Smore logo
remove_red_eye 93
page background

DJÚPAVOGSSKÓLI

FRÉTTIR ÚR SKÓLASTARFI

DJÚPAVOGSSKÓLI FRÉTTIR ÚR SKÓLASTARFI

FEBRÚAR 2022

14.febrúar - Skipulagsdagur

24.febrúar - Vetrarfrí

25.febrúar - Vetrarfrí

28.febrúar - Bolludagur

NÆSTA VIKA

Mánudagur 7.febrúar
  • Mætum hress og kát eftir gott helgarfrí

Þriðjudagur 08.febrúar

  • 14:40 Fagfundur

Miðvikudagur 09.febrúar

  • Upplagt að staldra við og njóta augnabliksins

Fimmtudagur 10.febrúar

  • 14:40 Teymisfundur

Föstudagur 11.febrúar

  • Förum hress inn í helgarfrí


Mánudagur 14.febrúar - skipulagsdagur, nemendur eiga frí

MATSEÐILL Í NÆSTU VIKU

HELLINGUR AÐ GERAST

  • Í dag fengu nemendur í 10.bekk kynningu frá Menntaskólanum á Egilsstöðum. Þar fór skólameistari yfir starfið í skólanum og fékk góða hjálp frá brautarstjóra og námsráðgjafa ME. Það kom svo í hlut Kötlu og Heklu að kynna heimavistina og félagslífið, gaman að sjá fyrrum nemendur kynna menntaskólann sinn svona vel.


  • Obba hitti nemendur í 7.-10.bekk í morgun en nemendaráð sendi nýlega formlegt erindi þar sem beðið var um að breyta tímasetningu á því hvenær nemendur mæta í skólann og einnig að breyta því að nemendur fari í frímínútur á Helgafell. Það er ekki hægt að breyta tímanum hvenær nemendur mæta í skólann nema að breyta öllum stundartöflum, við verðum að skoða það síðar. Það var hins vegar minna mál að breyta frímínútunum og nú geta þeir unglingar sem ekki vilja fara í íþróttahúsið með Rikka, verið í skólastofunni með William Óðni.


  • Unglingarnir koma reglulega með ósk um að breyta reglum um símanotkun, við ætlum að kynna okkur það betur og skoða það vel.


  • Álfaverkefnið sem Signý fékk styrk í og unnið er í samstarfi við Djúpsvogsskóla er formlega hafið, við segjum ykkur meira af því á næstu vikum.


  • Árshátíðar undirbúningur er hafinn og nemendur í 7.bekk eru byrjaðir að æfa sig fyrir Stóru upplestrarkeppnina, spennandi að fylgjast með því, já og það styttist í vetrarfrí.

FLOTT VERKEFNI

Á yngstastigi eru nemendur að vinna með Afríkuþema hjá Mörtu og á miðstigi er Ania að kenna nemendum allt um frumur.

Frábær vinna hjá þeim.

Glæsilegar dúkristur á yngstastigi.

zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map

Fjör í náttúrufræði á miðstigi þar sem nemendur læra um dýra- og plöntufrumur og fengu að búa sínar eigin frumur.

zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map

FÖSTUDAGURINN 4.FEBRÚAR 2022

Á morgun, föstudaginn 4.febrúar verð ég í leyfi og því koma vikufréttir út í dag. Lilja verður staðgengill minn og hægt að hafa samband við hana ef erindið getur ekki beðið til mánudags.

Bestu kveðjur og góða helgi.

Obba

Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter