Smore logo
remove_red_eye 535
page background

Fréttamolar úr MS

24. janúar 2023

Fréttamolar úr MS 24. janúar 2023

Dagsetningar framundan Dagsetningar framundan

zoom_out_map
  • 25.-26. janúar: Matsdagar - sjá dagskrá matsdaga hér
  • 26. janúar: Valviku nýnema lýkur - sjá nánar HÉR.
  • 23. janúar- 9. febrúar: MS keppir í deildarkeppni FRÍS (rafíþróttakeppni íslenskra framhaldsskóla)
  • 17. febrúar: Síðasti kennsludagur vetrarannar.


Nú eru rúmlega þrjár vikur eftir af vetrarönn og við óskum nemendum góðs gengis á lokasprettinum! Það er því um að gera að bretta upp ermar og klára önnina með stæl. Snemma á vorönninni verður árshátíð nemenda og leikfélagið Thalía frumsýnir leikritið Pitsh Perfekt og það eru því spennandi tímar framundan.

📸 Fylgið okkur á Instagram! 📸

Tilkynningahnappur á heimasíðu Tilkynningahnappur á heimasíðu

Markmið Menntaskólans við Sund er að tryggja öllum nem­endum og starfs­mönnum skólans öruggt og heilsu­sam­legt vinnu­um­hverfi. Mik­il­vægur liður í því að bæta þjón­ustu skólans við nem­endur er að fá upp­lýs­ingar um það sem betur má fara og eins það sem þykir vel gert.


Í gegnum heimasíðu skólans er hægt að senda tilkynningar, ábend­ingar, kvartanir eða hrós með rafrænum hætti.

open_in_new zoom_out_map

EKKO-ferlar EKKO-ferlar

https://www.instagram.com/reel/CnmM89AOd9D/?utm_source=ig_web_copy_link
zoom_out_map

Á skólaárinu hefur verið unnið í stefnu um aðgerðir gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreiti og ofbeldi í skólanum (EKKO). EKKO stefnan og verkferlar er nú aðgengileg á heimasíðu skólans. Það er mikilvægt að nemendur og starfsfólk þekki EKKO ferlana og viti í hvaða farveg slík mál fara. Ferlarnir verða nánar kynntir fyrir nemendum á næstunni og við bendum á umfjöllun um þá á Instagram síðu skólans.

Stöðupróf í tungumálum Stöðupróf í tungumálum

Nemendur sem tala erlent tungumál geta tekið stöðupróf til að sanna kunnáttu sína á því sviði. Á næstunni verða haldin stöðupróf í MS í þýsku, spænsku, rússnesku, ensku, arabísku og albönsku.

Nemendur sem hafa áhuga á að taka stöðupróf geta haft samband við Örn Valdimarsson (ornv@msund.is) verkefnisstjóra. Smellið á myndirnar fyrir nánari upplýsingar.

open_in_new zoom_out_map
open_in_new zoom_out_map

EKKI skíðaferð EKKI skíðaferð

Eins og í síðasta fréttabréfi viljum við í MS ítreka að það er engin skíðaferð á vegum skólans eða skólafélagsins áætluð á Akureyri. Ef nemendur ætla sér að hópast á Akureyri á skíði þá er mikilvægt fyrir foreldra að vera vakandi yfir ferðum sinna barna og fylgjast með.


Einnig viljum við ítreka að miðvikudagur og fimmtudagur 25.-26. janúar eru matsdagar og þá þurfa margir nemendur að mæta í sjúkrapróf eða önnur verkefni. Föstudaginn 27. janúar er svo kennsla samkvæmt stundaskrá.

Heimildaskráning með APA kerfinu Heimildaskráning með APA kerfinu

Hér er frábært myndband frá Elvu Björk Ágústsdóttur sálfræðikennara í MH um mikilvægi þess að vísa í heimildir. Skýrt er frá muninum á ,,góðum" og ,,slæmum" heimildum og grunnatriðum APA kerfisins gerð skil. Höfundur deildi þessu sjálf og hvetur til notkunar.

APA kerfið - Heimildaskráning
Heimasíða náms- og starfsráðgjafar í MS

Á síðu náms- og starfsráðgjafar er að finna ýmis gagnleg verkfæri og bjargráð í námi og við hvetjum nemendur og forsjárfólk til að kynna sér það sem er í boði.

Menntaskólinn við Sund Msund
Menntaskólinn is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter