að finna út er: flug, hótel, gisting, fæði, afþreying, samgöngur, vegabréf, ferðataska, gjaldmiðill og almennar upplýsingar um landið.

Nemendur vinna síðan út frá þessum upplýsingum og útbúa kynningarefni í alls kyns myndum.

Þema í Hvaló 2023 - yngsta deild

Nemendur á yngsta stigi koma til með að vinna með ákveðin lönd og fræðast um þau. Nemendur í 1. bekk ætla að vinna með Frakkland, 2. bekkur vinnur með Ísland, 3. bekkur vinnur með Grænland og 4. bekkur kemur til með að vinna með Holland.

zoom_out_map

Foreldrum er boðið að koma í skólann

Föstudaginn 31. mars kl. 10:00 - 11:30 viljum við bjóða foreldrum að koma og skoða afrakstur þemadaganna.

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest á opnu húsi á föstudaginn.

zoom_out_map

Páskabingó Versins

Páskabingó Versins verður haldið miðvikudaginn 29. mars frá 18:00 - 20:00 í sal Hvaleyrarskóla. Páskabingóið hefur í gegnum árin verið ein helsta fjáröflunin fyrir félagsmiðstöð skólans og hefur nemendaráðið unnið hörðum höndum frá byrjun skólaárs við að safna glæsilegum vinningum fyrir páskabingóið.


Á staðnum verður til sölu, kaffi og kakó, vöfflur, djús og sjoppan hjá Verinu opin. Í sjoppunni má finna allskonar góðgæti! 1 bingóspjald er á 700kr og 2 bingóspjöld á 1.000kr. Hægt verður að greiða með peningum og korti, posi verður á svæðinu. Foreldrar, systkini, ömmur og afar öll velkomin með!

Sjá nánar

Skólinn hefst eftir páskaleyfi 11. apríl

  • Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 11. apríl.
zoom_out_map

Skóladagatal Hvaleyrarskóla 2022-2023

Skólaráð Hvaleyrarskóla samþykkti skóladagatal næsta árs á fundi sínum miðvikudaginn 1. mars. Skóladagatalið var síðan samþykkt í fræðsluráði miðvikudaginn 22. mars.


  • Hér má sjá skóladagatals Hvaleyrarskóla 2023-2024
zoom_out_map

Skipulagsdagar 15. - 19. maí

Þar sem langt er síðan núverandi skóladagatal var samþykkt og kynnt hér í Hvalrekanum þá viljum við minna á að vikuna 15. - 19. maí eru þrír skipulagsdagar og einn skertur dagur en sá dagur var nýttur í haust þegar námsviðtölin voru tekin að lokinni kennslu. Alla þessa daga er engin kennsla í skólanum.


Þessa daga er stór hluti kennara og annars starfsfólk á leið í námsferð og er ferðinni heitið til Brighton á Englandi. Þar munum við fá fræðslu um núvitund, útikennslu ásamt því að fara í skólaheimsóknir.


Þessa daga er frístundaheimilið Holtasel opið. En það verður auglýst nánar þegar nær dregur.

zoom_out_map

Söngkeppni grunnskólanna

Elísabet var fulltrúi Hvaleyrarskóla og Ellen var kynnir á söngkeppninni.

zoom_out_map

Samvera

Frá samveru yngstu deildar.

zoom_out_map

Skákmót miðdeilar

Hvaleyrarskóli hafnaði í 2. sæti á mótinu.

zoom_out_map

Orðagull

Málörvunarforritið Orðagull er, nú sem fyrr, frítt til niðurhals fyrir alla sem það vilja nota.


Við viljum hvetja foreldra að sækja appið í símann eða spjaldtölvuna. Auðvelt er að nýta appið til að efla lesskilning, auk orðaforða, málskilnings, máltjáningar, vinnsluminnis og herynrænnar úrvinnslu. Orðagull er bæði til fyrir Apple og Androd tæki.


Snjallskólinn gefur Orðagulli 4 1/2 stjörnu af fimm mögulegum.

Hér er umsögn Snjallskólans um forritið: Býsna snjallt forrit og gott verkfæri fyrir marga. Getur Snjallskólinn eindregið mælt með Orðagulli.

Kostir: Einfalt og auðskilið

Allir eiginleikar appsins virka vel

Má taka upp, hlusta á sjálfan sig og endurtaka

Einfalt að búa til notanda og má búa til marga notendur

Uppbyggileg og gagnleg markmið leiksins

Gallar: Engir

Gott er að rifja upp páskakveðjuna sem við unnum á covid tíma. Gott er að rifja upp páskakveðjuna sem við unnum á covid tíma.

Páskakveðja Hvaleyrarskóli 2020

Yfirheitin okkar í Hvaleyrarskóla Yfirheitin okkar í Hvaleyrarskóla

zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
Skólasöngur Hvaleyrarskóla - Hvaleyrarskóli 30 ára

KURTEISI ~ ÁBYRGÐ ~ SAMVINNA KURTEISI ~ ÁBYRGÐ ~ SAMVINNA

zoom_out_map

Hvalrekinn


Opnunartími skrifstofu:

Kl. 7:45 - 15:30 mán-fim

Kl. 7:45 - 14:00 fös



Fréttabréf Hvaleyrarskóla. Sent á foreldra nemenda skólans og skólasamfélagið.

Email: hvaleyrarskoli@hvaleyrarskoli.is
Website: www.hvaleyrarskoli.is
Location: Akurholti 1
Phone: 354 565 0200
Facebook: https://www.facebook.com/hvaleyri/

Hvaleyrarskóli Hafnarfirði
Hvaleyrarskóli is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter