Smore logo
remove_red_eye 952
page background
Logo

Tæknótíðindi

8. nóvember 2024

Tæknótíðindi8. nóvember 2024

Dagsetningar framundan Dagsetningar framundan

  • 13. nóvember - skólaball (haldið með Borgó, FB, FÁ og FMOS)
  • 18. nóvember
    • Miðspannarmat birt
    • Kennslumat fyrir áfanga á önn og seinni spönn opnað
  • 19. nóvember - skólafundur
  • 21. nóvember - skuggakosningar
Á döfinni; viðburðir, stoðtímar, frídagar....

Skóladagatal Tækiskólans á PDF formi er aðgengilegt hér!

Gegn einelti - skilaboð til þín Gegn einelti - skilaboð til þín

Gegn einelti - Skilaboð til þín

EKKO stefna og verklag í Tækniskólanum EKKO stefna og verklag í Tækniskólanum

zoom_out_map

Við viljum vekja athygli á stefnu Tækni­skólans gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kyn­bund­inni áreitni, ofbeldi og ann­arri ótilhlýðilegri hátt­semi.


Stefna Tækni­skólans er skýr: Einelti, kynferðisleg áreitni, kyn­bundin áreitni, ofbeldi og óviðeig­andi hegðun er ekki liðin.


Í skól­anum er lögð áhersla á að efla vitund starfs­fólks og nem­enda um mik­il­vægi jákvæðra sam­skipta og gera þau ein­kenn­andi í skóla­sam­fé­laginu. Skólinn leitar allra ráða til að fyr­ir­byggja og leysa þau mál sem upp koma á sem far­sæl­astan hátt.


Við hvetjum nem­endur og starfs­fólk til þess að standa saman gegn ofbeldi og einelti. Sýnum ALÚÐ og umhyggju í sam­skiptum.

Hvatningaverðlaun Hvatningaverðlaun

Freyja Rós Har­alds­dóttir
zoom_out_map
Í tengslum við Dag gegn einelti þann 8. nóvember veitir mennta- og barna­málaráðuneytið í sam­starfi við sam­tökin Heimili og skóla hvatn­ing­arverðlaun til ein­stak­lings eða verk­efnis sem unnið hefur ötul­lega gegn einelti.


Í ár fór athöfnin fram í Tækni­skól­anum á Háteigs­vegi og á dag­skrá voru m.a. tón­list­ar­atriði og ávarp frá nem­endum skólans. Hvatn­ing­arverðlaunin 2024 hlaut Freyja Rós Har­alds­dóttir, kennari og jafn­rétt­is­full­trúi við Mennta­skólann á Laug­ar­vatni. Fagráð gegn einelti hjá Mennta­mála­stofnun valdi verðlauna­hafa úr inn­sendum til­nefn­ingum þar sem Freyja Rós varð fyrir valinu.

Frétt um athöfnina má lesa HÉR á vefsíðu skólans.

Nemendaskírteini Nemendaskírteini

zoom_out_map

Við minnum á að nemendur skólans fá nemendaskírteini á bókasöfnum skólans.


Skírteinin virka sem aðgangskort sem nem­endur þurfa að hafa á sér til að hafa aðang að skóla­húsnæðinu og til að komast í læstar stofur til verk­efna­vinnu og á lesaðstöðu bóka­safns utan opn­un­ar­tíma. Einnig eru nemendskírteinin nauðsynleg fyrir nemendur til að geta prentað og ljósritað í skólanum.

Kjörstjórn skuggakosninga Kjörstjórn skuggakosninga

zoom_out_map

Í tilefni alþingiskosninga þann 30. nóvember boða Landssamband ungmennafélaga (LUF) og Samband íslenskra framhaldsskólanema (SÍF) til skuggakosninga. Eins og mörgum er kunnugt um eru skuggakosningar liður í lýðræðisverkefninu #ÉgKýs sem hefur það að markmiði að efla lýðræðisvitund og hvetja ungt fólk til að kjósa eftir upplýstri ákvörðun.

Ætlunin er að halda skuggakosningar í Tækniskólanum.

Samkvæmt lögum um skuggakosningar ber að skipa kjörstjórn sem er skipuð fjórum nemendum og einum kennara. Nemendur sem hafa áhuga á að starfa í kjörstjórn geta sent tölvupóst á Lilju Ósk í gegnum netfangið lom@tskoli.is

Frábært tækifæri fyrir nemendur sem hafa áhuga á lýðræðinu, stjórnmálum eða félagsstörfum.

Njótið helgarinnar Njótið helgarinnar

Tækniskólinn - skóli atvinnulífsins
tskoli.is
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter