Fréttabréf Síðuskóla
9. bréf - maí- skólaárið 2024-2025
Kæru foreldrar, nemendur og starfsfólk!
Nú eru einungis rúmar fjórar vikur þar til skólahaldi lýkur. Síðasti kennsludagur er 4. júní og skólaslit verða þann 5. júní. Nemendur í 1.-9. bekk mæta á skólaslit hér í skólanum en að vanda verða nemendur 10. bekkjar útskrifaðir í Glerárkirkju. Frekari upplýsingar um fyrirkomulag skólaslita verða sendar út þegar nær dregur.
Gönguferðin sem fella þurfti niður í haust verður farin á umhverfisdegi þann 3. júní og vonum við svo sannarlega að veðurguðirnir verði okkur hliðhollir þann dag.
Eins og jafnan í lok skólaárs verða nokkrar breytingar á starfsmannahaldi. Það lítur út fyrir að nemendafjöldi verði svipaður á næsta skólaári en nú eru 387 nemendur í skólanum. Næsta haust munu 34 nemendur hefja skólagöngu í 1. bekk. Þessa dagana stendur yfir skipulagning næsta skólaárs, við sendum ykkur nánari upplýsingar um leið og þær liggja fyrir.
Það er margt á döfinni í maí og nánari upplýsingar um það er að finna neðar í fréttabréfinu.
Margir hafa tekið hjólin sín í notkun enda hefur veðrið leikið við okkur. Við viljum því minna á lög um hjálmaskyldu barna á grunnskólaaldri.
Bestu kveðjur úr skólanum!
Ólöf, Malli og Helga
Síðuskóli tekur þátt í Fiðringi í kvöld - enn hægt að kaupa miða
Á myndinni hér fyrir neðan má sjá þátttakendur frá Síðuskóla, við óskum þeim góðs gengis í Hofi!
Við bendum áhugasömum á að miðasala fer fram á tix.is
Barnaþing verður haldið í Síðuskóla fimmtudaginn 15. maí
Fimmtudaginn 15. maí verður haldið Barnaþing í Síðuskóla sem liður í Réttindaskólavinnu skólans. Þingið mun fara fram í íþróttahúsinu og verður þrískipt eftir aldursstigum þar sem nemendur fá tækifæri til að ræða málefni sem þeim eru hugleikin.
Barnaþing er mikilvægur vettvangur þar sem rödd barna og ungmenna fær að heyrast í málefnum sem snerta þeirra daglega líf og samfélagið sem þau búa í. Þetta er í anda 12. greinar Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem kveður á um rétt barna til að láta skoðanir sínar í ljós og að tekið sé réttmætt tillit til þeirra.
Niðurstöður Barnaþingsins verða teknar saman og kynntar fyrir nemendum og starfsfólki sem mun svo bregðast við helstu áherslum og erindum sem fram koma.
Barnaþing er mikilvægur liður í því að efla lýðræðisvitund nemenda og gefa þeim tækifæri til að hafa áhrif á sitt nánasta umhverfi. Með því að taka virkan þátt í Barnaþinginu læra nemendur að koma skoðunum sínum á framfæri og vinna með öðrum að sameiginlegum lausnum.
Góður árangur í Pangea
Pangea stærðfræðikeppni er fyrir alla nemendur áttundu og níundu bekkja grunnskóla landsins. Aðalmarkmið keppninnar er að vekja áhuga hjá ungu fólki á stærðfræði, hvetja þau sem halda að stærðfræði sé of erfið til dáða með því að sýna þeim að þau geti afrekað mikið ef þau reyna, og hvetja efnilegustu nemendurna til áframhaldandi afreka. Keppnin er haldin um allt land og er stigahæstu nemendum hvers skóla síðan boðið í úrslitakeppni sem haldin verður í Reykjavík. Í ár fara þeir Alex Hrafn Sólmundsson og Ýmir Helgi Teitsson, úr 8. bekk, sem fulltrúar Síðuskóla. Til hamingju strákar!
Síðuskóli tók þátt í Skólahreysti
Lið Síðuskóla lenti í 3. sæti í undankeppni Skólahreysti sem fram fór í Íþróttahöllinni í kvöld. Keppnin var æsispennandi og hnífjöfn, en aðeins eitt stig skildi á milli sigurliðsins frá Lundarskóla og liðanna sem enduðu í 2. og 3. sæti.
Við erum afar stolt af frammistöðu okkar keppenda þeim Sóldísi, Kára, Höllu og Patreki ásamt varamönnunum Elíasi og Kolbrúnu Svönu sem öll stóðu sig gríðarlega vel og sýndu mikla liðsheild og keppnisanda.
Reiðhjól og hjálmar
- Nemandi sem kemur hjólandi í skólann gerir það á ábyrgð foreldra/forráðamanna sem meta færni barnsins og aðstæður á hjólaleiðinni. Skv. 44. grein umferðarlaga mega börn yngri en níu ára ekki hjóla á akbraut án leiðsagnar og eftirlits aðila sem hefur náð 15 ára aldri. Þar af leiðandi getur skólinn ekki mælt með að þeir nemendur komi á hjóli í skólann nema í fylgd fullorðinna.
- Samkvæmt umferðarlögum er börnum yngri en 16 ára skylt að nota reiðhjólahjálm.
Ákvörðun er foreldra og á ábyrgð þeirra.
Á döfinni
7. maí
Fiðringur, lokakeppni í Hofi
8. maí
Sjúk ást, fræðsla í 8. bekk
Stelpur kl. 8.10 og strákar kl. 8.50
12. maí
Litla upplestrarkeppnin kl. 10
15. maí
Barnaþing, nánari upplýsingar koma frá réttindaráði
16. maí
Sultuplástur, 6. bekkur kl. 9
19. maí
Skipulagsdagur
20. maí
Frjálsíþróttamót í Boganum - 7. bekkur
Hinsegin fræðsla í 9. bekk (hópur 1)
21.-23. maí
10. bekkur í skólaferðalagi
21. maí
Frjálsíþróttamót í Boganum - 6. bekkur
22. maí
Frjálsíþróttamót í Boganum - 5. bekkur
Orri óstöðvandi - 6. bekkur kl. 12.45
Hinsegin fræðsla í 9. bekk (hópur 2)
23. maí
Frjálsíþróttamót í Boganum - 4. bekkur
Orri óstöðvandi - 5. og 6. kl. 12.45
29. maí
Uppstigningardagur - frídagur
3. júní
Umhverfisdagur
4. júní
Umhverfisdagur
5. júní
Skólaslit
6., 10. og 11. júní
Skipulagsdagar