Smore logo
remove_red_eye 468
page background
Logo

Tæknótíðindi

4. febrúar 2025

Tæknótíðindi4. febrúar 2025

Dagsetningar framundan Dagsetningar framundan

  • 7. febrúar - Námsmat - skóli lokaður
  • 7. febrúar - Miðspannarmat birt í Innu
  • 10. febrúar - Opnað fyrir kennslumat
  • 15. febrúar - Forritunarkeppni grunnskólanna
Á döfinni; viðburðir, stoðtímar, frídagar....

Skóladagatal Tækiskólans á PDF formi er aðgengilegt hér!

Skólinn lokaður 7. febrúar og miðspannarmat birt Skólinn lokaður 7. febrúar og miðspannarmat birt

zoom_out_map

Við vekjum athygli á því að Tækni­skólinn verður lokaður föstudaginn 7. febrúar.


Kennarar vinna að undirbúningi kennslu og námsmati þennan dag og verður miðspannarmat birt nemendum í Innu kl. 12:00.


Nemendur geta nýtt daginn til að vinna að námi sínu.

Söngkeppnin og sigurvegari Söngkeppnin og sigurvegari

zoom_out_map

Brynja Gísladóttir, 18 ára nemandi í málaraiðn, er sigurvegari Átótjúnsins 2025.


Keppnin í ár var einstaklega glæsileg enda hvert atriðið á fætur öðru í háum gæðaflokki. Alls tóku 10 nemendur þátt í keppninni og þökkum við þeim kærlega fyrir sitt framlag. Dómnefnd kvöldsins fékk það krefjandi verkefni að velja þrjú efstu lögin.


Í þriðja sæti keppninnar var María Verónica Martínez Rodríguez sem söng lagið Goddess. Og annað sætið hreppti Daniel Magni Thor­unn­arson Moss með lagið You need me I don’t need you. Það var svo Brynja Gísladóttir sem söng sig inn í fyrsta sæti keppninnar með laginu Strange.


Við óskum Brynju innilega til hamingju með sigurinn og hvetjum ykkur til að lesa stutt viðtal við hana sem birtist á Facebook síðu Tækniskólans.

Átótjúnið 2025 / Söngkeppni Tækniskólans

Miðspannarmat/miðannarmat Miðspannarmat/miðannarmat

Í miðspannarmati/miðannarmati gefa kenn­arar nem­endum vitn­isburð um stöðu þeirra í hverjum áfanga fyrir sig. Vitn­isburðurinn byggir fyrst og fremst á því náms­mati sem þegar hefur farið fram.


Matskvarðinn er fjórskiptur:
A = Ágætt.
Nem­anda gengur mjög vel.
B = Í lagi. Nem­andi hefur tök á efninu en má ekki slá slöku við.
C = Ábótavant. Nem­andi þarf að taka sig á til að ná áfang­anum.
X = Ekki forsendur til að gefa vitnisburð.


Við hvetjum nemendur og forsjáraðila að fara yfir miðspannarmatið/miðannarmatið saman og skipuleggja framhald námsins í ljósi þess. Námsráðgjafar skólans eru til viðtals og geta bent á leiðir fyrir nemendur sem þurfa að bæta stöðu sína.

Miðspannarmat/miðannarmat í Innu

Kennslumat Kennslumat

Mánudaginn 10. febrúar hefst kennslumat í Innu. Í kennslumati svara nemendur spurningum um kennsluna í einstökum áföngum.


Kennslumatið er liður í sjálfsmati skólans og er góð þátttaka nemenda mjög mikilvæg. Athugið að ekki er hægt að rekja svör til einstakra nemenda. Þátttaka tekur ekki nema nokkrar mínútur.


Þrátt fyrir að eingöngu hluti áfanga sé í kennslumati hverju sinni geta nemendur alltaf komið á framfæri ábendingum, kvörtunum og hrósi í gegnum ábendingakerfið á vefsíðu skólans.

Kennslumat í Innu

Frítt námskeið í forritun Frítt námskeið í forritun

zoom_out_map

Tækni­skólinn býður nem­endum í 9. og 10. bekk á for­rit­un­ar­nám­skeið fyrir byrj­endur og um leið að taka þátt í For­rit­un­ar­keppni grunn­skól­anna laugardaginn 15. febrúar.


Tölvu­braut Tækni­skólans stendur fyrir keppn­inni og er markmið hennar að kynna for­ritun fyrir grunn­skóla­nem­endum og skapa vett­vang þar sem þeir geta komið saman og leyst skemmtileg verk­efni.


Skráning er hafin og stendur til og með 12. febrúar. Þið megið endilega láta vini og ættingja í 9. og 10. bekk vita!


Hægt er að smella á hlekkinn hér að neðan fyrir nánari upplýsingar um viðburðinn.

Kóðun

Morðingi gengur laus Morðingi gengur laus

zoom_out_map
Morðingi gengur laus! Úti er snjóbylur, ekkert skyggni og mikil ókyrrð. Frú Páfugl, herra Sinnep, prófessor Plóma, herra Grænn og frú Hvít eru stödd á sveitahóteli. Á hótelinu hefur verið framið morð. En hver er morðinginn?


Það styttist í frumsýningu á leiksýningunni Klú sem er byggð á morðgátuspilinu Clue.


Hvetjum þau sem vilja leysa morðgátuna að fylgja leikfélaginu Mars á Instagram.

Aukatímar Aukatímar

zoom_out_map
Á hverri önn eru í boði auka­tímar og aðstoð innan margra brauta Tækniskólans.


Upp­lýs­ingar um auka­tíma og jafn­ingj­afræðslu má finna á vefsíðu Tækniskólans, í viðburðadagatali og á skjáum í skóla­húsum


Við hvetjum nem­endur til þess að nýta sér þessa góðu þjón­ustu.

Upplýsingar um aukatíma

Alúð - Framsækni - Fjölbreytileiki Alúð - Framsækni - Fjölbreytileiki

Tækniskólinn - skóli atvinnulífsins
tskoli.is
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter