Smore logo
remove_red_eye 93
page background

Fréttabréf Flóaskóla

október 2026

Fréttabréf Flóaskólaoktóber 2026

Kæra skólasamfélag Kæra skólasamfélag

Þá er haustið skollið á okkur, óþarflega blautt á stundum en svo auðvitað yndislegir sólardagar inn á milli. Það sem einkennir skólastarfið það sem af er hausti er mikil vinnusemi og vinnugleði nemenda.


Skertur nemendadagur er þriðjudaginn 13. október þá lýkur skóla um hádegi og skólabílar fara heim kl 12:00. Daginn eftir eru svo nemendastýrð viðtöl, nánari upplýsingar um þau berast frá umsjónarkennurum í næstu viku. Í október er líka haustleyfið fimmtudag 22. og föstudag 23.


Eftir viðtalsdaginn hefjum við vinnu við nýtt þema sem unnið er út frá grunnþættinum læsi. Yngsta stig vinnur með íslenska náttúru, náttúruvernd, vistkerfi og nýtingu náttúrunnar. Miðstig fer í fjármálalæsi þar sem lögð er áhersla á umhverfislæsi og elsta stig setur upp leikritið Latabæ. Á öllum stigum verður læsi í forgrunni.


Samstarfið við Krakkaborg heldur áfram nemendur hafa þegar hist í Krakkaborg og Skagási. Fyrsta skólaheimsókn elstu nemenda leikskólans í Flóaskóla verður svo miðvikudaginn 7.10. og í lok mánaðar verður aftur hist í Skagási í Gullunum í grenndinni.


Smiðjur voru á mið og elsta stigi í síðustu viku og gengu þær afar vel. Elsta stig fór á Flúðir og miðstig á Laugarvatn.


Líkt og undanfarin ár kemur Jón Pétur með danskennslu til okkar í Flóaskóla. Hann verður í fimm daga 19., 20., 21., 26. og 27. október. Síðasta daginn verður svo danssýning fyrir aðstandendur eftir hádegi, en það verður nánar auglýst síðar.


Lesfimi var lögð fyrir alla nemendur í september og verða niðurstöður rýndar og nýttar til að koma til móts við námslega stöðu hvers nemanda í lestri.


Þið hafið væntanlega öll orðið vör við þá miklu umræðu sem verið hefur um námsmat, birtingarform þess og breytingar á námsmatskvörðum. Innleiðingarteymi skólans situr fundi vikulega með Miðstöð menntunar og skólaþjónustu þar sem unnið er að því að stilla saman strengi allra hlutaðeigandi og farið yfir hvernig þessar breytingar hafa áhrif á birtingu námsmats í grunnskólum landsins og hvaða breytingar þurfa að verða á gildandi aðalnámskrá. Meðan þessi mál eru í ferli höfum við ekki birt námsmat í Mentor. Námsmat fer þó að sjálfsögðu fram í skólanum jafnt og þétt líkt og áður og verður birt þegar innleiðing er lengra á veg komin. Foreldrar eru hvattir til að heyra í kennurum ef þeir óska eftir samtali eða upplýsingum um námslega stöðu barna sinna.


Við hlökkum til að taka á móti ykkur á viðtalsdaginn

bestu kveðjur úr Flóaskóla

Þórunn Jónasdóttir

User uploaded image
zoom_out_map

Bleikur dagur 21. október

Á Bleika deginum berum við Bleiku slaufuna, klæðumst bleiku og lýsum skammdegið upp í bleikum ljóma til að minna á að það er list að lifa með krabbameini. Við stöndum með öllum konum sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendum þeirra.

Olympíuhlaup 15.9.2026

Olympíuhlaupið fór fram 15. september í einstaklega góðu veðri alls voru farnir 585 km og 97 einstaklingar tóku þátt bæði starfsmenn og nemendur, 32 nemendur fóru 10 km en það var lengsta vegalengdin sem var í boði.

User uploaded image
zoom_out_map

Fyrstu 10. km hlaupararnir að komast í mark

User uploaded image
zoom_out_map

Mikilvægt er að hafa góða umferðarstýringu

User uploaded image
zoom_out_map

Samvera eldri og yngri nemenda er aukaafurð sem verður til í verkefninu

Skákkennsla í Flóaskóla

Mikill skákáhugi var í skólanum í fyrravetur og til að styðja við hann og efla skákina enn frekar var ákveðið að bjóða upp á skáktíma sem eru á föstudagsmorgunum. Einn tími er fyrir nemendur í 1.-5. bekk og annar fyrir nemendur í 6.-10. bekk. Skilyrði fyrir þátttöku er að kunna vel mannganginn og hafa áhuga á viðfangsefninu. Þetta hefur mælst mjög vel fyrir. Í yngri hópnum mæta ríflega 20 nemendur í skákina og í eldri hópinn mæta um 30 nemendur. Það er Övar Rafn sem kennir skákina.

User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map

Ríflega 60 börn í skólakór

Skólakórarnir okkar hófu starfið af krafti strax í ágúst og eru þeir mjög vinsælir. Á yngsta stigi eru 30 nemendur af 35 í Yngsta stigs kórnum og á miðstigi er 31 nemandi af 36 í Miðstigs kórnum. Starfið gengur afar vel og það verður gaman að fylgjast með starfinu í vetur.

User uploaded image
zoom_out_map

Tónleikar í Skálholti vor 2026 Miðstigs kórinn

User uploaded image
zoom_out_map

Vorferð 2026 Yngsta stigs kórinn

User uploaded image
zoom_out_map

Samverustundir á yngsta stigi á mánudagsmorgnum 8:20-8:40

Í námsferð starfsmanna síðastliðið vor hrifumst við mikið af samverustundum í Hrafnagilsskóla. Við ákváðum því að vera með eina samverustund á viku á yngsta stigi, svona til að máta okkur aðeins inn í þetta. Skólastjóri og deildarstjóri stýra samverustundunum sem eru 20 mínútna samvera á í byrjun dags á mánudögum. Eyrún stýrir söng og leikur undir á hljómborð. Hugmyndin er að taka fyrir eitt viðfangsefni í senn í um 6 vikur og byrjuðum við á að vinna með vináttuna og á næsta tímabili verður unnið með virðingu. Sungin eru lög sem tengjast efninu og hafa nemendur æft þau lög í tónmenntatímum. Við skiptum samverustundunum niður milli bekkja þannig að hver bekkur kemur með eitt atriði til að sýna eða segja frá og í september komu bæði 3. og 4. bekkur með atriði. Það er skemmst frá að segja að þetta hefur gengið mjög vel og er góð byrjun á vikunni. Við hlökkum til að vinna áfram að þessu verkefni í vetur og finnst þetta góð viðbót við starfið okkar.

Úti- og grenndarnámsdagar fyrstu vikuna í september

Allir nemendur fóru í ferðir fyrstu vikuna í september. 9. og 10. bekkur fór í tveggja daga ferð í Þórsmörk. Aðrir nemendur fóru í dagsferð á skólatíma. 7. og 8. bekkur fór í Fljótshlíðina, 5. og 6. bekkur á Flúðir og 1.-4. bekkur í Skagás og Lyngholt. Allar voru ferðirnar mjög vel heppnaðar og veður var hlýtt og gott.

User uploaded image
zoom_out_map

9.-10. bekkur í Þórsmörk

User uploaded image
zoom_out_map

7. og 8. bekkur í Fljótshlíð

User uploaded image
zoom_out_map

5.-6. bekkur á Flúðum

User uploaded image
zoom_out_map

1.-4. bekkur í Skagási

Þórunn Jónasdóttir
Þórunn is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter