Smore logo
remove_red_eye 880
page background
Logo

Tæknótíðindi

13. febrúar 2026

Tæknótíðindi13. febrúar 2026

Dagsetningar framundan Dagsetningar framundan

  • 16.-19. febrúar - Valvika
  • 18. febrúar - Skólafundur Tækniskólans
  • 18. febrúar - Klúbbakvöld á Háteigsvegi
  • 20. febrúar - Vetrarfrí
VALVIKA 16.-19. febrúar

Vel heppnuð árshátíð Tæknó og MH Vel heppnuð árshátíð Tæknó og MH

User uploaded image
zoom_out_map

Árshátíðarball nemendasambands Tækniskólans og nemendafélags MH var haldið í gær 12. febrúar í Kolaportinu. Listamennirnir Sykur, BlazRoca, DJ Kollz, Inspector Spacetime og Saint Pete héldu uppi stuðinu og skemmtu nemendur sér hið besta. Nemendur skólans voru til mikillar fyrirmyndar og að vanda afskaplega kurteisir. Við getum verið stolt af unga fólkinu okkar.


Fyrir ballið í Kolaportinu mætti fjöldi nemenda Tæknó í árshátíðarmat á Skólavörðuholti. Hamborgarbúlla Tómasar sá um veitingar, ís frá Skúbb var í eftirrétt auk candyfloss og endaði kvöldverðurinn svo á spurningakeppni (pub quiz).

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
User uploaded image
zoom_out_map Show in original size

Valvika - spennandi áfangar í opnu vali Valvika - spennandi áfangar í opnu vali

Í val­vik­unni 16.-19. febrúar staðfesta nem­endur í dag­skóla umsókn sína um áfram­hald­andi skóla­vist á næstu önn. Það er gert með því að yfir­fara og staðfesta val næstu annar í Innu og greiða álögð skóla­gjöld. Þá geta nemendur einnig valið um fjölda áhugaverðra áfanga í opnu vali. Sem dæmi má nefna áfanga í fatasaumi, gervigreind, heimildamyndagerð, yndislestri, útivist og fjallgöngum og ljósmyndun.


Upplýsingar um alla áfanga í opnu val má finna HÉR.

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size

Skólafundur 18. febrúar Skólafundur 18. febrúar

User uploaded image
zoom_out_map

Sam­kvæmt lögum um fram­halds­skóla skal halda skóla­fund a.m.k. einu sinni á skólaári en skóla­fundir eru mik­il­vægur lýðræðislegur vett­vangur fyrir nem­endur skólans til að koma sínum mál­efnum á fram­færi. Skóla­fundur verður haldinn í Tækni­skól­anum miðvikudaginn 18. febrúar frá kl.10:25 til 12:05.


Hefðbundin kennsla er lögð til hliðar á þessum tíma en þess í stað ræða nem­endur og starfs­fólk um ýmis mál­efni er varða skólalífið. Mæt­inga­skylda er á skóla­fund fyrir öll þau sem eru í tíma í stunda­töflu kl.10:25–12:05 þennan dag. Þá hvetjum við nemendur sem eru ekki í tíma í skólanum á þessum tíma til að koma í mat­sali skólans á sama tíma og taka þátt í skólafiundi.


Gert er ráð fyrir að kenn­arar haldi fundinn með sínum nem­enda­hópi en einnig er lögð áhersla á að nem­endur taki að sér hlut­verk fund­ar­stjóra, ritara og tímavarðar í hverri kennslu­stofu. Umræðuefni dagsins verður birt á vefsíðu skólans mánudaginn 16. febrúar.

Sálrænn stuðningur hluti af stoðþjónustu Tækniskólans Sálrænn stuðningur hluti af stoðþjónustu Tækniskólans

User uploaded image
zoom_out_map

Skólinn býður nem­endum upp á gjald­frjálsa sálfræðiþjón­ustu og tekur Bene­dikt Bragi Sigurðsson sálfræðingur á móti nem­endum og eftir atvikum aðstand­endum. Tímap­ant­anir fara fram í gegnum Innu og það er mjög ein­falt og þægi­legt að panta tíma. Nem­endur geta valið sér þann tíma sem hentar og bókað sig án þess að þurfa að bíða eftir svari frá sálfræðingnum.

Alúð - Framsækni - Fjölbreytileiki Alúð - Framsækni - Fjölbreytileiki

Tækniskólinn - skóli atvinnulífsins
tskoli.is
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter