Fréttamolar úr MS
16. janúar 2026
Dagsetningar framundan
Miðvikudagur 21. janúar: Gettu betur - MS vs. ML í útvarpinu
Fimmtudagur 22. janúar: Baulan - söngvakeppni SMS
Þriðjudagur 27. janúar: Matsdagur
Miðvikudagur 28. janúar: Matsdagur
Fimmtudagur 29. janúar: Bólusetning gegn HPV fyrir drengi á 1. og 2. ári - skólahjúkrunarfræðingur sér um (sjá nánari upplýsingar neðar)
Vikan 2.-6. febrúar: Íþróttavika SMS og skráning í Lífshlaupið - framhaldsskólakeppni
Vikan 8.-13. febrúar: Jafnréttisvika
Föstudagur 13. febrúar: Síðasti kennsludagur vetrarannar
MS keppir við ML í Gettu betur
Áfram MS!
HPV bólusetning fyrir drengi fædda 2008–2009 í MS
HPV (Gardasil) bólusetning fyrir drengi fædda 2008–2009 verður framkvæmd í MS
Dagsetning: 29. janúar
Tími: 9:00-11:30
Staðsetning: Jarðsteinn - JAR26
Þennan dag býðst öllum drengjum fæddum 2008-2009 að koma í bólusetninguna á skólatíma (nánari upplýsingar og boð munu berast nemendum og foreldrum frá heilsugæslunni). Nemendur gætu þurft að fara úr tíma eða mæta seint til að nýta sér bólusetninguna og munu kennarar taka tillit til þess.
Mikilvægt:
- Bólusetningin er val og að kostnaðarlausu.
- Drengir gætu þegar hafa verið bólusettir eða vilja frekar gera það síðar á heilsugæslunni.
Bólusetningar geta valdið vægum aukaverkunum eins og hita, roða og þrota á stungustað, tímabundinni vanlíðan eða yfirliðstilfinningu. Þessi einkenni líða oftast hjá á stuttum tíma, gott að gefa djús eða annan orkugjafa ásamt hvíld. Hægt er að hafa samband við 1700 til að fá frekari upplýsingar sé þess þörf.
Nánari upplýsingar: https://island.is/hpv-human-papilloma-virus
Ef einhverjar spurningar vakna, endilega hafið samband við Jórunni skólahjúkrunarfræðing á hjukrunarfraedingur@msund.is
Skólahjúkrunarfræðingur
Jórunn Oddsdóttir skólahjúkrunarfræðingur og ljósmóðir er með viðveru í MS á þriðjudögum og föstudögum. Hún er með skrifstofu í Rökstólum, innst í Jarðsteini.
Nemendur eru hvattir til að leita til hennar. Hlutverk skólahjúkrunarfræðings er að veita ráðgjöf og svara spurningum um ýmis heilsufarsleg vandamál varðandi:
- Meiðsli og sjúkdóma
- Áfengis- og eiturlyfjaneyslu
- Reykingar
- Kynheilbrigði
- Tilfinningaleg og geðræn vandamál
- Verki eða vanlíðan
- Mataræði og hreyfing
- Sjálfsmynd og líkamsímynd
Hjúkrunarfræðingur er bundinn þagnarskyldu.
Nemendur geta komið við, bókað tíma eða sent tölvupóst. Fyrirspurnir mega vera nafnlausar. Jórunn kemur jafnframt að forvarnarfræðslu í Krossgötum.
Langar þig að taka þátt í Rafíþróttakeppni íslenskra framhaldsskóla (FRÍS) fyrir hönd MS?
Keppt er í þremur tölvuleikjum: Counter-Strike 2, Rocket League og Mario Kart World (Á Nintendo Switch 2)
Aðallið:
CS2 / 5 SAMAN
Rocket League / 3 SAMAN
Mario Kart World / 2 SAMAN
Svo eru 3 varamenn í hverjum leik.
Hægt er að sækja um allt að 5 einingar fyrir að taka þátt! Skráning er til miðvikudagsins 21. janúar!
Ef þú ert með spurningar, heyrðu þá endilega í Guðnýju félagsmálastjóra í tölvupósti eða kíktu til hennar á mánudaginn!
Tirna 2026
Nemendur á þriðja ári athugið!
Útskriftarráð er að skipuleggja TIRNU, skólabók fyrir 2007 árgang sem verður tilbúin þegar skólanum lýkur í vor.
Til að vera með þarf að skrá sig! Síðustu ár hafa þátttakendur verið að greiða um 6000-8000 kr fyrir bókina sem rukkað er inn í vor. Það er ómetanlegt að eiga þessar minningar um MS árin 🦢💙
Baulan 2026
Þann 22. janúar verður Baulan, söngvakeppni SMS, haldin í Gamla bíó. Húsið opnar 19:30, keppnin hefst kl. 20. Miðasala hefst á mánudag.
Enn geta keppendur skráð sig til leiks og hvetjum við söngelska nemendur til að láta ljós sitt skína!
Skólafundur í MS 14. janúar 2026
Á miðvikudaginn var haldinn skólafundur í MS þar sem bæði nemendur, starfsfólk, fulltrúar foreldra og skólanefnd tóku þátt í vinnu við að endurskoða og móta gildi skólans. Fundurinn var liður í því að efla skólabrag, stuðla að festu í skólastarfi og tryggja að gildi skólans endurspegli allt skólasamfélagið.
Fundurinn fór fram í tveimur hlutum. Fyrst unnu allir nemendur undir stjórn kennara í kennslustofum að því að skilgreina hvaða gildi skipta þá mestu máli í skólastarfi. Niðurstöður þeirra voru síðan teknar saman og kynntar á seinni hluta fundarins. Þar fór fram sameiginleg vinnustofa með starfsfólki, fulltrúum nemenda og foreldra auk fulltrúa skólanefndar, þar sem hópar völdu og ræddu þau gildi sem þeir töldu mikilvægust fyrir framtíð skólans.
Algengustu gildin sem komu fram voru meðal annars virðing, ábyrgð, metnaður, jákvæðni, traust, samvinna, umhyggja, jafnrétti og vellíðan.
Á skólafundinum mátti greina sterkan vilja til að byggja upp menningu innan skólans sem einkennist af jákvæðu og öflugu samfélagi þar sem allir fá að njóta sín. Unnið verður áfram með öll þau gögn og hugmyndir sem fram komu á fundinum, í góðu samráði við fulltrúa allra hópa skólasamfélagsins. Stefnt er að því að þeirri vinnu verði lokið fyrir upphaf næstu annar.
Skólafundurinn var vel heppnaður og er nemendum og fulltrúum foreldra sérstaklega þakkað fyrir að taka þátt í að móta framtíðargildi skólans.
Tillögur fundarins að nýjum gildum