Tæknótíðindi
13. febrúar 2026
Dagsetningar framundan
- 16.-19. febrúar - Valvika
- 18. febrúar - Skólafundur Tækniskólans
- 18. febrúar - Klúbbakvöld á Háteigsvegi
- 20. febrúar - Vetrarfrí
Vel heppnuð árshátíð Tæknó og MH
Árshátíðarball nemendasambands Tækniskólans og nemendafélags MH var haldið í gær 12. febrúar í Kolaportinu. Listamennirnir Sykur, BlazRoca, DJ Kollz, Inspector Spacetime og Saint Pete héldu uppi stuðinu og skemmtu nemendur sér hið besta. Nemendur skólans voru til mikillar fyrirmyndar og að vanda afskaplega kurteisir. Við getum verið stolt af unga fólkinu okkar.
Fyrir ballið í Kolaportinu mætti fjöldi nemenda Tæknó í árshátíðarmat á Skólavörðuholti. Hamborgarbúlla Tómasar sá um veitingar, ís frá Skúbb var í eftirrétt auk candyfloss og endaði kvöldverðurinn svo á spurningakeppni (pub quiz).
Valvika - spennandi áfangar í opnu vali
Í valvikunni 16.-19. febrúar staðfesta nemendur í dagskóla umsókn sína um áframhaldandi skólavist á næstu önn. Það er gert með því að yfirfara og staðfesta val næstu annar í Innu og greiða álögð skólagjöld. Þá geta nemendur einnig valið um fjölda áhugaverðra áfanga í opnu vali. Sem dæmi má nefna áfanga í fatasaumi, gervigreind, heimildamyndagerð, yndislestri, útivist og fjallgöngum og ljósmyndun.
Upplýsingar um alla áfanga í opnu val má finna HÉR.
Skólafundur 18. febrúar
Samkvæmt lögum um framhaldsskóla skal halda skólafund a.m.k. einu sinni á skólaári en skólafundir eru mikilvægur lýðræðislegur vettvangur fyrir nemendur skólans til að koma sínum málefnum á framfæri. Skólafundur verður haldinn í Tækniskólanum miðvikudaginn 18. febrúar frá kl.10:25 til 12:05.
Hefðbundin kennsla er lögð til hliðar á þessum tíma en þess í stað ræða nemendur og starfsfólk um ýmis málefni er varða skólalífið. Mætingaskylda er á skólafund fyrir öll þau sem eru í tíma í stundatöflu kl.10:25–12:05 þennan dag. Þá hvetjum við nemendur sem eru ekki í tíma í skólanum á þessum tíma til að koma í matsali skólans á sama tíma og taka þátt í skólafiundi.
Gert er ráð fyrir að kennarar haldi fundinn með sínum nemendahópi en einnig er lögð áhersla á að nemendur taki að sér hlutverk fundarstjóra, ritara og tímavarðar í hverri kennslustofu. Umræðuefni dagsins verður birt á vefsíðu skólans mánudaginn 16. febrúar.
Sálrænn stuðningur hluti af stoðþjónustu Tækniskólans
Skólinn býður nemendum upp á gjaldfrjálsa sálfræðiþjónustu og tekur Benedikt Bragi Sigurðsson sálfræðingur á móti nemendum og eftir atvikum aðstandendum. Tímapantanir fara fram í gegnum Innu og það er mjög einfalt og þægilegt að panta tíma. Nemendur geta valið sér þann tíma sem hentar og bókað sig án þess að þurfa að bíða eftir svari frá sálfræðingnum.