Smore logo
remove_red_eye 1.2K
page background

Fréttamolar úr MS

1. september 2025

Fréttamolar úrMS1. september 2025
User uploaded image
zoom_out_map

Kæru nemendur.


Vonandi byrjar skólaárið vel hjá ykkur öllum.


Framundan eru nokkrar dagsetningar sem þið skuluð leggja á minnið:


  • Þriðjudagur 2. september: Frestur til að segja sig úr áfanga til kl. 15:00. Nemandi þarf að koma á skrifstofu skólans og fylla út sérstakt eyðublað í þessum tilgangi
  • Vikan 1.-5. september: Nýnemavika með ýmsum viðburðum í skólanum
    • Mánudagur: Grautarmessa í frímínútum
    • Þriðjudagur: Gifting, leynigestur í frímínútum og Djúpalaugin um kvöldið
    • Miðvikudagur: Bæjarins bestu í hádeginu og nýnemavídjó um kvöldið
    • Fimmtudagur: Kappát í frímínútum, fótboltaleikur MS vs MK í hádeginu
    • Föstudagur: Verðlaunaafhending fyrir ratleik úr nýnemaferð, ritnefnd gefur út nýnemablaðið
  • 8-10. september: Nýnemaviðtöl þar sem nýnemar geta sótt um að komast í nefndir
  • Miðvikudagur 10. september: Fundur fyrir nemendur með erlendan tungumála- og menningarbakgrunn í JAR21 kl. 14:50 (t.d. rætt um stöðupróf og aðra þjónustu sem skólinn býður uppá)
  • Miðvikudagur 10. september: Gulur dagur - mætum í gulu til að vekja athygli á Alþjóðlegum forvarnardegi sjálfsvíga
  • Fimmtudagur 11. september: Nýnemaball SMS

Námsgögn Námsgögn

User uploaded image
zoom_out_map

Minnum nemendur á að koma í skólann með skriffæri, stílabækur, vasareikna, eigin hleðslutæki fyrir tölvur og önnur námsgögn.


Frá og með næstu viku verður ekki hægt að fá neitt slíkt lánað í skólanum.

Í MS starfar fjöldi fagfólks við það að kenna, fræða og mæta þörfum ykkar nemenda. Gott er að vita hvert má leita ef eitthvað þarf að ræða.

Stjórnendur Stjórnendur

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size

Stjórnendur skólans eru við alla virka daga á skrifstofu skólans.

Náms- og starfsráðgjöf Náms- og starfsráðgjöf

Í MS starfa tveir náms- og starfsráðgjafar sem aðstoða nemendur við ýmis mál. Á heimasíðunni má lesa meira um þjónustuna og bóka tíma.

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
➡️ Smelltu hér til að bóka tíma hjá námsráðgjafa ⬅️

Skólahjúkrunarfræðingur 🏥 Skólahjúkrunarfræðingur 🏥

Skólahjúkrunarfræðingur Menntaskólans við Sund er Jórunn Oddsdóttir. Nemendur geta komið við, bókað tíma rafrænt eða sent tölvupóst á hjukrunarfraedingur@msund.is. Fyrirspurnir mega vera nafnlausar. Hjúkrunarfræðingur er bundinn þagnarskyldu.


Viðverutími og staðsetning

  • Viðvera: Þriðjudaga kl. 9-14 og fimmtudaga kl. 9-12.
  • Staðsetning: Undraland (innst til vinstri í Jarðsteini)

Skólahjúkrunarfræðingur veitir ráðgjöf og svarar spurningum um ýmis heilsufarsleg vandamál varðandi:

  • Meiðsli og sjúkdóma
  • Áfengis- og eiturlyfjaneyslu
  • Reykingar
  • Kynheilbrigði
  • Tilfinningaleg og geðræn vandamál
  • Verki eða vanlíðan
  • Mataræði og hreyfing
  • Sjálfsmynd og líkamsímynd

Auk viðtalstíma fyrir nemendur mun skólahjúkrunarfræðingur

  • vera með fræðslu í skólanum sem tengist heilbrigðismálum
  • vera í samstarfi við forvarnarfulltrúa skólans við vinnu að forvörnum
  • vera innanhandar með ráðgjöf til kennara og starfsfólks
  • sjá um eftirfylgni nemenda sem eiga við veikindi eða önnur vandamál að stríða
  • finna meðferðarúrræði fyrir nemendur sem á því þurfa að halda.
➡️ Smelltu hér til að bóka tíma hjá Jórunni ⬅️

Félagsmálastjóri Félagsmálastjóri

User uploaded image
zoom_out_map
Guðný Lilja Pálsdóttir er félagsmálastjóri MS, en hún er tengiliður Skólafélagsins við stjórn skólans. Hún vinnur náið með skólafélaginu og styður nemendur í málefnum sem tengjast félagslífinu.


Guðný starfar jafnframt í Viskusteini - upplýsinga- og tæknimiðstöð og kemur að fræðslu í Krossgötum sem er áfangi fyrir alla nýnema. Hægt að hafa samband við Guðnýju á felagsmalastjori@msund.is​

Tölvuaðstoð 💻 Tölvuaðstoð 💻

Ert þú í tæknivandræðum? Á heimasíðu skólans má finna lausn á ýmsum tæknivandamálum með ítarlegum leiðbeiningum um kerfin sem við notum í MS. Endilega skoðið leiðbeiningarnar vel og vandlega og svo er hægt að leita til Gísla tölvuumsjónarmanns á bókasafninu ef frekari aðstoðar er þörf.

💻 Heimasíða tölvuumsjónar 💻

Stoðtímar í stærðfræði Stoðtímar í stærðfræði

User uploaded image
zoom_out_map

Boðið verður uppá stoðtíma í stærðfræði á haustönn 2025 og verður fyrsti tíminn þriðjudaginn 9. september.


Tímarnir verða á þriðjudögum kl. 14:40-15:40 og á fimmtudögum kl 15-16 í stofu AÐA21.


Tímarnir eru fyrir alla nemendur í stærðfræði og eru sérstaklega hugsaðir fyrir þau sem þurfa aukinn stuðning. Ef spurningar vakna getið þið haft samband við ykkar stærðfræðikennara eða námsráðgjafa.


Athugið að skráning er nauðsynleg - skráning á skrifstofu skólans. Hvetjum ykkur til að nýta ykkur stærðfræðiaðstoð!

Leiðbeiningar um notkun gervigreindar í námi Leiðbeiningar um notkun gervigreindar í námi

User uploaded image
zoom_out_map
Gervigreind er komin til að vera og nokkuð ljóst að hún er notuð á ýmsum vettvangi. Í reglum skólans er fjallað um notkun gervigreindar og mikilvægt að nemendur kynni sér þær vel.


Háskóli Íslands hefur útbúið heimasíðu þar sem nemendur fá leiðbeiningar um hvað má og hvað ekki þegar gervigreind og nám er annars vegar, og þarna eru líka góðar hugmyndir um hvernig gervigreind getur komið að gagni við nám og kennslu. Við hvetjum nemendur til að skoða síðuna og nýta sér gervigreind með uppbyggilegum hætti.

Heimasíða HÍ um notkun gervigreindar í námi

Jöfnunarstyrkur Jöfnunarstyrkur

Jöfnunarstyrkur er námsstyrkur fyrir nemendur sem búa og stunda nám fjarri lögheimili og fjölskyldu sinni. Umsóknarfrestur er til 15. október á haustönn og 15. febrúar á vorönn. Nánari upplýsingar á heimasíðu Menntasjóðs.

EKKÓ EKKÓ

Skólinn hefur skýra stefnu um aðgerðir gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreiti og ofbeldi í skólanum (EKKO). EKKO stefnan og verkferlar er aðgengilegir á heimasíðu skólans. Það er mikilvægt að nemendur og starfsfólk þekki EKKO ferlana og viti í hvaða farveg slík mál fara.

EKKÓ stefna MS

Skráning persónufornafns í Innu Skráning persónufornafns í Innu

Minnt er á að nemendur geta sjálfir breytt og skráð persónufornafn í Innu undir Stillingar - Breyta persónuupplýsingum.

Tilkynningahnappur á heimasíðu Tilkynningahnappur á heimasíðu

Markmið Menntaskólans við Sund er að tryggja öllum nem­endum og starfs­mönnum skólans öruggt og heilsu­sam­legt vinnu­um­hverfi. Mik­il­vægur liður í því að bæta þjón­ustu skólans við nem­endur er að fá upp­lýs­ingar um það sem betur má fara og eins það sem þykir vel gert.


Í gegnum heimasíðu skólans er hægt að senda tilkynningar, ábend­ingar, kvartanir eða hrós með rafrænum hætti.

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
Tilkynningahnappur

Njótið vikunnar 🥰 Njótið vikunnar 🥰

Menntaskólinn við Sund Msund
Menntaskólinn is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter