Smore logo
remove_red_eye 474
page background

The Weekly Update #4

August 10th, 2026

The Weekly Update #4 August 10th, 2026
The Weekly Update#4August 10th, 2026

Fréttabréf til foreldra🙂 Fréttabréf til foreldra🙂

User uploaded image
zoom_out_map

Skólasetning mánudaginn 24. ágúst

Skóli hefst samkvæmt stundatöflu mánudaginn 24. ágúst


Foreldrar eru velkomnir á skólasetningu


Nemendur í 2. - 10. bekk mæta allir í skólann klukkan 8:00

Skólasetning hjá 2. - 4. bekk kl: 8:00

Skólasetning hjá 5. - 6. bekkur kl: 8:30

Skólasetning hjá 7. - 10. bekk kl: 9:00


1. bekkur mun mæta í viðtal hjá sínum umsjónakennara þennan dag og byrjar samkvæmt stundatöflu þriðjudaginn 25. ágúst kl. 8:00. Foreldrar fá bréf sent heim með tímasetningu í viðtal þegar nær dregur.

Skólatöskur 1. bekkur

Sæplast gefur nemendum 1. bekkjar skólatöskur og sundpoka. Nemendur fá gjöfina afhenta fimmtudaginn 20. ágúst kl.15. Nemendur ásamt foreldrum mæta í Sæplast og taka á móti töskunum sínum.

Nemendur fá skriffæri og liti í skólanum, sem geymd verða í skólanum. Börnunum er velkomið að hafa sitt eigið pennaveski í skólatöskunum ef þau kjósa það.

Ekki láta ykkur bregða

Hún Vilborg okkar er að hætta hjá okkur eftir margra ára störf við skólann. Elísa Rún Gunnlaugsdóttir hefur verið ráðin ritari í hennar stað. Þannig ekki láta ykkur bregða þegar það kemur ný rödd í símann nú í haust.

Haustfundur með foreldrum

Haustfundur verður 26. ágúst kl.16:30 í sal Dalvíkurskóla.


Stjórnendur munu fara almennt yfir skólastarfið þennan veturinn ásamt því að kynnt verður starf stoðþjónustu og Ísat og farið yfir uppbyggingarstefnu skólans.


Hvert teymi boðar foreldra til sín í september og fer yfir námið ofl.

Matar og mjólkuráskrift

Eftir helgina er komið að því að skrá nemendur í skólamat og mjólkuráskrift fyrir skólaárið 2026-2027. (Skráningar frá síðasta ári gilda ekki áfram.)



Skólamáltíðir eru gjaldfrjálsar en samt er nauðsynlegt að skrá börnin í mat.


Skráning í skólamat og mjólkuráskrift er rafræn og er hér


Þegar búið er að fylla út eyðublaðið þarf að muna að fara neðst og smella á „Senda inn“ til að ljúka skráningu.

Blágrýti ehf. mun áfram sjá um hádegismat fyrir grunnskólabörn í Dalvíkurskóla skólaárið 2026-2027.

Daglega er boðið uppá hollan og góðan mat ásamt því að boðið er uppá ávexti og ferskt salat auk annars meðlætis.


Skila þarf læknisvottorði fyrir nemendur sem eru með óþol eða ofnæmi. Vottorð frá síðasta ári gilda áfram en vinsamlegast takið það fram í athugasemdum ef það á við. Vinsamlegast heyrið í ritara ef barnið er hætt með ofnæmi eða óþol.


Mjólkuráskrift kostar 3275 kr. til áramóta en líklega verður einhver vísitöluhækkun eftir áramót.

Áskriftin er innheimt í tvennu lagi, einu sinni fyrir áramót og 1 sinni eftir áramót.

Rútuplan

https://www.dalvikurbyggd.is/cdn/documents/Rutuplan-skolaarid-2026-2027.pdf?v=1786622770

Rútuplanið er gefið út með fyrirvara um breytingar.

Útivistardagur

Á hverju hausti höfum við útivistardag þar sem nemendur skólans ganga fyrirfram ákveðnar gönguleiðir, miskrefjandi eftir aldri nemenda. Göngudagurinn er alltaf settur á skóladagatal til viðmiðunar en við biðjum ykkur að fylgjast vel með hvenær hann verður, því við reynum að haga deginum meðal annars eftir veðri.

Huga þarf vel að klæðnaði og skófatnaði nemenda þennan dag og hafa góðan bakpoka undir nesti. Börnin þurfa ekki að mæta með skólatösku þennan dag.

Teymi skólans Teymi skólans

1.- 2. Bekkur

Bjarney - Kata - Linda - Ester


3.- 4. Bekkur

Bryndís - Kolbrún - Lilja - Anna Lísa


5.- 6. Bekkur

Edda - Jónína - Stefán - Guðrún Hulda


7. - 8. Bekkur

Elmar - Guðrún - Jóhann - Matta - Gugga


9. - 10. Bekkur

Jón Bjarki - Magni - Sigríður - Inga Maja


Íþróttir

Helena - Ingvi - Jóhann


Verkgreinar

Einar Sig - Einar Kára - Skapti - Sóla - Unnur - Valgerður


Stoðteymi

Arna – Elsa - Gunnhildur – Maggý – Valdís


Ísat

Erna og Gerða


Skólaliðar

Arnar - Brynja - Ella Hr - Ella Sv - Eydís - Fríða - Inga Hanna - Sigrún


Stjórnendur

Friðrik - Katla - Jóna - Elísa

Stjórnendur Dalvíkurskóla
Stjórnendur is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter