Smore logo
remove_red_eye 600
page background
Logo

Tæknótíðindi

7. janúar 2025

Tæknótíðindi7. janúar 2025

Dagsetningar framundan Dagsetningar framundan

  • 8. janúar - Fyrsta umferð Gettu betur
  • 10. janúar - Úrsögn úr áfanga
  • 16. janúar - Fjarfundur fyrir forráðafólk
  • 17. janúar - Skráning til útskriftar
  • 22. janúar - Átótjúnið
Á döfinni; viðburðir, stoðtímar, frídagar....

Skóladagatal Tækiskólans á PDF formi er aðgengilegt hér!

Fjarfundur fyrir forráðafólk nýnema Fjarfundur fyrir forráðafólk nýnema

Reykjavíkurtjörn
zoom_out_map

Forráðafólki nýnema í Tækni­skól­anum er boðið á fjarfund fimmtudaginn 16. janúar kl. 18:00 á íslensku og klukkan 19.00 á ensku. Áætlað er að hvor fundur um sig taki u.þ.b. eina klukku­stund.


Á fund­unum munu skóla­meistari, aðstoðarskóla­meistari og starfs­fólk stoðþjón­ustu segja frá starf­sem­inni, þeirri þjón­ustu sem er í boði, nám­svefnum Innu, félags­lífi og fleiru.


Hægt er að smella á hlekkinn hér að neðan til að tengjast fundinum á Teams.

Fjarfundur fyrir forráðafólk

Gettu betur Gettu betur

Gettu betur lið Tækniskólans 2025.
zoom_out_map
Tækniskólinn mætir Verzlunarskóla Íslands í Gettu betur miðvikudaginn 8. janúar kl. 18:00.


Lið Tækni­skólans skipa þau Óðinn Logi, Lóa Mar­grét og Magni Kristinsson. Varamaður er Otri Reyr Franklínsson.


Þjálf­arar liðsins eru Auður Aþena Einarsdóttir og Íris Erna Eysteinsdóttir.


Nemendur sem vilja styðja við liðið á keppnisstað, í útvarpshúsinu við Efstaleiti, geta skráð sig með því að smella á hnappinn hér að neðan.

Skráning fyrir Gettu betur

Átótjúnið Átótjúnið

Átótjúnið
zoom_out_map

Átótjúnið, söngkeppni Tækniskólans, fer fram í Mengi miðvikudaginn 22. janúar. Hljómsveit spilar undir hjá keppendum, sem fá jafnframt tækifæri til þess að æfa lagið sitt með hljómsveitinni.


Sigurvegari Átótjúnsins keppir fyrir hönd Tækniskólans í Söngkeppni Framhaldsskólanna 2025.


Nánari upplýsingar um keppnina og fyrirkomulag er hægt að fá hjá Inga Birni í Framtíðarstof­unni eða Lilju félagsmálafulltrúa.


Nemendur sem ætla að taka þátt geta skráð sig með því að smella á hnappinn hér að neðan en skráningu lýkur föstudaginn 17. janúar kl. 16:00.

Skráning í Átótjúnið

Leikfélagið MARS frumsýnir Klú Leikfélagið MARS frumsýnir Klú

Frá leikriti leikfélagsins Mars
zoom_out_map

Leikfélagið MARS frumsýnir leikrit skólaársins föstudaginn 15. febrúar. Leikritið heitir Klú og er byggt á morðgátuspilinu Clue. Leikritið gerist á sveitahóteli árið 1954 þar sem gestir og starfsfólk lenda í óvæntri atburðarás.


Ef þig langar að taka þátt í að setja dularfullt morðmál á svið þá má ennþá bætast við hópinn. Æfingar hjá félaginu eru á mánudögum og miðvikudögum frá 17:00–20:00.


Ef þú hefur áhuga á að taka þátt í að hanna búninga, sviðsmynd, hárgreiðslu og förðun, auglýsingar eða vinna önnur tilfallandi verkefni máttu hafa samband við Lilju Ósk eða leikfélagið MARS.

Upplýsingar í annarbyrjun Upplýsingar í annarbyrjun

Bókasafnið Skólavörðuholti
zoom_out_map

Tækni­skólinn leggur mikið upp úr öflugri þjón­ustu sem ætlað er að styðja við nem­endur skólans.


Nú í annarbyrjun viljum við benda á eftirfarandi upplýsingasíðu og hvetjum nem­endum til að kynna sér efni síðunnar en þar má finna hagnýtar upplýsingar um skólann, skólastarfið, námið og fleira sem gott er að kynna sér.


Nem­endur finna upp­lýs­ingar um bækur og námsgögn í Innu þegar stunda­töflur birtast.

Alúð - Framsækni - Fjölbreytileiki Alúð - Framsækni - Fjölbreytileiki

Tækniskólinn - skóli atvinnulífsins
tskoli.is
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter