Smore logo
remove_red_eye 513
page background
Logo

Tæknótíðindi

25. mars 2025

Tæknótíðindi25. mars 2025

Dagsetningar framundan Dagsetningar framundan

  • 26. mars - Opið hús
  • 29. mars - Skrúfudagurinn
  • 2. apríl - Nemenda ball í Gamla bíó
  • 9. apríl - Foreldraráð býður til fræðslu
  • 15. apríl - Páskafrí
  • 23. apríl - Námsmat - skóli lokaður
  • 24. apríl - Sumardagurinn fyrsti
  • 25. apríl - Vorfrí
Á döfinni; viðburðir, stoðtímar, frídagar....

Skóladagatal Tækiskólans á PDF formi er aðgengilegt hér!

Mín framtíð Mín framtíð

open_in_new zoom_out_map
Dagana 13.–15. mars var fram­halds­skóla­kynn­ingin Mín framtíð í Laug­ar­dals­höll­inni. Á sama tíma fór fram Íslandsmót iðn- og verk­greina, þar sem kepptu sirka 60 nem­endur frá Tækni­skól­anum, í hinum ýmsu greinum. Kepp­endur unnu að krefj­andi verk­efnum sem reyndu bæði á hæfni, skipu­lags­hæfi­leika og fag­mennsku. Sigur í keppn­inni veitir kepp­endum tæki­færi til að taka þátt í Euroskills, sem fer næst fram í Herning í Dan­mörku í sept­ember 2025.

Og það voru fjölmargir nemendur frá Tækniskólanum sem stóðu uppi sem Íslandsmeistarar! Nánari upplýsingar um úrslit keppninnar má lesa í frétt á vefsíðu skólans.

Við óskum öllum keppendum til hamingju með glæsilegan árangur.

Opið hús Opið hús

zoom_out_map
Opið hús verður í Tækni­skól­anum miðvikudaginn 26. mars frá kl. 15:30 til 17:30.


Nem­endur og starfs­fólk tekur vel á móti gestum og gang­andi sem geta kynnt sér náms­framboð, félagslíf og aðstöðu í Tækni­skól­anum.


Boðið verður upp á skoðunarferðir um skólann, reglu­legar kynn­ingar verða á sal og víðs vegar verður hægt að sjá nem­endur að störfum.

Nánar um opið hús

Skrúfudagurinn Skrúfudagurinn

zoom_out_map

Skrúfu­dag­urinn er árlegur kynn­ing­ar­dagur nem­enda í Vél­tækni- og Skip­stjórn­ar­skóla Tækni­skólans. Hann verður haldinn hátíðlegur laugardaginn 29. mars kl. 13:00–16:00 í húsnæði Tækni­skólans við Háteigsveg.


Gestum og gang­andi gefst meðal annars kostur á að skoða aðstöðuna, heilsa upp á nem­endur og starfs­fólk og prófa ýmis­legt spenn­andi.


Verið hjart­an­lega vel­komin!

Glæsilegur árangur í Forritunarkeppni framhaldsskólanna Glæsilegur árangur í Forritunarkeppni framhaldsskólanna

Forritunarkeppni framhaldsskólanna fór fram laug­ar­daginn 8. mars en keppn­inni er skipt í þrjár deildir eftir erfiðleika­stigi, Alfa, Beta og Delta.


Nem­endur á tölvu­braut Tækni­skólans stóðu sig frá­bær­lega en þeir hrepptu þrenn verðlaun, þar af fyrsta og annað sæti í efstu deild­inni Alfa og fyrsta sætið í Beta deild­inni.


Til hamingju með glæsilegan árangur!

Senior developers
zoom_out_map
extra-04
zoom_out_map
0Day Hussein
zoom_out_map

Alúð - Framsækni - Fjölbreytileiki Alúð - Framsækni - Fjölbreytileiki

Tækniskólinn - skóli atvinnulífsins
tskoli.is
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter