Smore logo
remove_red_eye 197
page background

Fréttabréf Engidalsskóla apríl 2024

Ábyrgð - Virðing - Vellíðan

FréttabréfEngidalsskóla apríl 2024Ábyrgð - Virðing - Vellíðan
zoom_out_map

Fréttabréf Engidalsskóla

Kæru foreldrar/forsjáraðilar.

Það er líkt og vikur og mánuðir fljúgi áfram og sumarið rétt handan við hornið. Apríl fréttabréfið er örlítið seint á ferðinni en mikið hefur verið um að vera í skólanum í apríl og ber þar hæst árshátíð skólans. Við höfum verið að þreifa okkur áfram hvernig skipulag á þessum viðburði sé best og höldum að við séum að nálgast það. Við erum mjög stolt af okkar nemendum og oft eru það önnur börn sem blómstra í svona verkefni en í hefðbundnu skólastarfi. Í framhaldi af þessari vinnu er hægt að haka í ansi mörg hæfniviðmið í námskránni, þetta er ekki bara gleði og gaman því það fer mikið nám fram í svona vinnu. Mjög margir stóðu á sviði, aðrir voru sviðsmenn, einhverjir unnu að skólablaðinu og enn aðrir unnu að frábærri leikmynd. Allt mikilvæg verkefni og hlutverk sem nemendur gátu haft eitthvað val um. Þá vorum við stolt af því að geta verið með okkar eigin hljómsveit sem lék undir í sýningunni um Latabæ.


Nemendur á miðstigi kvöddu vetur á vorhátíð á Thorsplani sem einnig var útgáfuhátíð LÆK verkefnis sem nemendur hafa unnið með tveimur hafnfirskum rithöfundum í vetur. Nemendur Engidalsskóla eiga eina sögu í bókinni (líkt og aðrir skólar), Tiktok stjarnan í hellinum. Frá þessu hefur verið greint á samskiptamiðlum og heimasíðu Hafnarfjarðar og má sjá slóð á það hér fyrir neðan. Allir nemendur á miðstigi fengu eintak af bókinni að gjöf.


Framundan eru fleiri óhefðbundin verkefni og má búast við að nemendur verði enn meira úti og á ferðinni með sínum kennurum á næstu vikum. Þið munið fá nánari upplýsingar um ferðir ykkar barna frá umsjónarkennara viðkomandi árganga.

Við ætlum að halda lýðræðisþing nemenda á miðstigi 15. maí þar sem við spyrjum þau hvað er gott við Engidalsskóla og hvað má betur fara. Þó reglulega fari fram samtal við nemendur verður spennandi að sjá hvað kemur út úr þessu. Einhverjir árgangar ætla líka að taka þátt í krakkakosningunum í tengslum við forsetakosningarnar 2024. Litla upplestrakeppnin sem nemendur 4. bekkjar taka þátt í fer fram 17. maí og verður foreldrum boðið að koma og hlýða á. Þetta er stutt upptalning á því sem er á döfinni en það er alltaf líf og fjör í Engidalsskóla.


Með bestu kveðju,

Skólastjórnendur Engidalsskóla.

Fréttir úr Álfakoti

Í dag 3.maí var opnað fyrir skráningu hjá okkur í sumarfrístund. Námskeiðið er í boði fyrir börn í 1.-3.bekk (2015-2017).

Þetta eru þrjár vikur í júní (10.-28.) og er hægt að velja á milli hvort börnin eru heilan dag eða hálfan dag - fyrir hádegi eða eftir hádegi.

Hægt verður að skrá til 6.júní fyrir viku 1, 13.júní fyrir viku 2 og 20.júní fyrir viku 3.
Athugið að lokað verður á 17.júní.

Dagskráin verður send út síðar.

Kær kveðja,

Magnea og Julia

Bókin LÆK er komin út: Útgáfupartý á Thorsplani | Hafnarfjörður

Bókin LÆK er komin út: Útgáfupartý á Thorsplani | Hafnarfjörður

Hátt í 3000 ungmenni mættu í tveimur hollum í útgáfupartý bókarinnar LÆK í Hafnarfirði á Thorsplani í morgun, fyrst miðstig og svo unglingastig grunnskólanna í Hafnarfirði. Þau fögnuðu bókinni sem þau tóku þátt í að skrifa.

launch hafnarfjordur.is
Börn og miðlanotkun
Samvinna um læsi
Gagnlegar upplýsingar um læsi.

Árshátíð

Hápunktur apríl var Árshátíð nemenda. Vikuna 15. - 19. apríl var unnið að æfingum, leikmynd og skólablað. Árshátíð yngsta stigs var síðan 18. apríl og miðstigs 19. apríl. Stórglæsilegar sýningar báðar tvær. Í þessari viku var hægt að haka við mjög mörg hæfniviðmið.
zoom_out_map

4. bekkur

zoom_out_map

2. bekkur

zoom_out_map

1. bekkur

zoom_out_map

3. bekkur

zoom_out_map

3. bekkur

zoom_out_map

Miðstig

zoom_out_map

Húsbandið

zoom_out_map

Fréttir úr Álfakoti Fréttir úr Álfakoti

Dalurinn Dalurinn

Sáttarborð Engidalsskóla
zoom_out_map

Skýr mörk Engidalsskóla

Í Engidalsskóla eru ekki skólareglur en fari nemendur yfir skilgreind skýr mörk er gripið inn í og nemendum er þá vísað til skólastjórnanda sem ákveður næstu skref. Foreldrar eru boðaðir til fundar með nemendum og áætlun gerð um það sem betur má fara. Mikilvægt er að allir séu meðvitaðir um þetta. Minniháttar atvik leysum við á svokölluðu sáttarborði.

Í Engidalsskóla viljum við:


  • Ekkert ofbeldi hvorki líkamlegt né andlegt

  • Engin barefli né önnur vopn

  • Engin ávana- eða fíkniefni þar með talið áfengi, tóbak og rafrettur

  • Engar alvarlegar ögranir eða hótanir

  • Engin skemmdarverk

  • Enga áhættuhegðun

  • Engan þjófnað

Verkefni nemenda úr áhugasviði Verkefni nemenda úr áhugasviði

zoom_out_map
zoom_out_map

Þessir nemendur notuður veðurblíðuna og bökuðu naan brauð út.

zoom_out_map

Verkefni nemenda úr smiðjum Verkefni nemenda úr smiðjum

zoom_out_map

1. bekkur

zoom_out_map

1. bekkur

zoom_out_map

5. bekkur

zoom_out_map

5. bekkur

zoom_out_map

5. bekkur

zoom_out_map

5. bekkur

zoom_out_map

5. bekkur

zoom_out_map

7. bekkur

zoom_out_map

7. bekkur

zoom_out_map
Mentor leiðbeiningar fyrir foreldra
Á blaðsíðu tvö er að finna leiðbeiningar er varða póst stillingar - Persónuvernd - stillingar

Holt og gott nesti fyrir hrausta og kraftmikla krakka

zoom_out_map

Engidalsskóli

Email: engidalsskoli@engidalsskoli.is
Website: https://www.engidalsskoli.is
Location: Breiðvangur 42, Hafnarfjordur, Iceland
Phone: 555 4433

Engidalsskóli Hafnarfirði
Engidalsskóli is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter