Smore logo
remove_red_eye 1K
page background

Hvalrekinn

4. apríl 2022

zoom_out_map

Páskakveðja

Ágætu foreldrar


Senn líður að páskafríi sem hefst í lok vikunnar eða 8. apríl.


Áður en að páskafríinu kemur ætlum við að brjóta upp hefðbundið skólastarf og hafa þemadaga hjá okkur. Læsi verður haft að leiðarljósi á þemadögunum og er undirbúningur hafinn fyrir þó nokkru hjá kennurum og nemendum.

Fimmtudaginn 7. apríl verður opið í hús í skólanum frá kl. 16:00 til 18:00 þar sem foreldrar eru hjartanlega velkomnir til að sjá afrakstur þemadaganna. Vonum við að með þessum tima hafi fleiri foreldrar tækifæri á að líta við og sjá afrakstur vinnu nemenda.


Hafið það sem best og gleðilega páska.


Kristinn Guðlaugsson, skólastjóri.

zoom_out_map

Upplestrarkeppnin

Upplestrarkeppnin fór fram í Víðistaðakirkju þann 22. mars. Hvaleyrarskóli átti tvo fulltrúa í keppninni Dag Örn Antonsson og Nadiu Attigui sem stóðu sig með prýði og voru sér og skólanum til sóma. Hér til hliðar má sjá mynda af þeim, Svandís og Nínu umsjónarkennurum og Hafdísi Sigmarsdóttur kennara sem aðstoðaði þær við undirbúninginn.

Sigga Dögg kynfræðingur með fræðslu fyrir nemendur og foreldra

Þriðjudaginn 5. apríl verður Sigga Dögg kynfræðingur með kynfræðslu fyrir nemendur í 8. og 10. bekk.

Kl. 20:00 verður Sigga Dögg síðan með fræðslu fyrir alla foreldra í fyrirlestarsal skólans, gengið inn neðan við skólann. Hvetjum við alla foreldra til að mæta og hlusta á fyrirlestur Siggu Daggar.

zoom_out_map

Læsisátak sem endar á þemadögum

Miðvikudaginn 6. apríl og fimmtudaginn 7. apríl eru þemadagar hjá okkur í Hvaleyrarskóla þar sem nemendur í 1. - 10. bekk vinna með læsi.

Þessa daga er skert viðvera nemenda í skólanum en skólinn hefst kl. 8:20 og stendur til kl. 13:20. Nemendur sem eru skráðir í Holtaseli fara að skóladegi loknum í Holtasel.

Foreldrum er boðið að koma í skólann

Fimmtudaginn 7. apríl kl. 16:00 - 18:00 viljum við bjóða foreldrum að koma og skoða afrakstur þemadaganna. Nemendur í 10. bekk verða með fjáröflun fyrir útskriftarferðina sína á þessum tíma.

Föstudaginn 8. apríl

  • Skertur dagur hjá nemendum.
  • Hjá nemendum 1. – 6. bekk er kennsla kl. 8:20 – 12:00 samkvæmt stundaskrá
  • Hjá nemendum 7. – 10. bekk er kennsla kl. 8:20 – 9:40 samkvæmt stundaskrá. Síðan er skólaþing kl. 10:00 – 12:00.

Skólinn hefst eftir páskaleyfi

  • Þriðjudaginn 19. apríl er skipulagsdagur.
  • Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 20. apríl.

Skóladagatal Hvaleyrarskóla 2021-2022

Á fundi skólaráðs Hvaleyrarskóla fimmtudaginn 24. mars voru gerðar smá breytingar á skóladagati þessa árs. Þær helstu eru að:


  • Fimmtudaginn 7. apríl er sýning fyrir foreldra frá kl. 16 - 18 á afrakstri nemenda af þemadögum. Telst þessu tími til skerts skóladags. Þetta leiðir til þess að skólaslit í vor færast fram um einn dag.
  • Þriðjudaginn 19. apríl verður skipulagsdagur. Fræðslustjórar höfuðborgarsvæðisins bættu við auka skipulagsdegi í upphafi þessa árs til undirbúnings skólastarfs. Þar sem við í Hvaleyrarskóla vorum þegar með skipulagsdag þá. Verður dagurinn nýttur 19. apríl.
  • Sjá nánar í skóladagatali ársins.

Skóladagatal Hvaleyrarskóla 2022-2023

Skólaráð Hvaleyrarskóla samþykkti skóladagatal næsta árs á fundi sínum fimmtudaginn 24. mars. Skóladagatalið bíður enn samþykkis fræðsluráðs.

  • Hér má sjá skóladagatals Hvaleyrarskóla 2022-2023 (með fyrirvara um samþykki fræðsluráðs)

zoom_out_map

Orðagull

Málörvunarforritið Orðagull er, nú sem fyrr, frítt til niðurhals fyrir alla sem það vilja nota.


Við viljum hvetja foreldra að sækja appið í símann eða spjaldtölvuna. Auðvelt er að nýta appið til að efla lesskilning, auk orðaforða, málskilnings, máltjáningar, vinnsluminnis og herynrænnar úrvinnslu. Orðagull er bæði til fyrir Apple og Androd tæki.


Snjallskólinn gefur Orðagulli 4 1/2 stjörnu af fimm mögulegum.

Hér er umsögn Snjallskólans um forritið: Býsna snjallt forrit og gott verkfæri fyrir marga. Getur Snjallskólinn eindregið mælt með Orðagulli.

Kostir: Einfalt og auðskilið

Allir eiginleikar appsins virka vel

Má taka upp, hlusta á sjálfan sig og endurtaka

Einfalt að búa til notanda og má búa til marga notendur

Uppbyggileg og gagnleg markmið leiksins

Gallar: Engir

Gott er að rifja upp páskakveðjuna sem við unnum á covid tíma.

Páskakveðja Hvaleyrarskóli 2020

Yfirheitin okkar í Hvaleyrarskóla

Skólasöngur Hvaleyrarskóla - Hvaleyrarskóli 30 ára

KURTEISI ~ ÁBYRGÐ ~ SAMVINNA

zoom_out_map

Hvalrekinn


Opnunartími skrifstofu:

Kl. 7:45 - 15:30 mán-fim

Kl. 7:45 - 14:00 fös



Fréttabréf Hvaleyrarskóla. Sent á foreldra nemenda skólans og skólasamfélagið.

Email: hvaleyrarskoli@hvaleyrarskoli.is
Website: www.hvaleyrarskoli.is
Location: Akurholti 1
Phone: 354 565 0200
Facebook: https://www.facebook.com/hvaleyri/

Hvaleyrarskóli Hafnarfirði
Hvaleyrarskóli is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter