Smore logo
remove_red_eye 628
page background

Fréttamolar úr MS

8. nóvember 2023

Fréttamolar úr MS 8. nóvember 2023

Síðustu dagar haustannar Síðustu dagar haustannar

zoom_out_map

Nú er síðasta vika haustannar hafin og líklega nóg að gera á lokasprettinum. Við skorum á alla nemendur að sinna náminu vel allt til loka og tryggja þannig að sem bestur árangur náist.


Næsta vika er námsmatsvika sem hefst með tveimur matsdögum þar sem nemendur geta verið kallaðir inn í verkefni og próf. Í kjölfarið eru svo einkunnaskil og námsmatssýning fimmtudaginn 16. nóvember.


Kennsla á vetrarönn hefst skv. stundaskrá þriðjudaginn 21. október. Önnin hefst með miklu fjöri, en fyrsta vikan er hin rómaða 85 vika sem nær hámarki með 85 ballinu sem haldið verður í Víkinni fimmtudaginn 23. nóvember.

Dagsetningar framundan Dagsetningar framundan

  • Fimmtudagur 9. nóvember: Líffræðiráðstefna nemenda í lokaverkefni í líffræði í Andholti
  • Mánudagur og þriðjudagur 13.-14. nóvember: Síðustu matsdagar haustannar (dagskrá birtist á heimasíðu skólans á föstudag).
  • Miðvikudagur 15. nóvember: Einkunnir birtast í Innu kl. 20
  • Fimmtudagur 16. nóvember: Námsmatssýning - í húsi kl. 11-12 eða á Teams kl. 9-12 (nánar auglýst síðar)
  • Sunnudagur 19. nóvember: Stundatöflur vetrarannar birtar í Innu (ekki taka mark á stundatöflum sem mögulega sjást fram að því)
  • Sunnudagur 19. nóvember: Opnað fyrir töflubreytingar í Innu
  • Mánudagur 20. nóvember: Upphafsdagur vetrarannar. Töflubreytingar í Innu loka kl. 15:00
  • Þriðjudagur 21. nóvember: Kennsla hefst skv. stundaskrá
  • 21.-24. nóvember: ✨85 vikan✨
  • Fimmtudagur 23. nóvember: 85 dansleikur nemenda í Víkinni kl. 22-1.

85 vikan 85 vikan

85 vikan er ein af uppáhaldsvikum margra MS-inga. Þá vikuna klæðast nemendur fötum frá 9. áratugnum og Wham og Duran Duran óma um gangana. 85 ballið fer fram í Víkinni þann 23. nóvember. Miðasala hefst á næstu dögum og fer fram í gegnum AUR eins og á síðustu böllum.


Við minnum foreldra á mikilvægi foreldrarölts við ballið, skráning í röltið verður send út fljótlega.

Viskusteinn - upplýsingamiðstöð Viskusteinn - upplýsingamiðstöð

Viskusteinn er opinn fyrir nemendur til þess að læra og klára allt fyrir annarlok. Hægt er að leita til starfsmanna Viskusteins til að fá aðstoð varðandi ýmislegt, eins og heimildavinnu og uppsetningu verkefna.


Fimmtudaginn 9. nóvember verður opið í Viskusteini til kl. 22:30 fyrir þau sem vilja nýta tímann. Guðný Lilja, félagsmálastjóri og starfsmaður Viskusteins, verður á staðnum og aðstoðar nemendur eftir þörfum.

Samfélagslöggur Samfélagslöggur

zoom_out_map

Á næstunni munu samfélagslöggurnar heimsækja nemendur í Krossgötum og kynna sín störf. Samfélagslöggur er verkefni hjá lögreglunni sem vinnur að því markmiði að færa lögregluna nær samfélaginu og styrkja tengsl hennar við ungt fólk. Þegar samfélagslöggurnar koma í heimsókn í skólann munu þær nýta tækifærið og ræða við nemendur í matsalnum og á göngum skólans.

Kennslukannanir Kennslukannanir

Þessa dagana er opið fyrir kennslukannanir í Innu í nokkrum námsgreinum. Góð þátttaka nemenda er mikilvæg svo hægt sé að mæla gæði skólastarfs og við kunnum að meta að heyra raddir nemenda. Könnunin er nafnlaus og er hún opin til og með föstudeginum 10. nóvember. Við hvetjum nemendur til að taka þátt og segja sína skoðun!

Kennslukannanir eru á forsíðu Innu undir Kannanir.

Frá tölvuumsjón Frá tölvuumsjón

Þó nokkuð hefur verið um að stór tölvufyrirtæki, eins og til dæmis Apple og Cisco, hafa verið að senda út öryggisuppfærslur. Þessar uppfærslur eru mikilvægar og til þess að þær virki þarf að uppfæra og endurræsa tölvur. Slíkt leysir oft ýmis vandamál í tölvunum. Hægt er að leita til tölvuumsjónar í Viskusteini ef nemendur þurfa aðstoð.

Njótið vikunnar 🥰 Njótið vikunnar 🥰

Menntaskólinn við Sund Msund
Menntaskólinn is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter