Fréttabréf VA
Janúar 2020. 1. tölublað.
Vorönnin komin í gang
Þá er komið nýtt upphaf. Vorönnin er komin í gang og ýmsar breytingar sem því hafa fylgt. Breyting var gerð á stundatöflu og vinnustofum með heill og bættan árangur nemenda að leiðarljósi.
Skólinn hefur verið í ferli við innleiðingu jafnlaunakerfis og ef allt gengur eins og við vonum mun kerfið verða vottað í lok febrúar.
Þegar vorönnin hefst styttist í að við förum að taka á móti nýjum nemendum í haust og í febrúar fer kynningarstarf skólans fyrir 10. bekkinga í gang.
Auk þess hefur félagslífið farið í gang. Skólinn tók þátt í Gettu betur og undirbúningur er hafinn fyrir uppsetningu Leikfélagsins Djúpsins.
Það er því alltaf nóg um að vera í VA, skólanum okkar!
Breytt stundatafla og vinnustofur
Á vorönn 2020 er stundataflan byggð á nýjum stundatöflugrunni. Kennslustundir í töflu verða fleiri og þær örlítið styttri. Vinnustofur verða með nýju fyrirkomulagi, þ.e. þær verða tvisvar í viku. Skyldumæting er í vinnustofur sem eru í stundatöflum nemenda.
Skóladagurinn lengist fjóra daga vikunnar (mán. - fim.). Með þessu er markmiðið að draga úr árekstrum sem eru tilkomnir vegna fjölbreytts námsframboðs. Á föstudögum lýkur kennslu á sama tíma og verið hefur. Skólaakstur er því samstilltur við almenningssamgöngur hjá Strætisvögnum Austurlands með sama hætti og verið hefur.
Stundataflan eftir hádegi á föstudögum er eftir öðrum tímsetningum en aðrir eftirmiðdagar og er það til að stilla töfluna í samræmi við almenningssamgöngur.
Vinnuverndarvika starfsnámsskólanna
Þrír fyrirlestrar voru fluttir undir okkar þaki og streymt í gegnum Youtube. Gullveig Ösp Magnadóttir, iðjuþjálfi, fjallaði um líkamsbeitingu. Ingibjörg Ösp Jónasardóttir, hjúkrunarfræðingur og kennari við skólann, fjallaði um bólusetningar og stunguóhöpp. Síðasti fyrirlesturinn var á höndum Matthíasar Haraldssonar öryggisstjóra Alcoa en hann fjallaði um nýja sýn á öryggismál.
Gettu betur
Þau Birna, Mummi og Hlynur kepptu fyrir hönd skólans í Gettu-betur spurningakeppni framhaldsskólanna í mánuðinum. Í fyrstu umferð báru þau sigurorð af liði Framhaldsskólanum á Laugum 25-10.
Í annarri umferð drógust þau á móti liði Menntaskólans á Ísafirði og báru sigur út býtum, 21-19 og héldu þá allir að skólinn væri kominn í sjónvarpshlutann í fyrsta skipti síðan árið 2002.
Daginn eftir keppnina kom í ljós klúður af hálfu RÚV og var tekin sú fordæmalausa ákvörðun að endurtaka keppnina. Einkenndist ferlið við ákvörðunina af algjöru samráðsleysi og ljóst að ákvörðunin kom einungis niður á okkar liði. Fór svo að Ísfirðingar báru sigurorð af okkar liði og komust þannig í sjónvarpið.
Við erum gríðarlega stolt af okkar krökkum sem stóðu sig eins og hetjur í gegnum allt þetta!
Hluti af ferlinu voru æfingakeppnir við starfsfólk skólans og Austurenda. Má lesa um þær keppnir hér fyrir neðan en Gettu betur liðið vann þær allar nokkuð örugglega.
Leikfélagið Djúpið
Erasmus+ fréttir
Nú fer að styttast í næsta hluta verkefnisins Will to MotivatE(U). Við munum taka á móti 20 kennurum frá samstarfslöndum okkar 20.-24. apríl og er skipulagning heimsóknarinnar komin í fullan gang. Verkefnishlutinn mun einkennast af fræðslu um forvarnir og Fab-lab.
Það verður gaman að sýna þeim skólann og austfirskt samfélag í leiðinni og ljóst er að áhuginn er mikill hjá þeim að koma.
Einnig er verið að leggja drög að fleiri umsóknum í Erasmus innan skólans og halda þannig áfram að skapa nemendum og starfsfólki tækifæri til þess að eflast í gegnum erlent samstarf.
Hér fyrir neðan má sjá frekari upplýsingar um erlent samstarf innan skólans.
Tæknihornið: Readaloud
Hér má finna myndband sem sýnir hvernig þið sækið og stillið Readloud. Athugið að það er hægt að velja íslenskan talgervil sem er undir flokki sem heitir Premium voices og virkar hann mjög vel.
Við erum virk á samfélagsmiðlum, kíktu á okkur þar!
Á döfinni
Skólakynningar fyrir 10. bekk 19., 24. og 25. febrúar
Kærleiksdagar 4.-6. mars
Árshátíð NIVA 5. mars
Forvarnamálþing 27.-28. mars


