Smore logo
remove_red_eye 86
page background

Fréttabréf Grenivíkurskóla

4. tbl. 7. árg. - apríl 2026

FréttabréfGrenivíkurskóla4. tbl. 7. árg. - apríl 2026

Kæra skólasamfélag Kæra skólasamfélag

User uploaded image
zoom_out_map

Þá er páskafrí hafið og nemendur og starfsfólk fá góða hvíld eftir mikla törn síðustu vikur, sem einkenndist af undirbúningi og framkvæmd Vorskemmtunar. Þetta árið var leikritið um Línu langsokk sett á svið og tókst það með eindæmum vel. Alltaf er gaman að sjá nemendur vinna stóra og litla sigra, ýmist á sviði, í söng og hljóðfæraleik, eða í öðrum af þeim fjölmörgu verkefnum sem því fylgja að setja slíka sýningu á svið. Við viljum þakka öllum þeim sem komu að sýningunni með einum eða öðrum hætti kærlega fyrir þeirra framlag, það er afar vel metið! Þá þökkum við góðum gestum innilega fyrir komuna á sýningarnar og vonum að þeir hafi skemmt sér vel. Myndir frá sýningunum og undirbúningi þeirra má sjá hér neðar í fréttabréfinu og fær Hermann Gunnar Jónsson sérstakar þakkir, en hann á heiðurinn af flestum myndunum.


Við vonum að páskafríið verði vel nýtt í samverustundir með fjölskyldunni, útiveru og annað sem gleður og nærir. Nemendur koma svo aftur í skólann að loknu páskafríi miðvikudaginn 8. apríl næstkomandi.


Með kveðju úr skólanum,

Þorgeir Rúnar Finnsson

skólastjóri Grenivíkurskóla

3D-prentari kominn í hús 3D-prentari kominn í hús

User uploaded image
zoom_out_map

Skólinn fékk á dögunum veglegan styrk frá foreldrafélagi skólans sem nýttur var til kaupa á þrívíddarprentara. Enn á eftir að setja tækið upp og koma því í notkun, en afar spennandi verður að prófa okkur áfram í þessari skemmtilegu tækni. Við þökkum foreldrafélaginu kærlega fyrir veittan styrk!

Páskagetraun Páskagetraun

User uploaded image
zoom_out_map

Árleg páskagetraun Grenivíkurskóla fór fram síðustu daga fyrir páskafrí, en þá fengu nemendur á unglingastigi að spreyta sig á ýmsum þrautum, t.d. að þekkja hús og bæi, fólk, málshætti og fleira.


Eftir hreint út sagt ótrúlega jafna keppni endaði það þannig að þrír nemendur voru efstir og jafnir með 111 stig. Það eru þau Björg Guðrún Sigurbjörnsdóttir, Angantýr Magni Guðmundsson og Kristófer Darri Birgisson.


Nemendur á miðstigi fengu einnig að spreyta sig á þrautunum og þar voru það þau Bella Guðjónsdóttir, Ellen Birna Harðardóttir og Páll Þórir Þorkelsson sem lentu í efstu þremur sætunum.


Þessir öflugu krakkar fengu páskaegg að launum, og við óskum þeim til hamingju með góðan árangur!


Hér getið þið skoðað og spreytt ykkur á gátunum sem lagðar voru fyrir.

Grænfáninn Grænfáninn

User uploaded image
zoom_out_map

Í grænfánadálki fréttabréfsins ætlum við nú að deila með ykkur skemmtilegum verkefnahugmyndum. Þetta eru verkefni sem eru ætluð til notkunar í skólastarfi, en geta sannarlega líka nýst fjölskyldum sem vilja njóta saman gæðastunda þar sem náttúran og náttúruverndarmál eru í forgrunni.


Verkefni mánaðarins kallast hringrás vatns. Í verkefninu eru börnum kynntar birtingarmyndir vatns og hvernig hringrás þess virkar auk þess að lögð eru inn ýmis ólík hugtök sem tengjast vatni, svo sem bráðnun, klaki, uppgufun, frostmark og ýmislegt fleira.

Heilsueflandi skóli Heilsueflandi skóli

User uploaded image
zoom_out_map

Dagatal Velvirk fyrir þennan mánuð ber yfirskriftina "virkur apríl". Á dagatalinu má finna ýmsar tillögur sem eru í anda þess sem rannsóknir hafa sýnt að geti hjálpað fólki að lifa hamingjuríkara lífi, svo sem að gefa af sér, tengjast öðrum, finna tilgang, leika sér og njóta augnabliksins.


Smellið hér til að sjá útprentanlegt pdf-skjal með dagatalinu.

Myndir úr skólastarfinu Myndir úr skólastarfinu

  • LMA sýning - 12. mars
  • Vorskemmtun - fyrri sýning - 18. mars
  • Vorskemmtun - síðari sýning - 19. mars
  • Vorskemmtun - valdar myndir
  • Egg og beikon í morgunmat - 20. mars
  • Skíðadagur - 25. mars

Á döfinni í apríl Á döfinni í apríl

  • 2. apríl: Skírdagur.
  • 3. apríl: Föstudagurinn langi.
  • 5. apríl: Páskadagur.
  • 6. apríl: Annar í páskum.
  • 7. apríl: Starfsdagur - frí hjá nemendum.
  • 8. apríl: Kennsla hefst skv. stundaskrá að loknu páskafríi.
  • 23. apríl: Sumardagurinn fyrsti.
  • 28. apríl: Stóra upplestrarkeppnin - lokahátíð.

Matseðill Matseðill

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
User uploaded image
zoom_out_map

Útgefandi: Grenivíkurskóli

Ábyrgðarmaður: Skólastjóri Grenivíkurskóla

Tölvupóstur: grenivikurskoli@grenivikurskoli.is

Heimasíða: http://www.grenivikurskoli.is

Sími: 414-5413

Facebook: Grenivíkurskóli

Grenivíkurskóli
grenivikurskoli.is
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter