Hvalrekinn
21. febrúar 2025
Þá er vel liðið fram í febrúar og við finnum að daginn er farið að lengja. Námsviðtölum nýlokið en þau fóru fram miðvikudaginn 5. febrúar og það var ánægjulegt að rekast á mörg ykkar á göngum skólans eða við kaffisöluna hjá 6. bekk.
Eftir helgina er síðan komið að seinna vetrarfríinu hjá okkur á þessu skólaári. Vikuna þar á eftir er öskudagur með öllu því skemmtilega.
Vonandi njótið þið vetrarfrísins með börnum ykkar og eigið góðar stundir saman.
Kristinn Guðlaugsson, skólastjóri.
Vetrarfrí 24. og 25. febrúar
Vetrarfrí verður í grunnskólum Hafnarfjarðar, mánudaginn 24. og þriðjudaginn 25. febrúar. Þá daga er Holtasel lokað.
Frítt er í sund í vetrarfríi grunnskólanna og söfnin bjóða upp á spennandi dagskrá fyrir grunnskólabörn og fjölskyldur þeirra. Hér er hægt að nálgast nánari upplýsingar um dagskrána:
Skipulagsdagur miðvikudaginn 26. febrúar
Miðvikudaginn 26. febrúar er skipulagsdagur hér í Hvaleyrarskóla. Engin kennsla fer fram þann dag en frístundaheimilið Holtasel er opið fyrir þau börn sem þar eru skráð. Skrá þarf börnin sérstaklega inn á Völu sem ætla að vera í Holtaseli þennan dag.
Öskudagur 5. mars
Öskudagurinn er miðvikudaginn 5. mars og hvetjum við alla til að koma í búningi þann dag. Nemendur mæta í skólann samkvæmt stundaskrá og eru til hádegis.
Velkomið að mæta með sparinesti í skólann. Athugið að orkudrykkir og sælgæti teljast ekki til sparinestis.
Nemendur sem eru skráðir í Holtaseli geta farið þangað að skóla loknum. Forráðamenn nemenda sem eiga pláss í Holtaseli láti vita ef þeir ætla ekki að nýta það þennan dag.
Breytt dagskrá er hjá nemendum í yngstu- og miðdeild en kennt er samkvæmt stundaskrá hjá nemendum í elstu deild
Verið - dagskrá fyrir febrúar
Íslandsmeistarar í skólaskák 2025
Íslandsmót grunnskólasveita, stúlknaflokkur var haldið laugardaginn 25. janúar. Hvaleyrarskóli sendi lið til keppni þar sem stúlkur í 3.– 5. bekk öttu kappi við stöllur sínar frá öðrum skólum. Skemmst er frá því að segja að stúlkurnar urðu Íslandsmeistarar og komu færandi hendi með titilinn heim í Hafnarfjörð. Keppnin fór þannig fram að hvert lið var skipað þremur stúlkum og kepptu allir við alla, en alls mættu sjö lið til leiks. Hvaleyrarskóli hafði sigur eftir harða keppni við Landakotsskóla. Lið Hvaleyrarskóla skipuðu þær: Katrín Ósk Tómasdóttir, Sigurrós Hansen Bjarkadóttir og Emilía Klara Tómasdóttir, liðstjóri og þjálfari er Ægir Magnússon. Hvaleyrarskóli kennir öllum krökkum grunnatriði í skák og áhugasömum nokk betur en það. Til að ná svona góðum árangri, eins og þessar stelpur, þarf að æfa utan skóla. Allar þessar stelpur hafa stundað æfingar hjá skákdeild Hauka sem hefur á að skipa mjög góðum þjálfurum. Jóhanna Björg Jóhannsdóttir, skákþjálfari hjá Haukum, hefur unnið mikið með þessar stelpur og fleytt þeim áfram á skákbrautinni. Þá hafa stelpurnar tekið þátt í hinum ýmsu mótum á vegum Hvaleyrarskóla og Hauka.
Samstarf leik- og grunnskóla á Holtinu
Mikið og gott samstarf er á milli Hvaleyrarskóla og leikskólanna hér á Holtinu, Álfasteins, Vesturkots og Smáralundar. Í janúar komu nemendur af leikskólunum í íþróttatíma með 1. bekk undir frábærri stjórn íþróttakennara skólans. Nemendur af leikskólunum hafa einnig komið í smiðjutíma og á bókasafnið. Þetta verkefni er mikilvægur undirbúningur fyrir komandi grunnskólagöngu nemendanna.
Hæfileikakeppni miðdeildar
Stjórn foreldrafélagsins
Stjórn foreldrafélagsins skipa; Lisa Maríudóttir Mahmic formaður, Guðvarður Ólafsson, Dagný Rós Stefánsdóttir, Margrét Fídes Hauksdóttir, Fanney Þóra Heimisdóttir, Natalie Scholtz, Anna Louise Ásgeirsdóttir og Harpa Dís Magnúsdóttir. Netfang: foreldrafelaghvaleyrarskola@gmail.com
Bekkjartenglar geta sótt um styrk fyrir viðburðum
Eins og undanfarin ár hefur Foreldrafélag Hvaleyraskóla ákveðið að styrkja bekkjartengla í 1. - 5. bekk um hámark 10.000 kr. á önn til þess að gera eitthvað skemmtilegt með bekkjunum. Fyrirkomulagið er þannig að kvittanir fyrir útlögðum kostnaði auk samantektar á heildarkostnaði er sendar á póstfang foreldrafélagsins (foreldrafelag@hvaleyrarskoli.is). Þar sem fram þarf að koma er; nafn bekkjar og tilefni (hvað var gert með bekknum) og nafn, kennitala og bankaupplýsingar bekkjartengils. Foreldrafélagið endurgreiðir útlagðan kostnað eftir um viku.
Þess má geta að enn vantar bekkjartengla í nokkra bekki. Þeir sem hafa áhuga sendið póst á Kristin skólastjóra eða Lisu formann foreldrafélagsins. Það er mikilvægt að efla starfið í foreldrafélaginu og í kringum börn okkar.
Fræðslumyndbönd fyrir foreldra leik- og grunnskólabarna
Fræðslu- og rannsóknastofa um þroska læsi og líðan barna og ungmenna hefur útbúið myndbönd fyrir foreldra barna á Íslandi. Verkefnið var styrkt af samfélagssjóði Háskóla Íslands. Markmiðið er að kynna niðurstöður íslenskra og erlendra hágæðarannsókna á einfaldan og hagnýtan hátt.
Þetta eru tvö myndbönd, annars vegar Málörvun leikskólabarna og hins vegar Fjöltyngd börn í íslenskum leik- og grunnskólum. Síðarnefnda myndbandið er með textum á ýmsum tungumálum. Myndböndin fjalla um það hvernig foreldrar geta stutt við málþroska barna sinna og þar með gengi þeirra í námi.
Myndböndin eru aðgengileg á heimasíðu Rannsóknastofunnar https://menntavisindastofnun.hi.is/is/rannsokna-og-fraedslustofa-um-throska-laesi-og-lidan-barna-og-ungmenna
KURTEISI ~ ÁBYRGÐ ~ SAMVINNA
Hvalrekinn
Opnunartími skrifstofu:
Kl. 7:45 - 15:30 mán-fim
Kl. 7:45 - 14:00 fös
Email: hvaleyrarskoli@hvaleyrarskoli.is
Website: www.hvaleyrarskoli.is
Location: Akurholti 1
Phone: 354 565 0200
Facebook: https://www.facebook.com/hvaleyri/